Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Blaðsíða 12

Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Blaðsíða 12
Hrunamannahreppur Ný byggingasvæði og fráveita Verið er að Ijúka frágangi á iðnaðarsvæð- inu að Flúðum í Hrunamannahreppi en talsverð eftirspurn hefur verið eftir iðnað- arlóðum þar að undanförnu. Er gert ráð fyrir 23 iðnaðarlóðum sem afmarkast af flugvellinum að austanverðu og fyrirhug- uðum nýjum þjóðvegi að vestanverðu. Þá hefur verið unnin tillaga að deiliskipulagi íbúðasvæðis í landi Grafarbakka. Á því svæði er gert ráð fyrir þremur tveggja hæða húsum með alls um 40 íbúðum og að auki er gert ráð fyrir þremur einnar hæða byggingum fyrir bílskúra og sam- eiginlegar geymslur. Þá er unnið að hönnun á fráveitukerfi sem þjóna mun m.a. iðnaðar- og tjald- svæðinu að Flúðum og fleiri svæðum. Gert er ráð fyrir að hönnunarvinnunni Ijúki um miðjan apríl nk. og þá er ráðgert Ákveðið hefur verið að koma upp lista- verki tengdu 100 ára fæðingarafmæli Sig- Mynd: Mats. Fólksfjölgun á milli ára íbúum í Hrunamannahreppi fjölgaði um 2,6% milli áranna 2005 og 2006. 1. desember 2005 bjuggu 767 manns í sveitarfélaginu en voru orðnir 787 ári síðar. Samkvæmt tölum Hag- stofu íslands búa 419 karlar í Hruna- mannahreppi og 368 konur. að bjóða framkvæmdina út. Um mikið og kostnaðarsamt verkefni er að ræða fyrir urðar Ágústssonar, tónskálds og bónda frá Birtingarholti. Gert er ráð fyrir að listaverk þetta verði sett upp í fyrirhuguðum lysti- garði sem þegar hefur verið skipulagður á svæðinu við félagsheimilið þar sem tjald- svæðið á Flúðum er í dag. Sérstök nefnd var sett á laggirnar á liðnu hausti til þess að sjá um fram- kvæmdina. Ákveðið var að fá tvo lista- menn sem tengjast svæðinu til að gera til- lögu að verkinu. Þeir eru Brynhildur Þor- geirsdóttir, ættuð frá Hrafnkelsstöðum og Helgi Gíslason, sem m.a. á sumarhús í Hrunamannahreppi og dvelur mikið á slóðum Hrunamanna. Tillögur beggja listamannanna reyndust áhugaverðar og spennandi og nefndinni því vandi á höndum. Að endingu var nefndin sam- mála um að velja tillögu Helga. Nýtt tjaldsvæði i Fyrirhugað er að taka nýtt tjaldsvæði í notkun að Flúðum. Tjaldsvæðið mun ná yfir hátt í níu hektara svæði við Litlu Laxá og mun leysa af hólmi núverandi tjald- stæði sem er skammt frá félagsheimili sveitarinnar. sveitarfélagið eins og jafnan þegar ráðist er í verkefni af þessu tagi. Fráveituverk- efnið er engu að síður nauðsynlegt fyrir núverandi byggð að Flúðum og ekki síður vegna vaxandi uppbyggingar þar. (slenskukennsla og alþjóðadagur íslenskukennsla fyrir útlendinga fer nú fram í Hrunamannahreppi. Það er Fræðslunet Suðurlands sem stendur fyrir kennslunni ásamt sveitarfélaginu og at- vinnurekendum með starfsemi þar. Um afar þarft mál er að ræða þar sem nokkuð að fólki af erlendum uppruna býr nú og starfar í sveitarfélaginu. Á liðnu hausti var efnt til alþjóðadags að Flúðum og stefnt að því að framhald verði á þeirri starfsemi. Samkomur á borð við alþjóða- daga hafa gefist vel. Fólk af mismunandi uppruna hefur komið saman og kynnt menningu sína og með því aukið gagn- kvæman skilningá mismunandi menning- arlegum áhrifum. við Litlu Laxá Þá er unnið að samningum við áhuga- hóp um rekstur tjaidsvæðisins en hann samanstendur af heimamönnum sem hafa reynslu og þekkingu er nýtast mun við uppbyggingu og rekstur tjaldsvæðis- ins. Útilistaverk tengt Sigurði Ágústs- syni frá Birtingarholti SFS 12 TÖLVUMIÐLUN www.tm.is

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.