Sveitarstjórnarmál - 01.04.2004, Blaðsíða 20
Úr Saltfisksetrinu.
Sýningin er svo lifandi aö engu er líkara
en að fólkiö sé aö störfum.
Grindavíkurbær
Höfum ástæðu til bjartsýni
Hörður Guðbrandsson, forseti bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar, segir jákvæða þróun hafa átt sér stað
að undanförnu og ekkert bendi til annars en að hún muni halda áfram.
Grindavíkurbær hélt upp á 30 ára kaup-
staðarafmæli sitt 17. apríl sl. Raunveruleg-
ur afmælisdagur bæjarfélagsins er 10. apr-
íl en vegna páska var afmælishaldinu
frestað um viku. Hörður Guðbrandsson
segir að ákveðið hafi verið að efna til veg-
legrar afmælisdagskrár á þessum tímamót-
um þar sem meðal annars forseta íslands
var boðið að vera viðstaddur og Guðberg-
ur Bergsson rithöfundur var gerður að
heiðursborgara Grindavíkurbæjar.
Erum stoltir af Guðbergi
Guðbergur er annar einstaklingurinn sem
hlýtur heiðursborgaratitil í Grindavíkurbæ,
hinn er Svavar Árnason, sem lengi átti
sæti í sveitarstjórn og var oddviti til fjölda
ára. Svavar var gerður að heið-
ursborgara á 20 ára kaupstað-
arafmæli Grindavíkurbæjar.
Guðbergur er eins og kunnugt
er Grindvíkingur í húð og hár
og telja margir sig sjá fyrir-
myndir frá æskustöðvunum í
ritverkum hans fyrr og síðar. Guðbergur á
hús í Grindavík og dvelur þar öðru hverju.
Hörður Guðbrandsson segir ákvörðun
bæjarstjórnar um að gera hann að heið-
ursborgara tengjast ritstörfum hans. Grind-
víkingar séu stoltir af rithöfundi sínum og
menn geti verið samála um að hann eigi
að hljóta þennan titil á þessum tímamót-
um. Auk þess að veita Guðbergi heiðurs-
borgaratitil heiðraði bæjarstjórn þá björg-
unarsveitarmenn sem stóðu að frækilegri
björgun sjómanna af strandstað fyrr á
þessu ári.
Um 40% allrar
saltf iskframleiðslu
Eitt af atriðum afmælishátíðarinnar var
opnun sýningar á verkum Dóru Árna í
Saltfisksetrinu auk þess sem boðið var upp
á saltfisk og kaffiveitingar auk fleiri dag-
skráratriða. „Okkur fannst nauðsynlegt að
Um 40% af allri saltfiskframleiöslu hér á landi er í
Grindavík og tengslin við þennan atvinnuveg eru
og tengslin við þennan atvinnuveg eru því
ákaflega sterk," segir Hörður.
því ákaflega sterk.
tengja Saltfisksetrið hátíðarhöldunum með
veglegum hætti vegna þess að við erum
mjög stoltir af því. Um 40% af allri salt-
fiskframleiðslu hér á landi er í Grindavík
Vantar störf fyrir maka
Hörður segir að þó svo sterk tengsl séu á
milii saltfiskframleiðslunnar og atvinnulífs-
ins í Grindavíkurbæ þá eigi bæjarfélagið
sér margar stoðir. Sumar séu bein afleið-
ing af öflugum sjávarútvegi en aðrar skap-
ist af atvinnugreinum á borð við ferða-
þjónustu. „Hún hefur verið mjög vaxandi
að undanförnu og tengist að verulegum
hluta starfsemi Bláa lónsins og þeirri upp-
byggingu heilsuþjónustu og framleiðslu á
heilsuvörum sem þar á sér stað." Hörður
segir að stærstur hluti þeirra sem starfa við
Bláa lónið sé búsettur í Grindavíkurbæ og
í sumum starfsgreinum þar séu
um 80% starfsfólksins Grind-
víkingar. Þráttfyrir hina sterku
stöðu útgerðarinnar þá verði
ekki það sama sagt um hana
því margir af þeim sjómönn-
um sem starfa á stærstu fiski-
skipunum eigi heimili annars staðar. Að-
spurður segir Hörður meginskýringu þess
vera þá að makar þeirra hafi ekki getað
fengið störf við hæfi í bænum. „Það setur
20
Ö tölvumiðlun! H-Laun www.tm.is