Hermes - 01.12.1971, Blaðsíða 7
gerzt í sögunni að botninn varð eftir upp í Borgar-
fírði. — En nóg um það.
Tvö blöð komu út af Hermes. Nóbelsblað, sem gef-
ið er út sameiginlega með Samvinnuskólanum og
hin venjulega útgáfa, sem nú er undir ritstjórn Guð-
mundar R. Jóhannssonar.
Guðmundur hefir beitt sér fyrir nokkrum breyt-
ingum á blaðinu, sem eiga að verða til að gjöra út-
gáfuna kostnaðarminni og færi ég honum beztu
þakkir stjórnarinnar fyrir mikinn dugnað og áhuga
í sínu starfi.
Eins og ég gat um í síðustu skýrslu minni var á-
kveðið að hefja útgáfu Árbókar, sem hefði að geyma
upplýsingar um alla þá, sem verið hafa í Samvinnu-
skólanum frá öndverðu árið 1918.
Að undirbúningi þessa máls hafa einkum unnið
þeir Reynir Ingibjartsson og Sigurður Hreiðar, sem
ráðinn hefir verið ritstjóri að verkinu. Vil ég sérstak-
lega þakka þeim gott starf. Gerð verður grein fyrir
árbókinni hér á eftir í sérstökum dagskrárlið og mun
ég því ekki ræða hana frekar. Vil ég þó geta þess að
fjársöfnun er hafin að útgáfu verksins og hafa auk
þeirra Reynis og Sigurðar unnið þar mikið og gott
starf, þau Valgerður Gunnarsdóttir og Hrafn Magn-
ússon. Þakka ég þeim mjög góð störf.
Félagsheimilið Hamragarðar var vígt 3. júní s.l.
Eins og áður hefur verið skýrt frá eru það fimm félög
samvinnumanna, sem eru aðilar að húsinu: Nem-
endasamband Samvinnuskólans, Starfsm.fél. KRON,
Olíufélagsins, Samvinnutrygginga og S.Í.S. Húsverðir
hafa verið ráðin hjónin Ólöf Jónsdóttir og Eiríkur
Guðmundsson og vil ég lýsa þeirri skoðun minni að
við höfum verið einstaklega heppin að fá að njóta
starfskrafta þeirra.
Með tilkomu þessa félagsheimilis er brotið blað í
sögu N.S.S. Ég óska þess að hér megi starfsemi okkar
blómgast og aukast að mun á ókomnum árum.
Um það, hvernig bezt muni verða að nýta þetta hús,
skulum við ræða hér á eftir enda svo ráð fyrir gert í
dagskrá.
Hússtjórn Hamragarða hefur verið kjörin og er for-
maður hennar Baldur Óskarsson, en af hálfu N.S.S.
á sæti í stjórninni Óli H. Þórðarson.
í þessu húsi fengum við eitt herbergi til umráða
fyrir okkur sérstaklega og höfum við þegar fengið í
það húsgögn og vænti ég þess, að þannig sé sköpuð
sem bezt aðstaða til funda- og félagsstarfs fyrir N.S.S.
Mikill kostnaður er af þessum kaupum, sem ég held
þó að okkur takist að kljúfa. í því efni á mestan heiður
Hilmar Thorarensen gjaldkeri, sem unnið hefur mikið
og gott starf fyrir okkur.
í tilefni 50 ára afmælis sr. Guðmundar á Bifröst
var efnt til söfnunar meðal N.S.S. félaga til kaupa á
afmælisgjöf handa honum. Árangur þeirrar söfnun-
ar varð sá að við afhentum honum vandað rafmagns-
orgel að gjöf og bað hann mig í því tilefni að skila
beztu kveðjum og þakklæti til ykkar frá þeim hjón-
um.
Alls voru haldnir átta stjórnarfundir og fimm full-
trúaráðsfundir.
Fréttabréf voru send út í tilefni þeirra og af öðrum
ástæðum og væntum við þess að þau séu vel metin.
Góðir fundarmenn, hr. fundarstjóri. Það er komið
að lokum þes^arar skýrslu minnar.
í því tilefni vil ég færa öllum meðstjórnarmönnum
mínum beztu þakkir fyrir óeigingjarnt og ánægju-
legt samstarf á liðnu starfsári og á sama hátt fulltrúa-
ráðinu, sem er einn mikilvægasti hlekkurinn í starfi
okkar. Eins þakka ég ritstj. og ritstjórn Hermes
þeirra störf.
Ég læt nú af störfum sem formaður N.S.S. og mun
hverfa úr stjóminnk Ég vil leyfa mér persónulega að
þakka ykkur öllum, félagar góðir, vinsemd og á-
nægjulegt samstarf og óska ykkur öllum góðs gengis.
Ég óska þess að N.S.S. megi eflast og styrkjast,
ég óska ykkur til hamingju, sem nú komuð, sem
nýir félagar og vona að með ykkur komi nýr og
mikill þróttur í starf Nemendasambands Samvinnu-
skólans.
Atli Freyr Guðmundsson.
7