Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 36

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 36
354 Fulltrúaráðsfundir Við borðið sitja, talið frá vinstri, Ríkharð Brynjólfsson, hreppsnefndarmaður í Borgarfjarðarsveit, Kolfinna Jóhannesdóttir, bæjarfulltrúi í Borgarbyggð, Gísli Gunnarsson, bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Skagafirði, Hrefna Jónsdóttir, skrifstofustjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, Laufey Jóhannesdóttir, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar, og Gunnar Sigurðsson, bæjarráðsmaður á Akranesi. Myndirnar frá fundinum tók Gunnar G. Vigfússon. Þrátt fyrir að verkefnið í heild hafi tekist vel er ljóst að samvinna reynslusveitarfélaga og ráðu- neyta hefði mátt vera betri. Áhugaleysi einkenndi afstöðu nokkurra ráðuneyta í byrjun þannig að ekkert varð úr tilraunum á þeirra sviði. Samninga- gerð um yfirtöku verkefna hefur ekki verið nægi- lega markviss og er slæmt til þess að vita að enn einu sinni er staðan sú nú þegar einn mánuður er til loka reynslutimabilsins að enn virðist töluvert í land með að samningar náist. Með hliðsjón af góðri reynslu af yfirtöku reynslusveitarfélaga á verkefnum á sviði málefna fatlaðra, aldraðra og heilsugæslu telur fulltrúaráð Sambands íslenskra sveitarfélaga að frarn eigi að fara viðræður milli sambandsins og heilbrigðis- og félagsmálaráðuneyta um það hvernig hægt sé að vinna að því að sveitarfélög, sem hafa áhuga á yf- irtöku þessara málaflokka, geri það. Fuiltrúaráðið leggur áherslu á að það er að sjálfsögðu forsenda fyrir yfirtöku verkefna að nægilegir ijármunir fáist með verkefnunum til þess að unnt sé að reka við- komandi málaflokk í samræmi við það sem lög áskilja. Einnig er nauðsynlegt að aðilar hafi sam- vinnu um að móta verklagsreglur um form samn- inga og uppbyggingu til að greiða fyrir samnings- gerð. Fulltrúaráðið er sammála því að ekki séu rök til að framlengja reynslusveitarfélagaverkefnið. Mins vegar telur fulltrúaráðið að í framtíðinni eigi að leggja mun meiri áherslu á tilrauna- og þróunar- starfsemi innan sveitarfélaga og að leggja beri áherslu á það við lagasetningu um málefni sveitar- félaga að þeim verði gert kleift að ráðast í slíkt þróunarstarf. Telur fulltrúaráðið að þegar sett eru ný lög um málefni sveitar- félaga eigi í hvert skipti að skoða hvort ekki sé mögulegt að veita sveitarfélögum heimild til að gera tilraunir í mála- flokkum, sbr. t.d. ákvæði grunnskólalaga og skipulags- og byggingaiiaga þar að lútandi. Fulltrúaráðið telur að heimildir sveitarfélaga til tilrauna eigi ekki að ein- skorðast við ákveðin sveitarfélög og sér- lög heldur eigi öll sveitarfélög að geta sótt um slíkar heimildir og lagaheimildir til slíkra tilrauna eigi að vera í þeim lögum sem Qalla um viðkomandi mála- flokk. Fulltniaráðið telur að nýstofnað þróun- arsvið sambandsins eigi að gegna veiga- miklu hlutverki við að fylgjast með, miðla upplýsingum og hvetja til tilrauna- og þróunar- starfs hjá sveitarfélögum. Jafnframt verði sett á stofn sérstök þróunarnefnd til að styðja þróunar- svið við að rækja þetta hlutverk, svo sem gert er ráð fyrir i starfsáætlun sviðsins fyrir árið 2002. Ályktun um fráveituframkvæmdir I umræðum um erindi Ingimars Sigurðssonar, skrifstofústjóra í umhverfisráðuneytinu, kvaddi sér hljóðs Skarphéðinn Guðmundsson, forseti bæjar- stjórnar Siglufjarðarkaupstaðar, og taldi ríkið þurfa að koma rniklu rneira að fjármögnun fráveitufram- kvæmda sveitarfélaga og taldi einsýnt að fundurinn léti frá sér heyra urn það efni í formi ályktunar. Kynnti hann á fundinum svofellda tillögu sem var borin upp og samþykkt samhljóða: Fulltrúaráð Sambands íslenskra sveitarfélaga telur afar mikilvægt að ríkið leggi fram rneira en 20% kostnaðar við fráveituframkvæmdir sveitar- félaga. Kostnaður þeirra sveitarfélaga sem enn eiga eftir verulegar framkvæmdir í fráveitumálum er áætlaður um 20 milljarðar kr. Þess er krafist að sveitarfélögin ljúki tilteknum framkvæmdum í fráveitumálum fyrir árslok 2005. Fulltrúaráðið telur óraunhæft að sveitarfélögin geti lokið framkvæmdunum fyrir þann tíma. Fulltrúa- ráðið hvetur stjórnvöld til þess að beita sér fyrir því að sveitarfélögunum verði gefinn lengri tími til að ljúka þessurn framkvæmdum. Tillögunni fylgdi svofelld greinargerð: 20% kostnaður er ekki nema sú upphæð sem

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.