Sveitarstjórnarmál - 01.04.2004, Side 17
og gönguleiða og einnig við útgáfu kynningarefnis og auglýsinga.
Ekki megi gleyma Bláa lóninu, einu stærsta ferðaþjónustufyrir-
tæki á svæðinu, sem er í aðeins um fimm kílómetra fjarlægð frá
miðju bæjarins. Hann segir þróun þess stórkostlegt ævintýri sem
eigi upptök sín í borun eftir heitu vatni í Svartsengi. „Grindavík-
urbær hafði forgöngu um þetta mál fyrir um þremur áratugum og
ævintýrið hófst eftir að sveitarfélögin á Reykjanesi fengust, auk
ríkisins, til þess að koma að þessu verkefni sem síðan varð til
þess að Hitaveita Suðurnesja
var stofnuð. Bláa lónið þróað-
ist upp úr hitaveitufram-
kvæmdunum og fyrsti bað-
staðurinn var opnaður 1987.
Síðan hefur starfsemin vaxið
hröðum skrefum og snýst nú
um rekstur baðstaðarins, veit-
ingarekstur og starfsemi lækn-
ingamiðstöðvar fyrir psoriasis-
sjúklinga. Þá má geta þess að
nú er hafin framleiðsla á ýms-
um heilsuvörum á vegum
Bláa lónsins."
Ólafur Örn segir að þótt
ýmsu hafi verið áorkað bfði
önnur sóknarfæri í ferðamál-
unum. Sum þeirra felist í
byggingu Suðurstrandarvegar.
Hann segir að þótt Grindavík-
urbær sé í góðu vegasambandi
um Reykjanesbraut myndi
Suðurstrandarvegur skapa nýja tengingu við Ölfus og aðrar
byggðir á Suðurlandi. „Bygging þessa vegar er kappsmál fyrir
Grindvíkinga og raunar allar byggðir á Reykjanesi. Við eigum
margt sameiginlegt með byggðunum fyrir austan og þá einkum
Þorlákshöfn, sem er útvegsbær eins og Grindavík. Með Suður-
strandarvegi myndu opnast möguleikar á samstarfi á sviði sjávar-
útvegs og einnig ferðaþjónustu. Ég tel nauðsynlegt að Suður-
strandarvegur nái ekki aðeins til Grindavíkur heldur alveg út á
Reykjanesið vegna þess að með því myndi opnast ákveðin hring-
leið frá höfuðborgarsvæðinu um Reykjanes og til baka auk þess
að með vegtengingu við Ölfusið, og þar með Suðurland, myndu
skapast margvísleg sóknarfæri og möguleikar í ferðaþjónustu."
Fiskur undan steini
Á áttunda áratug liðinnar aldar var ákveðið að gera kvikmynd um
menningarlíf í sjávarbyggð og varð Grindavík fyrir valinu þegar
leitað var að stað til efnisfanga. Myndin bar heitið „Fiskur undir
steini" og varð umdeild vegna þess að ýmsum fannst að hallað
væri á íbúa og mannlíf á staðnum. Þótt ýmislegt hafi þar verið
fært í stíl til þess að vekja umræður þá hafa margir orðið sam-
mála um að áhrifa þessar myndar gæti ekki aðeins í Grindavíkur-
bæ heldur vfða í byggðum landsins. Þótt sterkum dráttum hafi
verið brugðið á loft má leiða líkur að því að umfjöllunin hafi
hvatt menn og þannig orðið til þess að kveikja líf og efla menn-
ingarstarf í byggðum sem gjarnan hefur tengst ferðaþjónustu með
einhverju móti. í því efni eru Grindvíkingar engir eftirbátar
annarra því fyrir tveimur árum byggðu þeir veglegt menningarset-
ur í bænum sem tengist saltfiskvinnslunni, höfuðatvinnuvegi
þeirra í gegnum árin. Ólafur Örn segir að Saltfisksetur íslands sé
eitt mesta framtak sem farið hefur verið í varðandi ferðamálin f
Grindavíkurbæ. Saltfisksetrið er móttöku- og samkomustaður þar
sem dregin er upp skýr mynd af þessum höfuðatvinnuvegi og
spannar sýningin feril saltfisksins allt frá öngli og möskva til sölu-
bása á torgum suðrænna landa. Auk menningarsetursins hafa
íbúar Grindavíkurbæjar tekið til hendi og eflt veitingarekstur
verulega. Allt að fimm veitingastaðir eru í bænum og þrífast hver
við annars hlið að sögn Ólafs Arnar. Veitingastaðirnir eru nokkuð
ólíkir og bjóða allt frá sérstaklega framreiddum sjávarréttum til
hefðbundins heimilismatar og skyndibita. Allir eiga þeir nokkuð
undir því að ferðaþjónustan eflist. Ólafur Örn segir tilvist Bláa
lónsins styrkja veitingastarfsemina. Fólk tengi ferðir á baðsvæðið
og veitingastaði. Heilsusvæði og menningarsetur setji þannig svip
á Grindavfk auk fjölbreyttra veitingastaða. „Við eigum þetta ekki
allt myndinni að þakka en hún á sinn þátt f þessari þróun og þess
vegna var vel við hæfi að sýna hana hér í Grundavíkurbæ á af-
mælishátíðinni. Grindvíkingar hafa svo sannarlega dregið fiskinn
undan steini," segir Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri að lokum.
Ólafur Órn Ólafsson bæjarstjóri, Hallgrímur Bogason bæjarráðsmaður, Hörður Cuðbrandsson, forseti bæjarstjórnar, og
Ómar lónsson, formaður bæjarráðs.
SFS
TÖLVUMIÐLUN
www.tm.is
17