Sveitarstjórnarmál - 01.04.2004, Side 5
Forystugrein
Betri grunnskóli
Þegar þjónustuverkefni eins og grunn-
skólinn hafa verið færð yfir til sveitarfé-
laga hafa röksemdirnar yfirleitt verið
þær að sveitarfélög séu betur í stakk
búin til að veita íbúum sínum slíka al-
menna nærþjónustu vegna þekkingar
sinnar á staðbundnum aðstæðum og
viðhorfum. Þau séu, vegna návígis við
íbúa, í betri stöðu en ríkið til að laga
þjónustu að þörfum og óskum íbúanna
og hafi, vegna þekkingar sinnar á að-
stæðum, forsendur til að veita þjónust-
una á hagkvæmari hátt. Til að geta nýtt
sér þessar forsendur þurfa sveitarfélögin
rúmt athafnafrelsi þannig að unnt sé að
mæta staðbundnum aðstæðum og við-
horfum. Það á við alla málaflokka og
ekki síst um rekstur og starfrækslu
grunnskólans.
Frá því að grunnskólinn fluttist yfir til
sveitarfélaga hafa ekki verið gerðar
neinar grundvallarbreytingar á þeim
lagaramma sem að honum snýr. Raunar
má færa að því rök, að við flutning
grunnskólans hafi verið haft að ieiðar-
Ijósi að gera ekki aðrar breytingar á
þeim lögum sem móta starfsemi hans
en þær sem óhjákvæmilegar voru vegna
flutningsins sjálfs. Það helgaðist fyrst og
fremst af því að óneitanlega gætti nokk-
urrar tortryggni og vantrúar af hálfu full-
trúa ríkisins og stéttarfélaga á því að öll
sveitarfélög gætu valdið þessu mikla
verkefni.
Flutningur málaflokksins hafði þó í
för með sér ýmsar breytingar á starfsemi
grunnskólans, einkum vegna þess að
stjórnskipulag sveitarfélaga er með öðr-
um hætti en ríkisins. Hjá sveitarfélögum
er fulltrúalýðræði og kjörnir fulltrúar
íbúa koma með beinum hætti að stjórn
sveitarfélagsins, þar á meðal starfsemi
og rekstri grunnskólans. Það hefur með-
al annars haft áhrif á stöðu skólastjóra
og annarra ráðinna stjórnenda grunn-
skóla.
Grunnskólinn tekur til sín mikla fjár-
muni og Ijóst er að mörg sveitarfélög
hafa lagt fram fjármagn til þróunar og
nýbreytni í málefnum grunnskólans og
rekstri hans langt umfram lagalegar
skyldur. Rúmlega 50% af tekjum sveit-
arfélaganna fara til reksturs grunnskól-
ans og langstærsti kostnaðarliðurinn er
launakostnaður. Svigrúmi sveitarfélaga
til launahækkana í þessum málaflokki
eru takmörk sett, eins og í öðrum starfs-
greinum. Kjarasamningarnir hafa ekki
aðeins áhrif á útgjöld sveitarfélaga held-
ur móta þeir einnig að nokkru leyti
starfsemi grunnskólanna. Síðustu kjara-
samningarvið Kennarasamband Islands
fólu í sér grundvallarbreytingar á kjara-
umhverfi kennara og höfðu líka í för
með sér breytingar á hlutverki skóla-
stjóra.
Þjóðfélagið gerir ríkar kröfur til þess
að sveitarfélögin starfræki metnaðarfull-
an grunnskóla og að þeir fjármunir sem
til hans eru veittir séu vel og skynsam-
lega nýttir. Sveitarfélögin eru vel með-
vituð um þá tvíþættu ábyrgð sína. Þegar
sveitarfélögin yfirtóku allan reksturs-
kostnað grunnskólans frá ríkinu var
löngu Ijóst að tímabært var að taka til
hendinni í þeim málafiokki og það hafa
sveitarfélögin gert. Enduruppbygging og
umbreyting grunnskólans í víðum skiln-
ingi var óhjákvæmileg, bæði vegna
krafna tímans og viðhorfs foreldra.
Fáum blandast lengur hugur um að
færsla þessa nærþjónustuverkefnis yfir
til sveitarfélaganna hafi verið rétt og
skynsamleg og að eftir þá verkefna
tilfærslu sé nú starfræktur metnaðarfyllri
og betri grunnskóli.
ÞórÖur Skúlason
framkvæmdastjóri
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Útgefandi:
Samband íslenskra sveitarfélaga
Háaleitisbraut 11-13 • 108 Reykjavík • Sími: 515 4900
samband@samband.is • www.samband.is
Ritstjórar:
Magnús Karel Hannesson (ábm.) • magnus@samband.is
Bragi V. Bergmann • bragi@fremri.is
Ritstjórn:
Fremri kynningarþjónusta • Furuvöllum 13 • 600 Akureyri
Sími 461 3666 • fremri@fremri.is
Blaðamenn:
Þórður Ingimarsson • thord@itn.is
Haraldur Ingólfsson ■ haraldur@fremri.is
Auglýsingar:
P. j. Markaðs- og auglýsingaþjónusta
Símar: 566 8262 & 861 8262 • pj@pj.is
Umbrot og prentun:
Alprent • Glerárgötu 24 • 600 Akureyri
Sími 462 2844 • alprent@alprent.is
Dreifing:
íslandspóstur
Forsíðan: Forsíðumyndin er frá afmælishátið Grindavíkurbæjar. Fremst á mynd-
inni má sjá Guðberg Bergsson, rithöfund og heiðursborgara, Sigrúnu Guð-
mundsdóttir fyrrverandi kennara og frænku Guðbergs, Asu Ólafsdóttir, eigin-
konu Ólafs Arnar Ólafssonar bæjarstjóra og Ólaf Örn Ólafsson.
Tímaritið Sveitarstjórnarmál kemur út mánaðarlega,
að undanskildum júlí- og ágústmánuði. • Askriftarsíminn er 461 3666
TOLVUMIÐLUN
SFS
www.tm.is
S