Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 60

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 60
Húsnæðismál á almennan markað, en á þeim hvíla lán með 1 % vöxtum. 10. Rekstur ársins 2001 verði gerður upp eftir á með aðstoð reiknilíkans sem tekur út rekstur hvers og eins sveitarfélags. Hlutverk nefndarinnar er umfangsmikið eins og sjá má á erindisbréfi hennar. Aðaláherslan hefur verið lögð á vanda sveitarfélaga vegna innlausnar- íbúða. Þar er um langtímaverkefni að ræða eins og í húsnæðismálum almennt. Verði farið eftir hug- myndum og tillögum nefndarinnar mun það breyta stöðunni töluvert í þessum málaflokki hjá sveitar- félögunum. Hlutfall félagslegra eignaríbúða er misjafnt í sveitarfélögum. Til eru dæmi um sveitar- félög sem hafa þurft að innleysa allar íbúðir í fé- lagslega kerfinu vegna þeirrar lagaskyldu sem hvíl- ir á sveitarfélögunum. Sums staðar eru allar þessar íbúðir í útleigu og standa þar með undir rekstri þeirra að mestu leyti. Annars staðar eru auðar íbúðir sem þýðir aukinn rekstrarkostnað viðkom- andi sveitarfélags eða öllu heldur lægri tekjur. Ekki má gleyma því að öllum sveitarfélögum er nauðsynlegt að hafa yfir einhverjum leiguíbúðum að ráða. Þess vegna er vandinn ekki eins gríðarleg- ur og hann virðist við íyrstu sýn þegar heildartölur yfir fjölda íbúða og skuldir vegna þeirra eru skoð- aðar. Fyrst og fremst er um að ræða viðfangsefni í afmörkuðum ijölda sveitarfélaga þar sem staðan er hvað verst. Þar er um að ræða að taka kúfinn af ef svo má að orði komast. Þegar því verkefni, sem getur tekið nokkur ár, er lokið er komin upp allt önnur staða og mun viðráðanlegri. Með þetta í huga er undirritaður bjartsýnn á framtiðina í rekstri félagslegra leiguíbúða sveitarfélaga. Sérfræðinqar í rafhit ft-.... i Framleiðum allar gerðir af rafhiturum stórum og 1 ^ -r., 1 i Rafhitarar í skip, hús, sumarhús og heita potta f 7 Úl * Ijlai Sérsmíðum hitöld (element) eftir pöntunum, hvort sem hita þarf upp loft, vatn, olíu eða annað Glerhúðaðir (emeleraðir) neysluvatns- kútar, frá Fagor og Rheem, frá 10 til 456 Itr. Einnig ryðfríir neysluvatnskútar frá Meretank as. Noregi, 40 til 300 Itr. Rafhitun s/f - Kapiahrauni 7a - Hafnarfirði Sími 565 3265 - Fax 565 3260 netfang rafhitun@rafhitun.is - www.rafhitun.is

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.