Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 35
Fulltrúará&sfundir
353
Lengst til vinstri fremst á myndinni er Sigurgeir Sigurðsson, formaður
byggðanefndar sambandsins, og við hitt borðið Soffia Lárusdóttir, bæjarfull-
trúi í Austur-Héraði, Valgarður Hilmarsson, oddviti Engihlíðarhrepps, Guð-
mundur Haukur Sigurðsson, hreppsnefndarmaður í Húnaþingi vestra, Elín
Líndal, oddviti Húnaþings vestra og formaður SSNV, Bjarni Þór Einarsson,
framkvæmdastjóri SSNV, og Skarphéðinn Guðmundsson, forseti bæjar-
stjórnar Siglufjarðar.
hreppi, Gísli Gunnarsson, Jóhannes Sig-
fusson, oddviti Svalbarðshrepps, Val-
garður Hilmarsson, Sigurlaug Gissurar-
dóttir, bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu
Hornafirði, Sveinn A. Sæland, oddviti
Biskupstungnahrepps, Guðmundur H.
Sigurðsson, hreppsnefndarmaður í Húna-
þingi vestra, og Ríkharð Brynjólfsson.
Elín Líndal, formaður Samtaka sveitar-
félaga í Norðurlandskjördæmi vestra
(SSNV), bar upp tillögu fyrir hönd
stjórnar SSNV um breytingu á 10. tölulið
tillagna byggðanefndar á þá lund að
skorað væri á ríkisstjórnina að skipa nú
þegar nefnd sem hefði það verkefni að
gera tillögur um hvernig skuli beita
sköttum til að hafa áhrif á byggðarþróun.
í nefndinni eigi sæti fulltrúar ríkis og
sveitarfélaga.
Valtýr Valtýsson, formaður Samtaka
sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), kynnti ályktun
síðasta aðalfundar SASS þar sem hafnað er tillögu
byggðanefndarinnar um sameiningu sveitarfélaga
með lögboði.
Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi,
lagði fram og kynnti breytingartillögu sem hann
flutti ásamt fleirum við 4. tölulið tillagna byggða-
nefndar þess efnis að náist ekki árangur í fækkun
sveitarfélaga með frjálsri sameiningu „á næstu átta
árum“ skuli standa „á næsta kjörtímabili" að þá
skuli sambandið beita sér fyrir því í samráði við
ríkisvaldið að sveitarfélög verði sameinuð með
lögum. Hann gerði einnig athugasemd við tillög-
una um þrjú kjarnasvæði.
Sigurgeir Sigurðsson svaraði fyrirspurnum og
fjallaði nánar um ýmis efni sem byggðanefndin
hefði tekið til meðferðar.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson kvað umræðurnar
hafa verið gagnlegar en lagði til að tillögum
byggðanefndar og breytingartillögunum við þær
svo og öðrum ábendingum um byggðamál sem
fram hefðu komið á fundinum yrði vísað til með-
ferðar í stjórn sambandsins og að henni lokinni
verði þær lagðar fram að nýju á næsta fundi full-
trúaráðsins. Þeim yrði að því loknu vísað til næsta
landsþings sambandsins sem haldið verður í sept-
ember 2002.
Tillagan var samþykkt.
Ályktun um reynslusveitarfélaga-
verkefnið
Borin var upp og samþykkt samhljóða svofelld
tillaga um reynslusveitarfélagaverkefnið:
Fulltrúaráð Sambands íslenskra sveitarfélaga
telur að reynslusveitarfélagaverkefnið hafi verið
mjög athyglisverð nýjung í íslenskri stjórnsýslu. í
heild hefur verkefnið tekist vel. Sérstaklega er at-
hyglisvert að tilraunir á Akureyri, Hornafirði og
Vestmannaeyjum með yfirtöku verkefna á sviði
málefna fatlaðra, aldraðra og heilsugæslu hafa leitt
í ljós að sveitarfélögin hafa leyst þau verkefni vel
af hendi. Niðurstaða úttektaraðila er sú að í þeim
málaflokkum hafi náðst sá lögbundni tilgangur
með tilraununum að auka sjálfsstjóm sveitarfélaga;
að laga stjórnsýslu þeirra betur að staðbundnum
aðstæðum, að bæta þjónustu við ibúana og nýta
betur fjármagn hins opinbera.
Innan reynslusveitarfélaganna hafa einnig átt sér
stað athyglisverðar stjórnsýslutilraunir; bæði hefur
verið um að ræða stjórnsýsluumbætur í tengslum
við tilraunir með yfirtöku verkefna og stjórnsýslu-
tilraunir í málaflokkum sem sveitarfélög hafa al-
mennt með höndum. Annars vegar hefur verið um
að ræða tilraunir sem hafa krafist undanþágu frá
lögum með heimild í lögum um reynslusveitar-
félög og hins vegar hefur þátttaka í reynslusveitar-
félagaverkefninu haft þau áhrif að einstök reynslu-
sveitarfélög hafa ráðist í ýmis umbótaverkefni sem
ekki hafa krafist undanþágu frá lögum.