Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Side 89
Erlend samskipti
Nýlegt fjölbýlishús í Finnlandi.
NBD á íslandi 2005
Nú hefur verið ákveðið að næstu NBD-dagar á
íslandi verði árið 2005.
Vinnuheiti ráðstefnunar og sýningar er Heilsu-
landið ísland, heilsusamleg byggingarefni, bygg-
ingar og hvernig gerum við hið byggða umhverfi
bæði mannlegt og heilnæmt.
Þessari hugmynd hefur verið afar vel tekið af
öðrum stjórnarmönnum, fulltrúum annarra Norður-
landa. Við íslendingar höfum upp á svo margt að
bjóða sem aðrar þjóðir hafa ekki, hreina vatnsorku,
raforku og mörg náttúruundur sem við íslendingar
höfum virkjað í tengslum við heilnæmt mannlíf
eins og allar okkar sundlaugar, heita potta, gufu-
böð, heilsuræktarstöðvar og ekki sist Bláa lónið
sem hefúr vakið heimsathygli. Hin víðfræga nátt-
úra íslands með Geysi, Gullfoss og Þingvelli og
saga þjóðarinnar sem er nátengd náttúru landsins
eru þar í öndvegi.
Allar frekari upplýsingar veitir undirritaður:
Ólafur Jensson, Skúlagötu 40 - 804,
101 Reykjavík.
Símar: 561 9036 - 894 6456 Bréfsími: 561 9037
Netfang: olijens@isl.is
Starfshópur kannar áhrif
EES-samningsins á sveitarfélög
Utanríkisráðuneytið hefur komið á fót starfshópi
til þess að kanna áhrif EES-samningsins á íslensk
sveitarfélög.
Starfshópurinn skal fylgjast með þróun löggjafar
innan ESB, sem snertir málefni sveitar- og héraðs-
stjórna og kemur til með að falla undir ákvæði
EES-samningsins og gera stjórnvöldum grein fyrir
afleiðingum hennar fyrir íslensk sveitarfélög. Jafn-
framt er starfshópnum ætlað að fylgjast með því
sem er að gerast á sviði sveitar- og héraðsstjórnar-
mála hjá Evrópusambandinu og gera stjórnvöldum
og Sambandi íslenskra sveitarfélaga grein fyrir því.
í starfshópnum á sæti fulltrúi félagsmálaráðu-
neytisins, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins,
menntamálaráðuneytisins og umhverfisráðuneytis-
ins, auk utanríkisráðuneytisins sem hefur skipað
Björgvin Guðmundsson, sendifulltrúa í ráðuneyt-
inu, formann starfshópsins.
Af hálfu sambandsins hefúr Anna G. Björns-
dóttir, sviðsstjóri þróunarsviðs þess, verið tilnefnd í
starfshópinn en EES-mál falla undir það svið.