Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 86

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Page 86
Umhverfismál Stefán Gíslason, verkefnisstjórí Staðardagskrár 21 á íslandi: Staðardagskrá 21 Öflugt tæki við stjómun sveitarfélaga Nú eru liðin rúm þrjú ár frá því að starf að gerð Staðardagskrár 21 hófst með markvissum hætti í íslenskum sveitarfélögum. Þegar hafa 11 sveitar- stjórnir samþykkt 1. útgáfú Staðardagskrár fyrir heimabyggðina, i u.þ.b. 10 sveitarfélögum til við- bótar er unnið stöðugt og skipulega að Staðardag- skrárgerðinni, og þar að auki hafa 10 aðrar sveitar- stjórnir skuldbundið sig með samþykkt Olafsvíkur- yfirlýsingarinnar til að hafa sjálfbæra þróun að leiðarljósi við allar ákvarðanir. Ef allt er talið hafa a.m.k. 45 sveitarstjórnir annaðhvort hafið gerð Staðardagskrár 21 eða lagt drög að slíku með ein- hverjum hætti. í þessum 45 sveitarfélögum búa rúmlega 91% þjóðarinnar. Samþykkt fyrstu útgáfú Staðardagskrár 21 er vissulega stór áfangi fyrir viðkomandi sveitar- stjórn. Við þau tímamót er að sama skapi afar nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því hvernig standa skuli að framhaldinu, þ.e.a.s. framkvæmd þeirra verkefna sem ákveðin hafa verið í fram- kvæmdaáætlun Staðardagskrárinnar og viðhaldi og endurskoðun áætlunarinnar sem slíkrar. í þessu sambandi er sérstök ástæða til að velta fyrir sér þremur spurningum: Til hvers er Staðardagskráin? Staðardagskrá 21 er heildaráætlun um þróun sveitarfélagsins fram eftir 21. öldinni. Þessi áætlun nær ekki aðeins til umhverfisþátta í hefðbundnum skilningi, heldur einnig og ekki síður til efnahags- legra og félagslegra þátta. Áætlunin byggir á heild- arsýn og þverfaglegri hugsun, þar sem reynt er að sjá hina ýmsu þætti í samhengi í stað þess að ljalla um hvern málaflokk um sig sem afmarkað fyrir- bæri. Staðardagskráin er byggð á langtíma mark- miðssetningu, þar sem leitast er við að lýsa ákjós- anlegri stöðu mála í sveitarfélaginu að t.d. 10 eða 20 árum liðnum. Framkvæmdaáætlun Staðardag- skrárinnar felur síðan í sér lista yfir þau verk sem þarf að vinna til að þessi ákjósanlega staða verði að veruleika. Öll sveitarfélög vinna að áætlunargerð af ein- hverju tagi. Nægir þar að nefna ijárhagsáætlun og þriggja ára áætlun, en einnig er algengt að ráðist sé í stefnumótun á einstökum sviðum, svo sem stefnumótun í ferðamálum, landbúnaðarmálum, fræðslumálum eða atvinnumálum almennt. Staðar- dagskrá 21 hefur hins vegar þá sérstöðu að fást við lengri tímabil en títt er með aðrar áætlanir, auk þess sem lögð er sérstök áhersla á þverfaglega nálgun eins og fyrr er getið. Af þessum ástæðum er Staðardagskrá 21 mjög öflugt stjómtæki í höndum sveitarstjórna ef rétt er á málum haldið. Hvar á Staðardagskrá 21 heima í stjórnkerfi sveitarfélagsins? Eins og fyrr segir er Staðardagskrá 21 heildar- áætlun sem snertir flesta eða alla málaflokka í starfsemi sveitarfélagsins. Þess vegna er ekki heppilegt að fela einni tiltekinni starfsnefnd í stjórnkerfi sveitarfélagsins að hafa umsjón með framgangi áætlunarinnar. Þannig liggur t.d. ekki beint við að umhverfisnefnd fari með málið, og lendi þar með í þeirri aðstöðu að þurfa að fylgja eftir verkefnum sem heyra undir félagsmálanefnd eða fræðslunefnd, svo dæmi séu tekin. Heppilegra væri að umsjón með framkvæmd og endurskoðun

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.