Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Blaðsíða 50
368
Menningarmál
aðra styrktaraðila. Sparisjóður-
inn í Keflavík verður bakhjarl
verkefnisins hvað varðar fjár-
mögnun. Hönnuðir sýningar-
skálans eru Yrki s/f arkitektar
Ásdís H. Ágústsdóttir og Sól-
veig Berg Björnsdóttir.
Síðastliðið sumar var gerður
samningur við Björn G.
Björnsson sýningahönnuð um
hönnun og uppsetningu
sýningarinnar. Þeirri vinnu
miðar vel áfram og módel er
að verða tilbúið. Saga salt-
fisksins verður sögð með
stórum myndum, hnitmiðuðum
texta og fáum en lýsandi
munum. Gínur koma í staðinn
fyrir fólk í leikmyndinni. Mörkuð er ákveðin leið í
gegnum sýninguna og sagan þannig rakin í tíma-
röð. Gert er ráð fyrir að uppsetning sýningarinnar
geti hafist áður en frágangi hússins lýkur þannig
Merki Saltfiskseturs Islands í Grindavík.
Merkið hannaði Björn G. Björnsson
leikmyndateiknari.
að hús og sýning verði tilbúin
á svipuðum tíma. I framtíðinni
má tengja við sýningarsalinn
veitingahús sem hefúr á boð-
stólum sælkerarétti úr saltfiski.
Sýning af þessu tagi á sér
ekki margar hliðstæður á ís-
landi. I henni felst kröftug
uppbygging atvinnumála og
styrking ferðaþjónustu í
bænum. En hér er fyrst og
fremst á ferðinni mjög merki-
legt og að mörgu leyti einstakt
menningarlegt framtak. Hér er
ekki aðeins verið að staðfesta
sögulega og menningarlega
sjálfsmynd Grindavíkur heldur
er hér haldið á loft römmum
þætti í sögu Islands og lífsbaráttu þjóðarinnar. Sú
er mín spá að gestir muni koma út af þessari
sýningu með brimroða á hvarmi og saltbragð í
munni.
Húsafriðunamefnd
Stjóm sambandsins hefur til-
nefnt Einar Njálsson, bæjarstjóra
í Grindavík, til þess að vera aðal-
fulltrúi og Ingunni Guðmunds-
dóttur, formann bæjarráðs Ár-
borgar, til þess að vera varafull-
trúi hans í húsafriðunarnefnd
sem menntamálaráðherra hefur
nýlega skipað til fjögurra ára
samkvæmt nýjum lögum um
húsafriðun nr. 104/2001.
Samkvæmt 2. gr. laganna
tilnefnir Arkitektafélag íslands
(AI) einn fulltrúa í nefndina en
þrjá fulltrúa skipar ráðherra án
tilnefningar. Varamenn skulu
skipaðir með sama hætti.
Ráðherra skipar formann og
varaformann úr hópi nefndar-
manna.
Af hálfu Arkitektafélags
Islands eru i nefndinni Pétur H.
Ármannsson arkitekt sem aðal-
maður og Gylfi Guðjónsson
arkitekt sem varamaður hans en
án tilnefningar eru skipaðir Þor-
steinn Gunnarsson arkitekt sem
er formaður nefndarinnar,
Nikulás Úlfar Másson arkitekt
og Guðmundur Þór Guðmunds-
son lögfræðingur. Varamenn
þeirra eru Júlíana Gottskálks-
dóttir forstöðumaður, Guðrún
Kristinsdóttir safnstjóri og Lýður
Pálsson safnstjóri, skipuð án til-
nefningar.
í I. mgr. 3. gr. laga um húsa-
friðun segir: „Húsafriðunarnefnd
stuðlar að varðveislu byggingar-
arfs þjóðarinnar og metur hvaða
hús er rétt að friða hverju sinni
og gerir um það tillögur til
menntamálaráðherra. Nefndin
hefur samráð við embætti þjóð-
minjavarðar og minjavörð þess
landsvæðis sem hús tilheyrir
þegar fjallað er um friðun húss.
Húsafriðunarnefnd fer með yfir-
stjórn og veitir styrki úr húsa-
friðunarsjóði. Jafnframt er húsa-
friðunarnefnd umsagnaraðili
fyrir ráðherra í málum er snerta
húsafriðun."