Sveitarstjórnarmál - 01.04.2004, Blaðsíða 22
Viðtal mánaðarins
Samgöngumálin brenna á okkur
Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar í ísafjarðarbæ, segir samgöngumálin brenna á Vestfirðingum
enda séu góðar samgöngur ein af forsendum þess að vel takist til við uppbyggingu Vestfjarða. Vega-
kerfið í fjórðungnum sé enn langt á eftir öðrum landshlutum þótt stórir áfangar í vegabótum hafi
náðst á allra síðustu árum.
Birna Lárusdóttir hefur reynst ötull tals-
maður Vestfjarða eftir að hún hóf afskipti
af sveitarstjórnarmálum vestra. Birna er
Reykvíkingur, ættuð úr Háaleitishverfinu,
en fluttisttil ísafjarðar eftir að hafa lokið
háskólanámi í Bandaríkjunum. I tvö ár
starfaði hún sem fréttamaður á Svæðisút-
varpi Vestfjarða en þá lá leiðin til Noregs
þaðan sem rödd hennar varð lands-
mönnum kunn sem fréttaritari Utvarps.
Eftir heimkomuna bjó hún um skeið á
Þingeyri við Dýrafjörð ásamt sambýlis-
manni sínum og þar var henni boðið að
taka sæti á lista sjálfstæðismanna við
sveitarstjórnarkosningarnar í Isafjarðar-
bæ vorið 1998. Birna kveðst aldrei hafa
leitt hugann að þátttöku í stjórnmálum
áður en kom að þessum tímamótum í lífi
hennar.
Örlagaríkt spor
„Mér líkaði vel sú stefna sem sjálfstæðis-
menn í bæjarstjórn höfðu unnið eftir á
því kjörtímabili sem var þá að Ijúka og
ég var þeim sammála í veigamiklu máli
sem tengdist uppbyggingu Grunnskólans
á ísafirði. Hugmyndafræði Sjálfstæðis-
flokksins er mér að skapi og því var það að ég ákvað að slást í
hóp með sjálfstæðismönnum um framboð til bæjarstjórnar þegar
eftir því var leitað." Undirbúningur framboðsins gekk hratt fyrir
sig. Margt gerðist á stuttum tíma og þegar úrslit kosninganna lágu
fyrir var Birna orðin oddviti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn ísa-
fjarðarbæjar. „Þetta var örlagaríkt spor sem ég steig á vordögum
1998 og ég er hér enn."
Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar ísafjarðarbæjar.
Á við háskólapróf
Birna kveðst hafa tekið
ákvörðunina um að gefa kost
á sér til setu í bæjarstjórn með
hugarfari námsmannsins. Störf
að sveitarstjórnarmálum
myndu verða lærdómsrík. Hún segist ekki hafa farið villur vegar í
því efni og reynsla sín af fyrsta kjörtímabilinu í bæjarstjórn hafi
fyllilega jafnast á við háskólapróf. „Sveitarstjórnarmálin eru fjöl-
breytt. Þar er komið víða við og verkefnin bæði mörg og oft flók-
„Mér finnst skjóta skökku við að á meðan opinber-
um störfum fjölgar umtalsvert á landinu í heild þá
fækkar þeim stöðugt á okkar svæði."
in. Þau eru ekki alltaf skemmtileg en
þegar maður sér árangur af því sem
maður er að vinna að þá er gaman að
vera í pólitík."
Birna segir að sveitarstjórnarstarfið
hafi strax lagst vel í sig og reynslan af
búsetu erlendis hafi nýst sér vel. „Eg sá
fljótt hversu Islendingar búa í raun vel í
samanburði við þau lönd þar sem ég
þekki til þegar stjórnsýslan er annars
vegar. Nálægðin við hið opinbera er
miklu meiri hér sökum smæðar samfé-
lagsins. Þótt manni finnist að hlutirnir
mættu oft ganga hraðar fyrir sig þá er
stjórnkerfi okkar á margan hátt einfalt. í
Bandaríkjunum og í Noregi eru til
dæmis þrjú stjórnsýslustig og það fyrir-
komulag get ég á engan hátt séð fyrir
mér hér á landi."
Nauðsyn háskólakennslu
Þótt hefðbundin verkefni sveitarfélaga
séu hin sömu hvarvetna um landið þá
eru áherslur sveitarstjórnarmanna með
ýmsu móti og taka oft mið af þeim að-
stæðum sem eru á hverjum stað og
tíma. Birna Lárusdóttir segir einkum
tvennt brenna á íbúum ísafjarðarbæjar og raunar öllum Vestfirð-
ingum. Annars vegar atvinnu- og menntamálin og svo þarfnist
samgöngumálin skjótrar úrlausnar. Hún segir umræðuna um upp-
byggingu háskólanáms vera í deiglunni vestra og afar brýnt að
koma háskóla á fót á ísafirði. Á annað hundrað einstaklingar bú-
settir á Vestfjörðum séu í fjarnámi á háskólastigi og það sýni
glöggt þörfina fyrir staðbundið nám. Nýlega hafi verið haldin
ráðstefna á Isafirði þar sem
ræddir voru þeir möguleikar
sem eru fyrir hendi við upp-
byggingu háskólanámsins í
fjórðungnum. „Að sjáifsögðu
sýnist sitt hverjum um hvaða
útfærslur á háskóla séu skyn-
samlegastar. Menn eru hins vegar sammála um nauðsyn þess að
byggja upp sjálfstæða stofnun í héraði sem verði stjórnað af
heimamönnum í stað þess að vera útibú frá öðrum háskólum.
Það er grundvallaratriði."
22
tölvumiðlun H-Laun