Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Blaðsíða 39
Fulltrúará&sfundir
alla síðustu öld og sums staðar fækkaði fólki. Á
sama tíma margfaldaðist íbúafjöldi á höfiaðborgar-
svæðinu. Þessi þróun og staða mála nú hlýtur að
vera okkur mikið umhugsunarefni. Viljum við
halda áfram á þeirri braut sem við höfum verið á
siðustu áratugi eða viljum við sjá þróun byggðar
stefna í aðra átt? Ef við viljum snúa þróuninni við
er það þá yfir höfuð á okkar valdi að gera það? Við
verðum að takast á við slíkar spurningar af alvöru
ef við eigum að geta tekið skynsamlegar ákvarð-
anir um stefnu okkar í byggðamálum á komandi
árum.
Við skulum ekki gleyma því að sveigjanleiki í
búsetu er jákvæður eiginleiki þjóða. Víða hafa
þjóðir til dæmis þurft að glíma við langvarandi og
mikið staðbundið atvinnuleysi í dreifðum
byggðum. Á Islandi hafa slík vandamál síður skap-
ast, meðal annars vegna þess hve greiðlega fólk
flytur á milli staða. Sveigjanleiki í búsetu er bæði
kostur fyrir einstaklingana er nýta vilja starfsorku
sína og hæfni sem best og fyrir þjóðfélagið i heild
sem þarf að geta brugðist við nýjum aðstæðum
hverju sinni.
Það er áleitin spurning hvers vegna okkur hefur
ekki tekist að nýta sem skyldi þennan sveigjanleika
til að byggja upp öflugt atvinnulíf og menningu í
öllum landshlutum, en ekki aðeins á suðvesturhluta
landsins. Vera má að hluti skýringarinnar sé fólg-
inn í því að aðgerðir stjórnvalda hafa á liðnum ára-
tugum ekki verið nægilega markvissar og skipu-
legar. í tillögum byggðanefndar Sambands is-
lenskra sveitarfélaga frá því í sumar er lagt til að
byggð verði upp tvö til þrjú öflug kjarnasvæði sem
hafi burði til að treysta búsetu í viðkomandi lands-
hlutum og vera kjölfesta fyrir byggð í landinu öllu.
Það yrði mikilvægur áfangi í byggðamálum ef rík-
isvaldið og sveitarfélögin í landinu gætu sameinast
um að koma slíkri stefnu til framkvæmda. Slík
stefna á hins vegar ekki að þýða að önnur byggð
leggist af.
Hugmyndin á bak við það að stuðla að myndun
öflugra kjarna byggir á því að fjölbreytt atvinnulíf
þurfi starfsumhverfi sem einungis stærri byggðar-
kjarnar geta boðið upp á. Hér er átt við menntun,
sérmenntað fólk, þróunarstarf, möguleika á endur-
menntun og símenntun o.s.frv. Slíkt starfsumhverfi
verður ekki byggt upp nema á fjölmennustu
stöðum landsins. Jákvæð skref hafa verið stigin,
t.d. með uppbyggingu Háskólans á Akureyri, en
tímabært er að taka fleiri og ákveðnari skref í
þessa átt á næstu árum.
Ýmislegt annað er varðar almennt skipulag hins
opinbera og einstakra stofnana þess er einnig nauð-
synlegt að taka til endurskoðunar i því skyni að að-
gerðir stjórnvalda og sveitarfélaga nýtist sem best
fyrir byggðirnar í landinu. Á sama hátt þurfa sveit-
arfélögin að huga að sínum skipulagsmálum, ekki
síst í ljósi breytinga á kjördæmaskipan. Þar ber
hæst sameiningu sveitarfélaga, en flestir virðast
sammála um að öflugri sveitarfélög séu ein megin-
forsenda þess að hægt verði að snúa vörn í sókn í
byggðarlögum víða um land. í tillögum byggða-
nefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga er lagt til
að unnið verði að því að fækka sveitarfélögum á
landinu í 40-50 á komandi árum. Ég tel það mjög
jákvætt að sveitarfélögin sjálf skuli setja fram slíka
stefnu. Auk styrkari sveitarfélaga - þá þurfa sveitar-
félögin að huga að skipulagi þess samstarfs sem
verið hefur á milli þeirra í formi landshlutasam-
taka. Breytt kjördæmaskipan kallar á slíka endur-
skoðun. Við þá endurskipulagningu þarf að hafa
tvennt í huga: Annars vegar þarf að efla svæða-
bundið samstarf ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs á
öllum þeim sviðum sem áhrif hafa á atvinnu- og
búsetuþróun og hins vegar að nýta takmarkaða
fjármuni sem best.
í tillögum byggðanefndarinnar er lagt til að
sjóðakerfi hins opinbera á sviði atvinnuuppbygg-
ingar á landsbyggðinni verði sameinað. Ég tek
undir þessar hugmyndir en þær eru jafnframt í
samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Það er ekkert vit i því að ríkið, með sérstökum
sjóðum eða úr einstökum ráðuneytum, sé að reka
marga sjóði til atvinnuuppbyggingar. Slíkt fyrir-
komulag er bæði kostnaðarsamt og flókið fyrir þá
sem þurfa á þjónustu slíkra sjóða að halda.
íslandi stendur til boða að gerast aðili að Inter-
reg-áætlun Evrópusambandsins, Northern Perip-
hery, sem er sérstaklega hönnuð fýrir hinn norð-
læga hluta Evrópu. Þau lönd sem standa að Nort-
hern Periphery eru Noregur, Svíþjóð, Finnland,
Skotland, Færeyjar og Grænland. Eftir því sem við
höfum kynnt okkur betur þessa áætlun hefur komið
í ljós að mikill áhugi er á því hér á landi að taka
þátt í ýmsum verkefnum sem boðið er upp á. Mörg
þessara verkefna henta mjög vel fyrir sveitarfélög.