Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Qupperneq 57

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Qupperneq 57
Húsnæöismál 375 Ákvæði laganna um kaupskyldu sveitar- félaga, staðan nú í húsnæðislögin sem sett voru 1980 kom inn ákvæði um kaupskyldu sveitarfélaga á íbúðum í verkamannabústöðum, fyrstu 30 árin frá útgáfu af- sals. Þetta kaupskylduákvæði var hugsað til þess að viðkomandi íbúðir héldust áfram í félagslegri eign. Það var aldrei hugsað til þess að sveitarfélög yrðu eigendur að íbúðarhúsnæði í stórum stíl enda sáu menn ekki slíka þróun fyrir á þeim tíma. Ara- tugurinn 1970-1980 einkenndist af mikilli upp- byggingu á landsbyggðinni og húsnæðisskorti, við því var auðvitað brugðist með byggingu bæði íbúða í einkaeigu og einnig íbúða í félagslega hús- næðiskerfinu. Staðan nú er á hinn bóginn sú að sveitarfélög um allt land hafa innleyst stóran hluta félagslegra íbúða vegna þessa lagaákvæðis og geta ekki endur- selt nema hluta þeirra. Astæðan er mismunandi en oftast virðist vera um að ræða fólksfækkun í við- komandi sveitarfélagi. Umræðan um þessi mál snýst stundum um að finna sökudólg fyrir ástandinu. Eflaust liði ein- hverjum betur ef hægt væri að finna sökudólginn, spurning hvað ætti að gera við hann ef hann fynd- ist og hvort hann gæti leyst þá stöðu sem sveitarfé- lögin standa frammi fyrir. Auðvitað er þetta mái flóknara en svo og nauðsynlegt að líta á það í heild út frá aðstæðum í þjóðfélaginu. Sveitarfélögin eru að framfylgja lögum sem íþyngja þeim verulega. Þeim gengur ekkert betur að sinna þessu verkefni sem er þeim skylt þótt einhverjir telji að þau hafi komið sér í þetta ástand sjálf og byggt of mikið af leiguíbúðum. Eins og áður segir var á þeim tíma verið að bregðast við þörf fyrir húsnæði en nú eru breyttir tímar og hvorki ríki né sveitarfélög sáu það ástand fyrir sem nú er staðreyndin. Núgildandi húsnæðislög nr. 44/1998 í núgildandi lögum nr. 44/1998 er komið á nýrri skipan í félagslega íbúðakerfinu. Byggingu og kaupum á félagslegum eignaríbúðum af hálfú sveitarfélaga er hætt og eignaíbúðakerfið lagt nið- ur. Það kerfi verður þó áfram við lýði á meðan inn- lausn íbúða stendur yfir. Innlausnarreglur eldra kerfis geta því gilt í nokkurn tíma í viðbót því sveitarfélög hafa kaupskyldu fyrstu 15 árin frá af- hendingu íbúðar en 5 ár á almennum kaupleigu- íbúðum. Fjarðarstræti 2, 4 og 6 á ísafirði. Myndin var tekin á árinu 2000 er unnið var að viðhaldi á húsinu að utan, en það var byggt á árunum 1973 til 1976. í því eru íbúðir bæði í eigu einstaklinga og húsnæðisnefndar. Múlalönd 12 og 14 á ísafirði. Byggingu húsanna var lokið á árinu 1990 og 1992. Allar íbúðir í þeim eru í eigu hús- næðisnefndar og útleiga á þeim hefur verið nokkuð bærileg þótt tölu- verð hreyfing sé á leigutökum. Ljósm. Bæjarins besta, ísafirði. Nýtt félagslegt íbúðakerfi byggir á sérstökum viðbótarlánum auk almennra húsbréfalána. Þetta kerfi hefur farið vel af stað og er tryggt með þvi að í hvert sinn sem sveitarfélag samþykkir viðbótarlán sem veitt er af íbúðalánasjóði borgar sveitarfélagið 5% af ljárhæð lánsins í Varasjóð viðbótarlána. Varasjóðurinn er í eigu og á ábyrgð sveitarfélaga og hefur það hlutverk að bæta íbúðalánasjóði tjón sem hann kann að verða fyrir vegna tapaðra við- bótarlána og vegna kostnaðar við uppboðsmeðferð eigna sem á hvíla viðbótarlán. Þá er hlutverk sjóðs- ins að koma að lokun eldra eignaíbúðakerfis, að greiða niður eldri lán Byggingarsjóðs verkamanna og annast samskipti ríkis og sveitarfélaga í þeim efnum. Varasjóður viðbótarlána, staða hans og fjárþörf Til að fjármagna það hlutverk Varasjóðs að koma að lokun eldra eignaíbúðakerfis tekur hann við söluhagnaði af íbúðum í eldra kerfi sem endurseld- ar eru með söluhagnaði. Söluhagnaðinn á að nota til að greiða niður áhvílandi veðlán í eldra kerfi þegar sveitarfélag selur með tapi. Um er að ræða mismun á uppgreiddu láni og 90% af söluverði á almennum markaði. Auk þessa er reiknað með íjárframlagi ríkissjóðs. Geta Varasjóðs til að taka þátt í niðurgreiðslu ræðst af framlögum sem koma vegna söluhagnaðar og framlagi ríkissjóðs. Beiðn- um um framlag úr sjóðnum vegna sölutaps hefur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.