Sveitarstjórnarmál - 01.04.2004, Page 26
Umhverfisfræðsluráð
Sýning á Degi umhverfisins
Umhverfisfræðsla stefnir að umhverfismennt sem gefur okkur þekkingu, skilning og dómgreind sem
gerir okkur kleift að lifa í sátt við náttúruna og byggja upp sjálfbært samfélag. Steinunn Guðna-
dóttir, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga í Umhverfisfræðsluráði umhverfisráðu-
neytisins, skrifar.
Umhverfisfræðsluráð stóð fyrir sýningu í
tilefni af Degi umhverfisins 25.apríl, helg-
ina 24.-25.apríl, þar sem fyrirtækjum og
fleirum stóð til boða að sýna ýmis konar
umhverfisvæna vöru og þjónustu, eða
kynna starf sitt í umhverfismálum á annan
hátt. Með þessu vonast Umhverfisfræðslu-
ráð til þess að efla áhuga neytenda á að
skipta við vistvæn fyrirtæki og láta sig um-
hverfissjónarmið varða í innkaupum og
daglegu lífi.
Styrktaraðilar ráðstefnunnar voru Alcan
á íslandi, Árvakur hf., útgáfufélag Morgun-
blaðsins, Hópbílar hf., Orkuveita Reykja-
víkur, Prentsmiðjan hjá Guðjóni Ó hf.,
Sorpa bs. og umhverfisráðuneytið.
Samráðsvettvangur
um umhverfisfræðslu
Umhverfisfræðsluráð er samráðsvettvang-
ur um umhverfisfræðslu fyrir almenning.
Ráðið er skipað af umhverfisráðherra til
þriggja ára í senn. Ráðið var fyrst skipað
árið 1998 og endurskipað 2001. Það er
skipað fulltrúum frá umhverfisráðuneyt-
inu, menntamálaráðuneytinu, Alþýðusam-
bandi íslands, Samtökum atvinnulífsins,
frjálsum félagasamtökum á sviði umhverf-
ismála, Námsgagnastofnun, Neytenda-
samtökunum, Kennaraháskóla íslands og
Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Markmið ráðsins er að vekja vitund al-
mennings um umhverfi sitt, gildi þess og
góðrar umgengni um það og fræða al-
menning um hvernig skuli umgangast um-
hverfið með tilliti til sjálfbærrar þróunar.
Hlutverk ráðsins er víðtækt, en það hefur
SVEtTARSTJÓRNAR MÁL
Rskriftarsfmi: 461 3666
Huglðsingasími: 861 8262
Steinunn Cuönadóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.
takmörkuð fjárráð og engan starfsmann.
Að þeim forsendum gefnum hefur ráðið
fremur viljað vinna að fáum afmörkuðum
verkefnum, en að dreifa kröftunum um of.
Umhverfisfræðsluráðið hefur staðið fyr-
ir eftirtöldum ráðstefnum: Lykill að sjálf-
bærri þróun, Að nema af náttúrunni, Um-
hverfismennt fyrir alla, Leikskólinn grunn-
urinn að umhverfismennt. Allar rástefnur
ráðsins hafa verið mjög vel sóttar, sem
sýnir að mikill áhugi er á málefninu.
Umhverf isvef ur
Ráðið stóð að könnun á umhverfismennt í
framhaldsskólum í samstarfi við Samlíf.
Skólarnir sem svöruðu eru að kenna um-
hverfismennt og eru í tengslum við aðila
utan skólans. Hægt er að finna umhverfis-
stefnu á heimasíðum sjö framhaldsskóla.
Umhverfisvefurinn umvefur.is var settur á
fót af hálfu umhverfisfræðsluráðsins og
hefur verið betrumbættur. Þá var gerður
samningur við Vísindavef Háskóla íslands
um gerð efnis með spurningum og svörum
um umhverfismál sem birtist á Umhverf-
isvefnum. Vefurinn er hýstur hjá Umhverf-
isstofnun. Eftirfarandi vefir eru hýstir undir
merki Umhverfisvefsins: Tengslasafn, sem
hefur að geyma efnisflokkaðar tengingar
við yfir 200 íslenska vefi um umhverfis-
mál. Orðasafn, útskýringar á hugtökum og
orðum um umhverfismál. Safnavefur, sem
er ítarleg skrá yfir söfn um náttúrufræði og
atvinnuhætti á íslandi. Einnig er að finna á
vefnum nokkrar lykilslóðir: idan.is - at-
vinnulíf og umhverfi, Staðardagskrá 21, ís-
lensk umhverfissamtök, umhverfisráðu-
neytið; menntamálaráðuneytið, solskin.is -
vefur um náttúrufræði.
Þá er einnig að finna á vefnum umfjöll-
un um ráðstefnur umhverfisfræðsluráðs.
Nú vinnur umhverfisfræðsluráð að því
að safna saman þeim fyrirtækjum á land-
inu sem á einhvern hátt sinna umhverfis-
málum. Verður sá fyrirtækjavefur síðan
settur undir umvefur.is, en staðið var að
söfnun á vefinn og hann jafnframt kynntur
í Smáralind á sýningunni 24.-25. apríl sl. í
Smáralind.
Umhverfisfræðsla stefnir að umhverfis-
mennt sem gefur okkur þekkingu, skilning
og dómgreind sem gerir okkur kleift að
lifa í sátt við náttúruna og byggja upp
sjálfbært samfélag.
Umhverfisfræðsluráð og fulltrúar stofn-
ana þess er tilbúið til þess að skoða allar
góðar hugmyndir að samstarfsverkefnum
og hvetur til þess að hafa samband við
formann ráðsins Ingibjörgu Ólafsdóttur,
starfsmann hjá umhverfisráðuneytinu.
Allar nánari upplýsingar um um-
hverfisfræðsluráð er að finna á heimasíðu
umhverfisráðuneytisins.