Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Blaðsíða 91
Erlend samskipti
Norræna sveitarstjómarráðsteíhan í
Esbo í Finnlandi 5.-7. maí
Norræna sveitarstjómarráð-
stefnan 2002 verður haldin í
menningarmiðstöðinni í Esbo,
útborg Helsinki, dagana 5.-7.
maí 2002, eins og sagt var frá í
2. tölublaði.
Meginumræðuefni ráðstefn-
unnar verða tvö. Annars vegar
mönnun stofnana sveitarfé-
laganna, einkum þjónustu-
stofnana, s.s. leikskóla,
dvalarheimila og hjúkrun-
arheimila aldraðra, og hins
vegar upplýsingatæknin.
Um fyrra dagskrárefnið
starfa Qórir umræðuhópar, í
þeim fyrsta verður rætt
hvemig unnt sé að fá fólk til
starfa á umönnunarstofn-
unum og hvernig hægt sé að
halda því. I öðrum verður
leitað svara við því hvernig
unnt sé að gera þessar
stofnanir meira aðlaðandi
sem vinnustaði og horft til
ungs fólks og þeirra sem
látið hafa af starfi sökum
aldurs. Rædd verður starfs-
mannastefna og vinnustaða-
lýðræði í því sambandi. í
þeim þriðja verður rætt um
breytta stjómunarhætti og í
fjórða hvaða áhrif vinnu-
aflsskorturinn hafi á starfsemi
sveitarfélaganna. Hvernig geta
þjónustustofnanir sveitarfélag-
anna staðist samkeppni einka-
rekstursins? Allt eru þetta spurn-
ingar sem virðast áleitnar hvar-
vetna á Norðurlöndunum.
Um síðara umræðuefnið fjalla
þrir umræðuhópar. í þeim fyrsta
verður rætt hvaða áhrif nýja
upplýsingatæknin hafi á þjón-
ustu sveitarfélaganna, samskipti
við íbúana og þróun lýðræðis, í
öðrum hópnum um rafræna sam-
skiptahætti og sjálfsafgreiðslu
íbúanna og í þeim þriðja um
uppbyggingu breiðbandskerfis
og notkun þess. Kynnt verður
hvernig Esbobær hagnýtir
nýjungar í upplýsingatækninni
og heimsóttir verða tæknigarðar
þar sem 30 þús. manns starfa. I
Esbo eru um 500 alþjóðleg fyrir-
tæki, þar á meðal Nokia.
Þátttakendum gefst kostur á
kynnisferð i Noux-þjóðgarðinn
og í Hagalund þar sem eru mörg
söfn.
Þátttökugjald á ráðstefnunni
verður 380 evrur eða um 42.500
ísl. krónur, gisting kostar
um 10 þús. ísl. krónur sól-
arhringurinn á mann og
flugfargjald til Helsingfors
og til baka kostar frá 40 til
65 þús. krónur eftir því
hvernig og hvenær ferðast
er.
Finnska sveitarfélaga-
sambandið sér um undir-
búning og framkvæmd ráð-
stefnunnar í samstarfi við
bæjarfélagið Esbo og önnur
sveitarfélagasambönd á
Norðurlöndum, þar á meðal
Samband íslenskra sveitar-
félaga.
Norræna sveitarstjórnar-
ráðstefnan er haldin annað
hvert ár. Ráðstefnan í Finn-
landi er sú níunda í röðinni.
Sú tíunda verður haldin hér
á landi árið 2004.
Nánari upplýsingar um
ráðstefnuna eru fáanlegar á
skrifstofu sambandsins. Dagskrá
hennar er einnig að finna á
heimasíðu sambandsins,
www.samband.is.
Þátttaka tilkynnist skrifstofu
sambandsins eigi síðar en 6.
mars.