Sveitarstjórnarmál - 01.04.2004, Blaðsíða 6
Fréttir
Ekki talið úr einum potti
í tengslum við átak til eflingar sveitar-
stjórnarstigsins og væntanlegar atkvæða-
greiðslur um sameiningu sveitarfélaga hef-
ur meðal annars komið oft upp í umræð-
unni spurningin um aðferðafræði við taln-
ingu atkvæða í sameiningarkosningum.
Stefna hefur verið mörkuð varðandi þá að-
ferðafræði með frumvarpi til laga um
breytingar á gildandi sveitarstjórnarlögum
nr. 45/1998 sem Árni Magnússon félags-
málaráðherra hefur kynnt.
Efni frumvarps félagsmálaráðherra er
annars tvíþætt. Auk bráðabirgðaákvæða
um atkvæðagreiðslurnar er þar að finna
ýmis ákvæði sem ætlað er að sníða van-
kanta af gildandi sveitarstjórnarlögum.
Endurtekning við ákveðnar
aðstæður
Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir
að sveitarfélög verði ekki sameinuð nema
íbúar beggja eða allra sveitarfélaganna
séu því fylgjandi. í frétt á heimasíðu átaks-
ins er sagt frá því að það nýmæli sé þó að
finna í frumvarpinu að við ákveðnar að-
stæður verði gert ráð fyrir að skylt verði
að endurtaka atkvæðagreiðslu innan sex
vikna. Þetta gildir ef meirihluti þeirra íbúa
á viðkomandi svæði sem afstöðu taka til
tillögu sameiningarnefndar lýsir sig fylgj-
andi sameiningu þeirra sveitarfélaga sem
tillagan varðar og meirihluti íbúa í að
minnsta kosti tveimur þessara sveitarfélaga
samþykkir tillöguna. Sama kjörskrá skal
gilda við báðar atkvæðagreiðslur en þessi
breyting felur það í sér að íbúar sem í
upphafi eru mótfallnir sameiningu eiga
þess kost að endurskoða þá afstöðu sína í
Ijósi breyttra aðstæðna, svo sem ef útlit er
fyrir að nágrannasveitarfélög muni sam-
einast eða fylgi við sameiningu reynist
meira en búist var við. Að lokinni síðari
atkvæðagreiðslu geta sveitarstjórnir sveit-
arfélaga þar sem sameiningartillaga var
samþykkt ákveðið sameiningu þessara
sveitarfélaga. Þetta verður þó ekki gert
nema um sé að ræða að minnsta kosti 3/5
þeirra sveitarfélaga sem tillaga sameining-
arnefndar varðar og í þeim sveitarfélögum
búi að minnsta kosti 3/5 íbúa á því svæði.
Gilda ekki á árinu 2004
Gert er ráð fyrir því að lögin öðlist þegar
gildi en að ákvæði 7. greinar, sem fjallar
um átak til eflingar sveitarstjórnarstigsins,
komi ekki til framkvæmda gagnvart sveit-
arfélögum sem þegar eru í sameiningar-
viðræðum og hyggja á kosningar um þær
tillögur á árinu 2004. Þetta felur meðal
annars í sér að ekki verði skylt að endur-
taka atkvæðagreiðslu sem fram fer fyrir
31. desember 2004.
Keppt um hönnun menningarhúss
Akureyrarbær og menntamálaráðuneytið
hafa sett af stað hönnunarsamkeppni um
byggingu menningarhúss á Akureyri.
Áætlað er að húsið verði tekið í notkun í
maí 2007.
Miðað er við að keppnistillögum verði
skilað inn eigi síðar en 5. júlí í sumar og
er ráðgert að dómnefnd kunngeri niður-
stöður sínar 28. ágúst.
Verðlaunafé í samkeppn-
inni er samtals átta millj-
ónir króna. Þar af eru 4,0
milljónir í 1. verðlaun,
2,5 milljónir í 2. verðlaun
og 1,5 milljónir í 3. verð-
laun en að auki hefur
dómnefndin heimild til
innkaupa á keppnistillög-
um fyrir allt að 1,5 millj-
ónir króna.
Fjölnota
menningarhús
í menningarhúsinu er gert
ráð fyrir að verði stór tón-
listarsalur, fjölnota salur
og anddyri ásamt forsal, þar sem verða
mun upplýsingamiðstöð fyrir gesti og
ferðamenn. Þá eru áform um að á lóð
menningarhússins verði síðar byggður tón-
listarskóli sem tengist menningarhúsinu.
Gert er ráð fyrir að 500 manns geti rúmast
í forsalnum og að í húsinu verði einn stór
tónlistarsalur með sæti fyrir um 500
áheyrendur. Auk tónleikahalds af ýmsum
stærðum er gert ráð fyrir að í aðalsalnum
verði hægt að flytja söngleiki, óperur og
setja upp stórar leiksýningar. Jafnframt er
miðað við að hljómburði salarins megi
breyta þannig að hann geti hentað fyrir
talað orð, leikverk og ráðstefnuhald.
Kostnaöur áætlaður um
1.200 milljónir
Gert er ráð fyrir að byggingarnefndarteikn-
ingum skuli skilað í mars 2005, útboð
vegna framkvæmda verði í
ágúst 2005 og að húsið
verði tekið í notkun í maí
2007. Framkvæmdakostn-
aður (verktakakostnaður)
ásamt kostnaði vegna
hönnunar er áætlaður um
800 milljónir króna. Kostn-
aður við verkið allt er
áætlaður liðlega 1.200
milljónir króna en auk
framkvæmdakostnaðarins
er gert ráð fyrir að búnaður
vegna tónlistar, sýninga og
annarra viðburða í húsinu
muni kosta 270-300 millj-
ónir króna og að kostnað-
ur vegna opinberra gjalda,
eftirlits og umsjónar geti numið allt að
130 milljónum króna.
Loftmynd af svæðinu á mótum Strandgötu og Drottningarbrautar þar sem menningarhús
mun rfsa.
6