Sveitarstjórnarmál - 01.04.2004, Side 16
Grindavíkurbær
Höfum dregið fiskinn undan steini
Grindvíkingum hefur fjölgað um nær 2% á ári að undanförnu. Veltufé bæjarfélagsins af rekstri er
áætlað um 13% á þessu ári og nú er verið að ráðast í skipulagningu nýrrar íbúðabyggðar í bænum.
Um 130 íbúðir hafa verið byggðar í
Grindavíkurbæ á undanförnum þremur
árum og flestum lausum lóðum verið
ráðstafað. Verið er að Ijúka við svonefnt
Vallahverfi í norðurjaðri bæjarins og
vegna fyrirhugaðra byggingafram-
kvæmda mun vinna við nýtt deiliskipu-
lag hefjast á næstunni. Að sögn Ólafs
Arnar Ólafssonar bæjarstjóra er þarna
verulegt byggingarland í norður frá nú-
verandi byggð sem ætlunin er að
deiliskipuleggja og nýta til bygginga á
komandi árum. En Grindvíkingar byggja
víðar en til norðurs og fyrir nokkru var
haldið reisugildi í fyrsta íbúðarhúsinu
sem rís í svonefndu Lautahverfi, skammt
frá eldri hluta bæjarins. Þar er ætlunin
að byggja 10 til 15 einbýlishús og fimm
raðhús, auk leikskóla, sem leysa á eldri
leikskóla Grindavíkurbæjar af hólmi.
Auk eldri leikskólans er nýlegur leikskóli
starfræktur í Grindavík og er hann
svokölluð einkaframkvæmd en bæjarfé-
lagið leigir aðstöðu og rekstur. Ólafur
Örn segir það fyrirkomulag hafa reynst
vel og engin vandamál komið upp eins
og stundum hafi gerst þar sem leikskóla-
starf er rekið með þessum hætti. Nú er
verið að undirbúa framkvæmdir við dýpkun Grindavíkurhafnar,
sem áætlað er að muni kosta rúmar 120 milljónir króna, og
áformað er að hefja endurbætur á varnargarðinum við loðnuverk-
smiðjuna á næsta ári.
Veltufé frá rekstri 13 til 14%
Samkvæmt fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar er veltufé frá rekstri
bæjarsjóðs áætlað 13-14% á
þessu ári og gert er ráð fyrir að
greiða skuldir niður um 50-60
milljónir króna. Ólafur Örn
segir að þótt fjármál bæjarfé-
lagsins séu í góðu lagi fari ekki
hjá því að menn verði varir við
aukna erfiðleika við að ná
endum saman. Verkefni sveit-
arfélaganna aukist án þess að
nægjanlegir tekjumöguleikar komi á móti. Hann kveðst taka und-
ir með starfsfélögum sínum víða um land að endurskoða verði
tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Slík endurskoðun sé grund-
völlur þess að sveitarfélögin geti annast fleiri verkefni og bætt
þjónustu við íbúana. Ólafur Örn segir
Ijóst að umhverfismálin muni kosta bæj-
arfélagið verulega fjármuni á næstunni
effylgja eigi reglum Evrópusambandsins
um skólphreinsun út í æsar. „Mér finnst
fráleitt að neyða sveitarfélögin til þess
að fara eftir þessum reglum í hvívetna
án þess að taka tillit til aðstæðna á
hverjum stað. Úthafið er svo stór viðtaki
að hér er nánast engin mengun önnur
en sú sem kemur annars staðar frá, það
er plast og aðrir hlutir sem reka á fjörur
hér eins og annars staðar. En við búum
við það að hafa þessa kröfu á bakinu og
hún mun eiga eftir að kosta mörg sveit-
arfélög verulega fjármuni sem þau hafa
ekki handbæra. Okkur finnst skorta að
gerðar séu ákveðnar mengunarmælingar
þannig að við höfum einhverjar þekktar
stærðir til þess að ganga út frá."
Ólafur Örn segir að næstu skref
Grindvíkinga í frárennslismálum verði
að koma frárennslinu í eina útrás og
koma upp búnaði til grófhreinsunar.
Varðandi kostnaðarliði sveitarfélagsins
bendir hann einnig á rekstur grunnskól-
ans. Hann segir að tekjur og gjöld hafi
haldist nokkurn veginn í hendur fram til
ársins 2001 en eftir það hafi misræmið farið að aukast. „Um þær
mundir hækkuðu laun kennara umtalsvert og kennsla var aukin.
Einsetning grunnskólans kostaði mörg sveitarfélög einnig veruleg-
ar fjárhæðir vegna húsbygginga. Öll þessi mál áttu rétt á sér en
sveitarfélögin hafa aftur á móti ekki getað aukið tekjur sínar til
þess að standa undir þessum aukna kostnaði og því orðið að taka
hann frá öðrum rekstri og starfsemi. Okkur finnst óeðlilegt að rík-
isvaldið skuli standa fyrir setn-
ingu laga sem krefjast veru-
legra útgjaida af sveitarfélög-
unum án þess að þau hafi
neitt um það að segja og neitt
sé gert til þess að bæta þeim
þann aukna kostnað sem af
þessum lagasetningum kann
að leiða. Á því þarf að verða
breyting."
Sóknarfæri í ferðamálum
Grindvíkingar hafa lagt áherslu á ferðamálin að undanförnu.
Ólafur Örn segir að talsvert hafi verið unnið við merkingu staða
Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri.
„Ég tel nauðsynlegt að Suðurstrandarvegur nái
ekki aðeins til Grindavíkur heldur alveg út á
Reykjanesið vegna þess að með því myndi opnast
ákveðin hringleið frá höfuðborgarsvæðinu um
Reykjanes."
Ö
TOLVUMIÐLUN
H-Laun
www.tm.is
16