Sveitarstjórnarmál - 01.08.2001, Blaðsíða 96
Kynning sveitarstjórnarmanna
Haraldur L. Haralds-
son sveitarstjóri
Dalabyggðar
Haraldur Líndal Haraldsson
hagfræðingur hefur verið ráðinn
sveitarstjóri Dalabyggðar frá
1. júlí sl. til loka yfirstandandi
kjörtímabils sveitarstjórna á
næsta ári.
Haraldur lauk hagfræðiprófi
frá Lundúnaháskóla 1997. Hann
var bæjarstjóri á ísafirði frá 15.
apríl 1981 til 1. ágúst 1991 og
var þá m.a. formaður byggingar-
nefndar og almannavarnanefndar
bæjarins svo og formaður stjórn-
ar heilsugæslustöðvar og sorp-
eyðingarstöðvar. Jafnframt var
hann formaður byggingarnefndar
iþróttahússins og stjórnsýslu-
hússins á ísafirði. Þá var hann
bæjarfulltrúi þar 1990-1994 fyrir
Sjálfstætt framboð. Á bæjar-
stjóraárum sínum átti hann sæti
í stjórn launanefndar sveitar-
félaga og í stjórn Hafnasambands
sveitarfélaga. Frá 1994 til 1998
starfaði Haraldur sem hagfræð-
ingur hjá Rekstri og Ráðgjöf
ehf. og sinnti ýmsum ráðgjafar-
störfum, m.a. fýrir sveitarfélög.
Frá árinu 1998 hefur Haraldur
starfað hjá Nýsi hf. sem hagfræð-
ingur.
Haraldur gegndi starfi sveitar-
stjóra Dalabyggðar frájúlí til
september 1998.
Haraldur var kynntur í 3. tbl.
Sveitarstjórnarmála 1981.
Friðgerður Baldvins-
dóttir sveitarstjóri
Súðavíkurhrepps
r
Friðgerður Sigfríð Baldvins-
dóttir hefur verið ráðin sveitar-
stjóri Súðavíkurhrepps frá
1. september sl.
Hún er fædd 19. september
1955 á ísafirði. Foreldrar hennar
eru Lára Jónsdóttir og Baldvin
Björnsson, bændur í Hattardal í
Álftafirði. Baldvin lést árið
1988.
Hún lauk gagnfræðaprófi frá
Núpi í Dýrafirði árið 1971 og
verslunarprófi frá Laugarlækjar-
skóla 1987. Starfaði síðan á
skrifstofu hjá Kron í Reykjavík,
var matráðskona i Lýðháskólan-
um í Skálholti og við hafnargerð-
ir og hefur unnið við fiskvinnslu
og rækjuvinnslu. Eftir að snjó-
flóðið féll á byggðina í Súðavík í
janúar 1995 réðst hún til starfa
á skrifstofu hreppsins og hefur
unnið þar síðan.
Friðgerður hefur setið í ýmsum
nefndum í Súðavíkurhreppi, m.a.
verið formaður fræðslu- og tóm-
stundanefndar og bókasafns-
nefndar. Hún var um skeið for-
maður í foreldrafélagi Súðavíkur-
skóla, hefur setið i stjórn Verka-
lýðs- og sjómannafélags Álft-
firðinga og er nú formaður í
orlofs- og sjúkrasjóði félagsins.
Hún hefur átt sæti í hrepps-
nefnd Súðavíkurhrepps fyrir
Sameiningarlistann en sá listi
var stofnaður í kjölfar samein-
ingar Reykjarfjarðarhrepps og
Ögurhrepps við Súðavíkurhrepp
á árinu 1994.
Eiginmaður Friðgerðar er
Sverrir Pétursson, útgerðarstjóri
hjá Hraðfrystihúsinu Gunnvör.
Þau eiga tvö börn.
fí
Jón Gauti Jónsson
sveitarstjóri
Sveitarfélagsins
Skagafjarðar
Jón Gauti Jónsson viðskipta-
fræðingur hefúr verið ráðinn
sveitarstjóri Sveitarfélagsins
Skagafjarðar frá 1. ágúst fram
yfir sveitarstjómarkosningarnar
í maí á næsta ári en Snorri Björn
Sigurðsson sem þar hefur verið
bæjarstjóri og sveitarstjóri frá
árinu 1986 hefúr látið af störfum
í kjölfar breytingar á meirihluta-
samstarfi í sveitarfélaginu.
Jón Gauti er fæddur 29. des-
ember 1945 og er því 55 ára að
aldri. Hann hefúr verið fram-
kvæmdastjóri fleiri sveitarfélaga
heldur en nokkur annar hér á
landi og er þetta sjötta sveitar-
félagið sem hann veitir forstöðu.