Sveitarstjórnarmál - 22.03.2007, Blaðsíða 29
Sveitarfélagið Álftanes
Miðsvæði með þjónustu og íbúðum
í uppbyggingu
Mikil uppbygging og bætt þjónusta við íbúa einkenna áætlun bæjaryfirvalda í Sveitarfélaginu Álfta-
nesi til næstu ára. Fyrirhugað er að byggja upp sérstakt miðsvæði í sveitarfélaginu og er gert ráð fyrir
að íbúar verði orðnir allt að 3.800 í lok áratugarins.
Sigurður Magnússon bæjarstjóri á skrifstofu sinni á Bjarnastöðum á Álftanesi.
Fyrir um þremur áratugum var Álftanesið
eins konar sveit á bæjarmörkum. Um
1980 tengdust um 8% ársverka í sveitar-
félaginu enn landbúnaði þar sem bújarðir
og býli voru í ábúð og búið með naut-
pening, sauðfé og hænsni auk nokkurs út-
ræðis. Þótt landbúnaður megi heita
aflagður á Álftanesi má enn sjá menjar
um búskap. Túnum er haldið við og hey-
skapur enn stundaður þótt heyfengurinn
fari nú einkum til fóðrunar hrossa en ekki
sauðfjár og mjólkurkúa.
Nær þreföldun íbúafjölda
á rúmum 20 árum
Á árinu 1984 bjuggu um 800 manns í
Bessastaðahreppi, eins og sveitarfélagið
hét um langan tíma, en nú búa um 2.300
manns í Sveitarfélaginu Álftanesi, eins og
það heitir nú. Breytingin úr sveit í bæ hef-
ur þó farið fremur hægt og mikill áhugi er
á meðal íbúanna að viðhalda einkennum
sveitarinnar og þá einkum strandlengj-
unnar umhverfis nesið. Flestir íbúanna
sækja vinnu inn á höfuðborgarsvæðið en
lítið er um atvinnustarfsemi á Álftanesi ef
frá er talin stjórnsýsla sveitarfélagsins,
skólahald og önnur þjónusta; alls um 200
störf.
Engin verslun er á Álftanesi ef frá er
talin smáverslun eða lítil greiðabúð, sem
selur það sem kalla má allra brýnustu lífs-
nauðsynjar og íbúarnir eru því nær alger-
lega háðir því að ferðast til Hafnarfjarðar,
Garðabæjar eða lengra inn á
höfuðborgarsvæðið til verslun-
ar. Þetta gæti þó breyst í fram-
tíðinni því unnið er að hug-
myndum um framtíðarmið-
bæjarskipulag þar sem gert er
ráð fyrir aukinni þjónustu og
þar á meðal matvöruverslun.
í stuttu máli má segja að
bygging þjónustumiðstöðvar
fyrir aldraða, bygging lokaáfanga Álfta-
nesskóla og nýrrar sundlaugar setji svip á
væntanlegar framkvæmdir í sveitarfélag-
inu auk umhverfis- og menningarmála
sem sveitarstjórnin hefur sett á forgangs-
lista.
Sveitarstjórnarmál hittu Sigurð Magn-
ússon, bæjarstjóra á Álftanesi, á dögun-
um.
Ný íbúða- og þjónustubyggð
Sigurður segir Álftnesinga gjarnan tala um
sveit í borg þegar skipulagsmálin eru ann-
ars vegar. Þeim sé annt um umhverfið
þótt margir vilji sjá aukna þjónustu. Hann
segir sveitarstjórnina reyna að framfylgja
þessum sjónarmiðum og þá fyrst og
fremst um varðveislu strandsvæðanna,
sem séu sérkenni Álftaness, enda ekki
langt síðan byggðin hafi einkennst af sveit
og annarri dreifbýlisbyggð. „Nú er engin
kýr á Álftanesi, kindur aðeins á einum bæ
og enn gerir útvegsbóndinn í Gesthúsum
út frá Gesthúsavör."
En nýr tími er að taka við og Sigurður
segir ýmsar breytingar á döfinni. „í
þriggja ára áætiun bæjarstjórnarinnar fyrir
árin 2008 til 2010 er gert ráð fyrir mikilli
fjölgun ibúa á Álftanesi. Þegar
eru hafnar byggingafram-
kvæmdir á stórum byggingar-
svæðum, bæði á Sviðholti og á
Kirkjubrú, og gert ráð fyrir að
þau verði fullbyggð á þessu og
á næsta ári. Á því sem kallað
er miðsvæði og er austan Suð-
urnesvegar gegnt Bessastöðum
er áætlað að reisa blandaða
byggð þjónustustofnana og íbúða. Ég geri
ráð fyrir að framkvæmdir á miðsvæðinu
hefjist á næsta ári og standi yfir fram á
árið 2010. Þar erum við að koma upp
„Ég tel að þetta gæti orðið kjörinn staður fyrir
aðila sem eru að vinna á alþjóðavísu og teldu sig
hafa ávinning af því að staðsetja starfsstöðvar
sínar í þessu fallega umhverfi nálægt bústað
forseta íslands."
tölvumiðlun H-Laun www.tm.is
29