Sveitarstjórnarmál - 01.04.2002, Blaðsíða 30
Sveitarstjórnarkosningar
Kosið í 105 sveitarfélögum í vor
Sveitarfélögin í landinu verða 19 færri í kosningunum í maí en þau voru 1998. Þeim
hefur fækkað með sameiningum á þessu ári og í fyrra, nú síðast með sameiningum í
Strandasýslu og Rangárvallasýslu. Niðurstaðan er því sú að í vor verður kosið í 105
sveitarfélögum en fyrir fjórum árum voru þau 124.
Til upprifjunar fylgir hér samantekt yfir
þau sveitarfélög sem hafa sameinast á yfir-
standandi kjörtímabili en þessar upplýs-
ingar má finna á heimasíðu félagsmála-
ráðuneytisins. í svigum er fjöldi sveitarfé-
laga í landinu eftir viðkomandi samein-
ingu.
• Þann 1. janúar 2001 tók gildi sam-
eining Glæsibæjarhrepps, Skriðu-
hrepps og Öxnadalshrepps, í um-
dæmi sýslumannsins á
Akureyri. Hið sameinaða
sveitarfélag hlaut nafnið
Hörgárbyggð (122).
• Þann 4. apríl 2001 var
samþykkt í atkvæða-
greiðslu sameining Engi-
hlíðarhrepps og Blöndu-
ósbæjar, í umdæmi
sýslumannsins á Blöndu-
ósi (121).
• Þann 3. nóvember 2001
var samþykkt í atkvæða-
greiðslu sameining Bárð-
dælahrepps, Hálshrepps,
Ljósavatnshrepps og
Reykdælahrepps, í um-
dæmi sýslumannsins á
Húsavík (118).
• Þann 17. nóvember
2001 var samþykkt í at-
kvæðagreiðslu sameining
Austur-Eyjafjallahrepps,
Vestu r- Eyj afj a 11 ah repps,
Austur-Landeyjahrepps,
Vestur-Landeyjahrepps, Fljótshlíðar-
hrepps og Hvolhrepps, í umdæmi
sýslumannsins á Hvolsvelli (113).
• Þann 28. desember 2001 staðfesti
ráðherra tillögu nefndar, sem skipuð
var skv. 89. gr. sveitarstjórnarlaga,
um sameiningu Vindhælishrepps og
Skagahrepps, í umdæmi sýslumanns-
ins á Blönduósi (112).
Þann 19. janúar 2002 var samþykkt
í atkvæðagreiðslu sameining Gnúp-
verjahrepps og Skeiðahrepps, í um-
dæmi sýslumannsins á Selfossi (111).
Þann 17. nóvember2001 fór fram
atkvæðagreiðsla um sameiningu
Biskupstungnahrepps, Grímsnes- og
Grafningshrepps, Laugardalshrepps
og Þingvallahrepps, í umdæmi sýslu-
mannsins á Selfossi. Tillaga um sam-
einingu var felld í Grímsnes- og
Grafningshreppi en samþykkt í hin-
um þremur sveitarfélögunum. Sveit-
arstjórnir Biskupstungnahrepps,
Laugardalshrepps og Þingvallahrepps
hafa nú ákveðið að sameina sveitar-
félögin þrjú í eitt sveitarfélag, með
vísan til heimildar í 2. mgr. 91. gr.
sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998 (109).
• Þann 9. mars var samþykkt í at-
kvæðagreiðslu sameining Reykja-
hrepps og Húsavíkurkaupstaðar, í
umdæmi sýslumannsins á Húsavík
(108).
• Þann 16. mars 2002 fór fram at-
kvæðagreiðsla um sameiningu Holta-
og Landsveitar, Rangárvalla-
hrepps, Djúpárhrepps og Ása-
hrepps. Sameining hreppanna
var samþykkt í þremur hreppum
af fjórum, en íbúar Ásahrepps
höfnuðu sameiningunni. Sveit-
arstjórnir Holta- og Landsveitar,
Rangárvallahrepps og Djúpár-
hrepps hafa ákveðið að sam-
eina sveitarfélögin þrjú í eitt
sveitarfélag með vísan til heim-
ildar í 2. mgr. 91. gr. sveitar- '
stjórnarlaga nr. 45/1998 (106).
• Þann 17. apríl staðfesti félags-
málaráðherra sameiningu
Hólmavíkurhrepps og Kirkju-
bólshrepps. Sameiningin er
gerð á grundvelli 6. gr. sveit-
arstjórnarlaga, nr. 45/1998,
en þar er kveðið á um að fé-
lagsmálaráðherra skuli eiga
frumkvæði að því að sameina
sveitarfélag sem hefur haft
færri en 50 íbúa þrjú ár í röð
við nágrannasveitarfélag.
íbúafjöldi í Kirkjubólshrepp
hefur verið undir þessum
mörkum. (105).
Upplýsingar um sameiningarmál sveitar-
félaga er að finna á kosningavef
félagsmálaráðuneytisins,
www. kosningar2002. is.
í vor verður kosið í 105 sveitarfélögum. Þessi mynd er tekin í sveitarstjórnarkosn-
ingunum 1998.
30