Sveitarstjórnarmál - 01.04.2002, Page 18
Viðtalið
að tala um sjósókn þótt nokkrar trillur séu
í höfninni. Nokkur sjávarútvegsfyrirtæki
starfa þar engu að síður. Þorbjörn Fiskanes
í Grindavík er með umfangsmikla starf-
semi íVogum og hráefni er ekið frá öðrum
verstöðvum, einkum Grindavík. Fyrirtækið
íssalt starfar við fiskvinnslu íVogum og
hjá Sæbýli er unnið að sæsniglaeldi fyrir
Japansmarkað. Þá er fyrirtækið Silungur
starfrækt þar sem áður var starfsstöð Lind-
arlax. Tvö síðasttöldu fyrirtækin hafa verið
reist á starfsemi eldri rekstrar frá þeim
tíma að laxeldi var komið af stað hér á
landi af meiri krafti en forsjá fyrir all-
nokkrum árum. Ekki er hægt að segja að
landbúnaður sé stundaður íVatnsleysu-
strandarhreppi. Ekki í hefðbundnum skiln-
ingi. Þó eru tvö stór bú staðsett í sveitarfé-
laginu. Hænsnabúið Nesbú og svínabúið
á Vatnsleysu sem Þorvaldur Guðmundsson
í Síld og fiski stofnaði á sínum tíma en
aðrir hafa nú keypt. Nýverið var stálsmiðj-
an Normi flutt úr Garðabænum íVoga og
stendur eins og útvörður byggðarinnar við
Vogaafleggjarann skömmu áður en ekið er
inn íþorpið. Þar munu starfa á bilinu 15
til 25 manns þegar framleiðslan verður
komin að fullu í gang. Vilji er fyrir að
byggja upp frekari iðnað íVogum og að
koma upp iðnaðarhverfi við Vogaaf-
leggjarann.
Þjónustustörfin eru einkum bundin við
skólana og nú orðið eru ferðamálin farin
að kalla til sín fólk. Ein verslun er ÍVog-
um. Þjónustuverslun sem hefur rúman
opnunartíma. Enginn stórmarkaður hefur
verið opnaður þar en fólk sækir aðdrætti í
stærri verslanir í Reykjanesbæ og á höfuð-
borgarsvæðinu. Vogarnir hafa ekki farið
varhluta af breytingum á póstþjónustunni
og verður pósthúsinu lokað í vor eins og á
ýmsum öðrum smærri stöðum. Sparisjóð-
urinn í Keflavík hefur aftur á móti opnað
útibú ÍVogum en áður var enga banka-
þjónustu að hafa í byggðinni.
A skrifstofu Vatnsleysustrandarhrepps er
líkan af Vogum fyrri tíma. Þegar horft er á
þetta líkan er Ijóst að margt hefur breyst í
þessari byggð sem nú er í verulegri sókn.
Saga hennar nær nokkuð aftur fyrir næst-
síðustu aldamót en um 1890 voru 757
Flest af því fólki sem flutt hefur ÍVogana að undanförnu kemur af höfuðborgarsvæðinu.
manns búandi í Vatnsleysustrandarhreppi
sem þá var töluvert fjölmennari en Kefla-
vík og Grindavík til samans. Þá var þétt
byggð meðfram allri strandlengjunni og
gert út frá hverju koti enda stutt í fengsæl
fiskimið. Sagan segir að á vertíðum hafi
verið allt að 2.000 manns íVogunum. Um
1940 var byggð höfn og vaknaði mikið líf
í kringum hana. Útgerð varð þá helsti at-
vinnuvegurinn. Jóhanna Reynisdóttir segir
að höfnin geti ekkert síður nýst til ferða-
mála en útræðis. Þar sé kjörin aðstaða fyr-
ir fólk með trillur og sportbáta sem það
nýti að sumrinu. Þá má geta þess að á
síðustu misserum hefur verið unnið að
byggingu varnargarðs til austurs frá hafn-
arsvæðinu sem meðal annars er ætlað að
skýla byggðinni fyrir vindum og sjávar-
gangi.
77/ marks um þá grósku og uppbyggingu sem verið
hefur í Vogum á Vatnsleysuströnd að undanförnu
má nefna að verð á fasteignum hefur hækkað um
allt að 48% frá árinu 1990 og er verð á eignum
orðið sambærilegt við Reykjanesbæ. „Fólk er þvf
ekki að fjárfesta í verðlausum eignum, “ segir jó-
hanna Reynisdóttir sveitarstjóri. Jóhanna er hér við
íþróttahúsið, sem sagt er frá f viðtalinu.
Athvarf eftir vinnu
Til marks um þá grósku og uppbyggingu
sem verið hefur íVogum áVatnsleysu-
strönd að undanförnu má nefna að verð á
fasteignum hefur hækkað um allt að 48%
frá árinu 1990 og er verð á eignum orðið
sambærilegt við Reykjanesbæ. „Fólk er
því ekki að fjárfesta í verðlausum eign-
um," segir Jóhanna Reynisdóttir og leggur
áherslu á orðin. Hún segir mikla bjartsýni
ríkja íVogunum. Markaðsátakið hafi geng-
ið vonum framar og skilað því sem til var
ætlast. Hún segir tvöföldun Reykjanes-
brautar mikilvæga framkvæmd fyrir
byggðina íVogum. „Við höfum byggt
hana öðrum þræði sem íbúabyggð þar
sem fólk getur notið rólegheita og átt sér
athvarf eftir vinnu þótt við verðum einnig
að leggja áherslu á atvinnumál. Bættar
samgöngur eru því ein grundvallarfor-
senda starfs okkar."
18