Hús & Búnaður - 01.08.1972, Page 7
5.
er keypt, hvoxt hún þoli þvott. Það er
jafnvel hægt að nota sterk þvottaefni á
vinylklæðningu, ef þess er gætt að þvo
þau vel af. En í guðs bænum farið ekki
að nota stálull eða eitthvað því um líkt
á veggfóðrið!
Eitt af mörgu, sem gera þessar nýju
veggklæðningar svo hagkvæmar, er það,
hve auðvelt er að ná þeim af. Efnasam-
setningin er þannig gerð, að i mörgum
tilfellum er vatn ekki einu sinni nauð-
synlegt. Því er ekkert auðveldara, þegar
flutt er í aðra íbúð, en að taka vegg-
klæðninguna með sér og hengja hana upp
á nýja staðnum. Eða þá þegar breyta á
gestaherberginu í barnaherbergi, þá er
klæðningunni með dýramyndunum bara
flett af eins og hýði af banana.
Ef til vill er mesta byltingin í vegg-
klæðningu síðustu ára tilkomin með notk-
un málmplatna. Ekki sízt vakti þetta at-
hygli, vegna þess, að það þótti vera í
takt við króm- og stáltízkuna, sem öllu
ræður nú til dags. Fyrst var silfurlitur
allsráðandi, en síðan kom gull og eir, auk
fjölda annarra tegunda, svo hægt er að
velja milli margra ólíkra tegunda af þess-
ari glæsilegu tegund af veggklæðningu.
Þar sem hér er um að ræða þunna
málmplötu, sem sett er á pappír eða tau,
verður veggurinn skilyrðislaust að vera
alveg sléttur, og þarf þá yfirleitt sérstakan
fóðurpappír á vegginn áður en klæðn-
ingin er sett á. Undir sumum kring-
umstæðum er hætta á að málmklæðning
missi gljáa, og því rétt að kynna sér vand-
lega leiðbeiningar framleiðenda um alla
meðferð, þegar slík klæðning er keypt.
Nú á tímum þráum við öll að komast
á gras við og við og er það sennilega
ástæðan fyrir því, kvað grasklæðning er
nú mjög í tízku, enda lítur hún mjög
eðlilega út. Hér áður voru það einkum
Japanir, sem voru einkar lagnir í fram-
leiðslu á slíku og límdu þeir einfaldlega
gras á vefnaðinn. Nú er þetta prentað á
vinyl og þykir nærri því jafn eðlilegt.
Þessi grasklæðning er fáanleg í mjög fín-
legum litum og þykir sérlega heppileg á
auða veggi og passar yfirleitt ágætlega,
þótt allt önnur klæðning sé á öðrum
veggjum herbergisins.
Grasklæðning er sérstaklega heppileg
sem bakgrunnur fyrir málverk og þá ekki
síður fyrir kínverska postulínið, ef ein-
hver er nú svo heppinn að eiga slíak dýr-
gripi. Þessar klæðningar eru til í mjög
fjölbreyttu litaúrvali og því er bezt að
skipuleggja vel, hvaða tegundir fara saman,
áður en farið er að setja á veggina.
Þá er það ein tegund í viðbót, sem
hefur öðlast miklar vinsældir, og það er
korkur. Orþunnt lag af korki er límt á
pappír, og síðan er borið þunnt lag af
plasti á korkinn til að hlífa honum. Kork-
klæðninguna er líka hægt að.fá með sjálf-
límandi baki, en þá er ekki hægt að fletta
slíkri klæðningu af, heldur verður að
skrapa hana burtu, og þar með er hún
ónýt. Korkinn er hægt að nota hvar sem
er í húsinu, nema í eldhúsi og baðher-
bergi, þar sem gufan getur eyðilagt hann.
Veggmálverk er ein elzta tegund vegg-
klæðningar, sem menn þekkja, og getum
við rakið slíkar skreytingar allt aftur til
hellisbúa. Möguleikarnir eru óendanlegir,
hvort heldur er innan dyra eða utan. Ef
til vill er það grafik, sem mest er í tízku
núna af þessum veggmálverkum, en það
er heldur ekkert á móti því að gera fallega
landslagsmynd, ef fólk vill komast nær
náttúrunni, ef svo mætti segja. Nú, svo
er að sjálfsögðu hægur vandinn að fá sér
nýja klæðningu, ef maður verður leiður
á landslaginu einn góðan veðurdag.
Sá siður, að klæða veggi með vefnaði,
er kominn allt frá þeim tíma, þegar höfð-
ingjarnir bjuggu í köstulum og þótti nóg
um, hve veggirnir voru kaldir og drunga-
legir. Veggklæðning úr vefnaði gefur her-
berginu hlýlegt útlit, og þar fyrir utan
er hún tilvalin til þess að skýla skemmd-
um og ljótum veggjum. Margar tegundir
eru með pappírsbaki til þess að auðveld-
ara sé að koma þeim fyrir. Aðrar er hægt
að festa upp á grind, og einnig er hægt
að festa þær með hefdbyssu.
Eins og sjá má af því, sem hér hefur
verið nefnt að framan, eru það ótrúlega
miklir möguleikar, sem hinar ýmsu teg-
undir veggklæðninga gefa. Það er bara
um að gera að nota hugmyndaflugið, þegar
ákveðið er, hvaða tegnudir og liti skal
nota. En eins og áður hefur verið sagt,
er ekki stór skaði skeður, þótt fólk fái
leið á einum lit; þá er bara að fletta
klæðningunni af og fá sér nýtt.
Til þess að láta lítil herbergi sýnast
stærri, þá notið fremur kalda og hlutlausa
liti. Ágætt er að nota sinn hvorn litinn
á hvern vegg, og líka gerir það skemmti-
legri svip að hafa t.d. vefnaðarklæðningu
á einum og myndaklæðningu á öðrum.
Stórrósótt veggklæðning gerir tómlegt
herbergi mun fyllra og lætur háa veggi
sýnast lægri. Ef láta á þröngt og mjótt
herbergi líta út fyrir að vera breiðara,
notið þá lárettar rendur fyrir enda her-
bergisins, og það verður ekki hægt að
komast hjá því að taka eftir því, hvað
breydngin verður mikil. Ef herbergi er
óreglulegt í lögun, eins og er t.d. með
kvistherbergi, þá veljið klæðningu á vegg-
ina í samræmi við húsgögnin og hafið
klæðninguna eins á öllum veggjunum.
Þar sem veggirnir eru mest áberandi
í hverju herbergi, er það mjög eðlilegt,
að fólk vilii hafa þá sem skemmtilegasta
úr garði gerða. Og þess vegna er oft hægt
að sjá það með því aðeins að horfa á
veggi í húsi, sem komið er í, hvort íbú-
arnir hafa einhverja hæfileika til að gera
vistlegt í kringum sig eða ekki.
Það er því bezt að hætta að segja:
„Eg get ekki gert þetta". eða: „O, þetta
herbergi, þetta herbergi!" og annað í þeim
dúr. Drífið ykkur í að kynna ykkur það
úrval, sem til er af veggklæðningum, og
síðan af stað og lífgið upp á heimilið!
Við höfum reynt að gefa ykkur nokkrar
leiðbeiningar, sem vonandi koma að ein-
hverjum notum.
1.
„Meðal beztu vina minna eru deplar", gæti
átt við hið sérkennilega mynstur á þessari
veggklæðningu.
2.
Blómin hafa lengi verið notuð á vegg-
fóður, en hér er lífgað upp á þessa fyrir-
mynd með björtum litum og skemmtilegu
mynstri.
3.
Hér er skemmtilegur veggur með myndum
og slagorðum, og eru myndirnar í frum-
litunum. Vekur athygli, ekki satt?
4.
Margar tegundir af veggklæðningu er hægt
að þvo með vatni og sápu án þess að
valda skemmdum.
5.
Svona klæðning með blómvöndunum er
vinsæl í dag.
6.
Vinyl-klæðning er einkar heppilegur bak-
grunnur málverka og annarra mynda.
7