Sveitarstjórnarmál - 01.04.2004, Qupperneq 28
Borgarfjörður
Fórum ekki
of snemma af stað
Helga Halldórsdóttir, forseti bæjarstjórnar Borgarbyggðar, segir Borgfirðinga ekki hafa farið of
snemma af stað þótt hugmyndir þeirra um sameiningu hafi verið komnar fram áður en sameiningar-
átak Sambands íslenskra sveitarfélaga var kynnt.
Formlegt starf sveitarstjórna og sameining-
arnefndar sveitarfélaganna í Borgarfirði
norðan Skarðsheiðar er hafið. Helga Hall-
dórsdóttir, forseti bæjarstjórnar Borgar-
byggðar, er í undirbúningsnefnd um sam-
einingu Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveit-
ar, Hvítársíðuhrepps og Skorradalshrepps.
Hún segir undirbúningsvinnu hafa verið
komna af stað áður en sameiningarátak
Sambands íslenskra sveitarfélaga hafi ver-
ið kynnt á fulltrúaráðsfundi sambandsins
vorið 2003 og stefnt sé að því að kosið
verði um sameiningu þessara fjögurra
sveitarfélaga vorið 2005.
Formlegar viðræður
hófust vorið 2003
„Bæjarstjórn Borgarbyggðar ákvað á liðnu
vori að fara í sameiningarviðræður eftir að
formlegt erindi barst frá Borgarfjarðarsveit
um að efnt yrði til formlegra viðræðna um
sameiningu Borgarfjarðarsveitar, Skorra-
dalshrepps, Hvítársíðuhrepps og Borgar-
byggðar. í framhaldi af því hófu fulltrúar
þriggja þessara sveitarfélaga að ræða sam-
an og vinna ákveðna undirbúningsvinnu.
Þegar samband íslenskra sveitarfélaga
kynnti sameiningarátak sitt hinkruðum við
aðeins við til þess að sjá hvernig það færi
af stað. Við höfum síðan haldið þessum
viðræðum áfram og nú er Skorradals-
hreppur að koma að þessu verkefni með
okkur þannig að öll fjögur sveitarfélögin
munu eiga aðila að formlegum viðræðum
og þeirri vinnu sem framundan er," segir
Helga.
Þrír vinnuhópar
Fyrsti formlegi fundur sameiningarnefnd-
arinnar með fulltrúum sveitarfélaganna
þriggja var haldinn í Reykholti 18. maí
2003 og segir Helga þegar hafa verið haf-
ist handa við að forma þessa vinnu og
koma henni í ákveðinn farveg. Skorradals-
hreppur bætist síðan í hópinn núna þegar
verkefnavinnan hefst formlega. Þegar hafa
Helga Halldórsdóttir, íorseti bæjarstjórnar Borgar-
byggðar.
verið skipaðir þrír vinnuhópar um tiltekin
málefni sveitarfélaganna. Einn hópurfjall-
ar um stjórnsýslu og fjármál, annar um
umhverfis- og skipulagsmál auk sam-
göngumála og þriðji hópurinn mun fást
við þá málaflokka sem falla undir fjöl-
skyldumál, nánar tiltekið fræðslumál, tóm-
stundamál, menningarmál og félagsþjón-
ustu.
Samstíga öðrum
í kosningum 2005
Helga segir að þegar hafi verið samið við
Viðskiptaháskólann í Bifröst um ákveðin
verkefni fyrir sameiningarnefndina og þar
á meðal nauðsynlegt kynningarstarf til
þess að upplýsa íbúana á sem bestan hátt
um framvindu þessa verkefnis. Einnig er
ætlunin að leita til Háskólans á Akureyri
um að vinna úttekt á fræðslumálunum í
héraðinu með tilliti til þess hvernig þeim
verði best komið fyrir í sameinuðu sveitar-
félagi en þar sé jafnan um viðkvæman
málaflokk að ræða. Helga segir að brýn-
ustu verkefnin nú séu að koma vinnuhóp-
unum af stað og að efna til kynningar á
meðal íbúanna, heyra sjónarmið þeirra og
kynna þeim nánar f hvaða farvegi málin
séu og hvar vinna við þau sé stödd. Hún
segir stefnt að því að verða samstíga öðr-
um sveitarfélögum um kosningu um sam-
einingu vorið 2005.
Helga telur að ekki hafi verið farið of
snemma af stað meðal sveitarfélaganna í
Borgarfirði. „Sveitarstjórnir og aðrir sem
koma að þessum málum verða að ætla sér
nægan tíma til þess að fara vel yfir þau og
kynna fbúum viðkomandi sveitarfélaga
hvað verið er að gera. Með því móti verð-
ur unnt að ná betri árangri og sátt um
þetta mikilvæga verkefni."
Eitt atvinnu- og þjónustusvæði
Helga bendir á að þessi sveitarfélög
myndi eitt atvinnu- og þjónustusvæði og
byggðin og mannlífið eigi margt sameigin-
legt. Tveir háskólar séu starfandi á svæð-
inu auk vaxandi ferðaþjónustu og öflugs
landbúnaðar þrátt fyrir nokkurn samdrátt
og breytingar á undanförnum árum. Hún
bendir á að Borgarnes hafi lengi verið
miðstöð verslunar og þjónustu í héraðinu
og verði áfram en nýju háskólasamfélögin
séu að vaxa.
„Sveitarfélögin norðan Skarðsheiðar
hafa einnig átt með sér margvíslegt sam-
starf á vettvangi Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi og einnig á grundvelli byggða-
samlaga. Við rekum sameiginlega Tónlist-
arskóla Borgarfjarðar og Safnahúsið í
Borgarnesi. Grunnskólinn áVarmalandi er
rekinn í samstarfi Borgarbyggðar og Hvít-
ársíðuhrepps. Auk þess hefur til dæmis
Borgfirðingahátíð verið samstarfsverkefni
þessara sveitarfélaga. Vegna þessa og ann-
arra þátta hefur skapast margvísleg reynsla
af því að vinna saman hér á svæðinu.
28
TÖLVUMIÐLUN H-LaUíl www.tm.is