Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Side 96

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Side 96
Bækur og rit Frá skóla til atvinnulífs Félagsvísindastofnun Háskóla íslands hefur gefið út ritið Frá skóla til atvinnlífs eftir Gerði G. Óskarsdóttur, fræðslustjóra Reykj avíkurborgar. Á bakhlið ritsins segir svo um ritið: Hversu arðbært er það að stunda nám í framhaldsskóla? Hvaða gildi hefúr stúdentspróf í samanburði við starfsmenntun frá sjónarmiði einstaklinga og fyrirtækja? Eftir hvaða færni sækjast atvinnurekendur helst hjá ungum umsækjendum um starf? Menntun, arðsemi menntunar og mannauður eru í brennidepli í samfélagsumræðu nútímans. Um áratugaskeið hefur verið rætt um mikilvægi þess að auka starfs- menntun hér á landi og á síðustu árum hefúr brottfall nemenda úr framhaldsskóla valdið mönnum áhyggjum. Þessi umræða hefur þó ekki stuðst við niðurstöður rannsókna nema að litlu leyti, enda eru athuganir á tengslum menntunar og starfs fáar á ís- landi. Með þeim rannsóknum sem kynntar eru í þessari bók er reynt að bæta úr því. I bókinni eru tengsl menntunar og starfs skoðuð með hliðsjón af arðsemi menntunar fyrir ein- staklinga og fyrirtæki. Leitað er svara við spurningum urn tengsl menntunar við ýmsa þætti þegar út í atvinnulífið er komið, svo sem laun, kröfúr um færni og forgangsröðun umsækjenda við ráðningar. Auk þess er fjallað um væntingar nemenda við lok skyldunáms til náms og starfa, kynjamun og þjálfun í almenn- um starfsfærniþáttum i skóla. Gerður G. Óskarsdóttir lauk doktorsprófi í menntunarfræði frá Kaliforníuháskóla í Berkeley í Kaliforníu árið 1994. Hún var kennari og skólastjóri um árabil á grunnskóla- og framhalds- skólastigi, síðar kennslustjóri i kennslufræði við Háskóla Is- lands, en gegnir nú embætti fræðslustjóra Reykjavíkur. Bókin kostar 1980 krónur og fæst m.a. í Bókabúð Máls og menningar í Reykjavík. Vandamál eru bara verðug verkefni EJS er viðurkenndur „Cisco Premier Partner" sem er trygging þín fyrir háu þekkingar- og þjónustustigi þegar kemur að lausnum í nettengingum og netöryggi. í nútímarekstri fyrirtækja skiptir netkerfið sköpum. Það þarf að vera vel skipulagt og tryggja skilvirkni og öruggt upplýsingaflæði bæði innan og utan fyrirtækisins. EJS býður þjónustu í hæsta gæðaflokki þar sem ekki eru til vandamál - bara verðug verkefni. ClSCO SVSTEMS P A R T N E R PREMIER CERTIFIED EJS hf. + 563 3000 + www.ejs.is + Grensásvegi 10 + 108 Reykjavík

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.