Hús & Búnaður - 01.08.1972, Síða 9
ur, sem hafði fengið fullmikið af
þessu eitri, — kornung stúlka — og
ég hjúkraði henni líka. Á meðan
flýttu hinir sér í burtu.“
Hann þagnaði.
,,Svo,“ sagði Poirot, „hafið þér
fengið tíma til að átta yður á hvað
um var að vera.“
„Rétt. Ef þetta hefði verið venju-
leg drykkjuveizla þá myndi allt
hafa verið á enda. En þegar um
svona eiturlyf er að ræða þá er
öðru máli að gegna.“
„Þér eruð alveg viss um að ekki
sé um neitt að villast?“
„Já, það er enginn efi á því, að
það var kókain, sem ég fann þarna
í glerdós — hvítt duft sem tekið er
í nefið, eins og þér vitið. Spurning-
in er bara sú, hvaðan það er feng-
» ið. Mig minnir, að þér hafið ein-
mitt minnst á það við mig núna
um daginn, að eiturlyfjanautn væri
að breiðast út um þessar mundir.“
Hercule Poirot kinkaði kolli og
sagði: „Svo mikið er víst, lögreglan
mun fá mjög mikinn áhuga á að
tala við fólkið sem hér var í kvöld.“
„Það er nú svo ...“ sagði Mic-
hael Stoddart dapur í bragði.
Poirot leit til hans með skyndi-
lega vaxandi athygli.
„Þér eruð víst ekki — yður er þó
ekki einhverra hluta vegna illa við
að lögreglunni sé blandað í málið?“
spurði hann.
Michael Stoddart varð vand-
ræðalegur.
„Stundum kemur það fyrir að
saklaust fólk verður bendlað við ..“
„Er það frú Patience Grace, sem
þér berið fyrir brjósti?“
„Nei, það er öðru nær. Hún lætur
sér ekki allt fyrir brjósti brenna og
hefur áreiðanlega unnið til þess að
komast undir manna hendur.“
„Er það þá hin, sú unga?“ spurði
Poirot varlega.
„Hún lætur sér auðvitað ekki allt
fyrir brjósti brenna heldur, að
nokkru leyti, það er að segja hún
heldur sjálf að svo sé. En sann-
leikurinn er sá, að hún er ung og
skortir lífsreynslu — dálítið villt og
þar fram eftir götunum — en það
er bara af því að hana langar til
að kynnast lífinu og þarf að hlaupa
af sér hornin. Hún lendir í svona
sukki, af því að hún heldur að það
sé fínt, eða tízka, eða eitthvað því
um líkt.“
Poirot brosti lítið eitt.
„Þér hafið hitt hana, þessa
stúlku, fyrr en í kvöld?“ spurði
hann hæversklega.
Michael Stoddart kinkaði kolli.
Hann var unglingslegur og feimn-
islegur á svip.
„Ég kynntist henni dálítið í
Mentonshire, á veiðimannaballinu.
Faðir hennar er fyrrverandi hers-
NÝ STUÐLA-
LAUSN SRILRUM
Léttur veggur með
hillum og skápum,
sem geta snúið
á báða vegu.
Smíðaður í einingum
og eftir máli, úr
öllum viðartegundum.
Teikning: Þorkell G.
Guðmundsson
húsgagnaarkitekt.
SÖLUSTAÐIR:
Sverrir Hallgrímsson,
Smíðastofa,
Trönuhrauni 5.
Sími: 51745.
Hús og skip.
Sími: 84415.
Híbýlaprýði,
Hallarmúla.
Simi: 38177.
wm ft' ;
9