Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Blaðsíða 94
Frá stjórn sambandsins
Sviðsstjórar þróunarsviðs
rekstrar- og útgáfiisviðs
Á fundi stjórnar sambandsins
hinn 21. júní voru ráðnir til sam-
bandsins tveir nýir starfsmenn,
Anna Guðrún Björnsdóttir,
sviðsstjóri þróunarsviðs, og
Magnús Karel Hannesson, sviðs-
stjóri rekstrar- og útgáfusviðs.
Jafnframt var sett á stofn hag- og
upplýsingasvið og er sviðsstjóri
þess Gunnlaugur Júlíusson, sem
áður var forstöðumaður hag-
deildar sambandsins, og lög-
fræði- og kjarasvið og er sviðs-
stjóri þess Sigurður Óli Kol-
beinsson, sem áður var forstöðu-
maður lögfræðideildar sam-
bandsins.
Breyting þessi var gerð í sam-
ræmi við nýtt starfsskipulag
sambandsins sem kynnt er á vef-
síðu þess, www.samband.is
Anna Guðrún Björnsdóttir,
sviðsstjóri þróunarsviðs
Anna Guðrún Björnsdóttir tók
til starfa sem sviðsstjóri þróunar-
sviðs sambandsins 1. október sl.
Hún er fædd 15. september
1956. Foreldrar hennar eru
Kristjana Bjarnadóttir sem lést
1990 og Björn Tryggvason, fv.
aðstoðarbankastjóri i Seðlabanka
íslands.
Anna lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1976, stundaði nám við Norræna
lýðháskólann í Biskops-Arnö
1979 og lauk embættisprófi í
lögfræði frá lagadeild Háskóla
íslands 1982. Hún var í náms-
dvöl í lagadeild danska dóms-
málaráðuneytisins í sex mánuði
á árinu 1992 og lauk 15 eininga
námi í opinberri stjórnsýslu og
stjórnun hjá Endurmenntunar-
stofnun Háskóla íslands 1999.
Anna starfaði sem lögfræð-
ingur í sjúkra- og slysatrygginga-
deild Tryggingastofnunar ríkis-
ins frá 1982-1984 og var fulltrúi
á lögmannstofú Sigurgeirs Sig-
urjónssonar hrl. frá 1984-1985.
Hún var fúlltrúi í siijalagadeild
dóms- og kirkjumálaráðuneytisins
Anna Guðrún Björnsdóttir.
Magnús Karel Hannesson.
Og
frá 1986-1989, ritari siljalaga-
nefndar frá 1988-1992, átti sæti
í sérfræðinganefnd Evrópuráðs-
ins um siijarétt frá 1987-1993
og var kjörin í vinnuhóp nefnd-
arinnar árið 1992. Anna var
skipuð deildarstjóri í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu 1989 og
gegndi því starfi til loka árs
1993. Sett sýslumaður á Hólma-
vík 1.-31. júlí 1993. Árin
1989-1992 hafði hún umsjón
með kirkjumálum í ráðuneytinu
og árið 1993 vann hún að mál-
efnum embætta sýslumanna og
héraðsdómstóla. Auk þess undir-
bjó hún á þessum árum fullgild-
ingu ýmissa alþjóðasamninga
sem snerta málaflokka dóms-
málaráðuneytisins, svo sem
samnings Sameinuðu þjóðanna
um réttindi barnsins. Anna var
skipuð deildarstjóri í félagsmála-
ráðuneytinu í lok árs 1993 og
gegndi því starfi til haustsins
1996. I félagsmálaráðuneytinu
vann hún að lögfræðilegum álits-
gerðum, lagafrumvörpum og
reglugerðum sem snerta flesta
málaflokka ráðuneytisins. Hún
var starfsmaður verkefnisstjómar
um reynslusveitarfélög frá upp-
hafi þar til hún lét af störfum í
ráðuneytinu haustið 1996. Hún
var ráðin bæjarritari og forstöðu-
maður fjármála- og stjórnsýslu-
sviðs Mosfellsbæjar og gegndi
því starfi þar til hún tók við
starfi sviðsstjóra þróunarsviðs
sambandsins 1. október sl.
Eiginmaður Önnu er Halldór
Gislason, arkitekt og forseti
hönnunardeildar Listaháskóla ís-