Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Síða 46
364
Orkumál
Bækur og rit
það vilji gerast hluthafi (meðeigandi) með öðrum
í slíkum fyrirtækjum með það fyrir augum að
hverfa smám saman út úr þeirri starfsemi. Mundi
ríkið ef til vill frekar vilja taka við hlutverki
meginflutningskerfisins (132 kV og þar yfir)?
• Hver er vilji eigenda Landsvirkjunar, tveggja
sveitarfélaga og ríkisins? Von er að spurt sé í
ljósi þeirrar staðreyndar að sveitarfélögin óskuðu
eftir formlegum viðræðum um endurskoðun á
sameignarsamningi aðila í ljósi breyttra að-
stæðna snemma hausts 1999, ríkið svaraði mið-
sumars 2000 svo að viðræðunefnd var þá fúll-
skipuð. Frá þvi er liðið hálft annað ár, en nefndin
hefur enn engan fund haldið. Og frumvarp til
nýrra raforkulaga mun, þegar þetta er ritað, eiga
að liggja á borðum þingmanna í upphafi vor-
þings samkvæmt orðum iðnaðarráðherra á fúndi
Sambands íslenskra sveitarfélaga nú nýlega.
• Á þennan hnút verður að höggva.
Úrskurðir og álit félagsmálaráðu-
neytisins í sveitarstjórnarmálum
Út er komið ritið Úrskurðir og álit félagsmála-
ráðuneytisins í sveitarstjórnarmálum 2000. Bókin
er 218 síður og hefur að geyma alla úrskurði og álit
sem ráðuneytið gaf út árið 2000 varðandi túlkun
sveitarstjórnarlaga, laga um tekjustofna sveitarfé-
laga, starfsmannamál sveitarfélaga og margt fleira.
Guðjón Bragason, lögfræðingur í ráðuneytinu, sá
um útgáfuna.
Bókin er til sölu á skrifstofu sambandsins og
kostar 2.200 kr.
Eftirlits- og stjórnkerfi
fyrir bæjarfélög
Vatnsveitur
Hitaveitur
Fráveitur
Orkueftirlit
Sjálfvirkar veðurstöðvar
Iþróttamannvirki...
Eftirlitskerfi okkar eru í
notkun hjá fjölda
opinberra stofnana, og ...
eru auk þess í rekstri víða
erlendis.
Tilgangurinn er ætíð að
lækka rekstrarkostnað.
v\sm
Stofnuð 1984
Áralöng reynsla. Leitið
nánari upplýsinga.
Verkfræðistofa - Höfðabakka 9c - 110 Reykjavík - 587-8889 - www.vista.is - vista@vista.is