Boðberi K.Þ. - 01.09.1997, Blaðsíða 3
Útflutningur
Á nýbyijuðu verðlagsári er útflutningsskylda
13% afheildarinnleggi, vegnabúvörusamninga.
Þetta er minna magn en árið áður og því má
gera ráð fyrir að verð fyrir útflutning verði
með betra móti. V erulegt magn fer til F æreyj a,
en einnig verður flutt út til Bretlands,
Norðurlandanna og Bandarikjanna. í fyrra
voru greiddar 193 kr. fyrir kg. af kjöti og
dregið frá 10 kr. í verðjöfnun. Heildaskilaverð
þávareinungis 17kr. lægra en fékkst fyrirkjöt
á innanlandsmarkaði.
Kaup á Bautabúrinu
Kaupfélag Þingeyingahefúrkeypt meirihluta
í Nýja Bautabúrinu hf. á Akureyri í kjölfar
hlutafjáraukningar. Hjá Nýja Bautabúrinu
starfa 35 manns og fyrirtækið veltir á þriðja
hundrað milljónum króna.
Kaup á Nýja Bautabúrinu eru fyrst og fremst
gerð með það að leiðarljósi að auka hlutdeild
KÞ í kjötiðnaði. Yfirgnæfandi meirihluti þess
kjötmagns er hjá Sláturhúsi KÞ er eftir kaupin
unnin á vegum félagsins eða fer beint til
útflutnings. Miklu skiptir fyrir framtíð
Sláturhússins að félagið styrki stöðu sína í
kjötiðnaði og mun til lengri tíma litið tryggja
afsetningu og verð til bænda.
Nýtt reykhús fullbúið
Verið er að leggja lokahönd á nýtt reykhús
félagsins. Reykhúsið var tekið í notkun í
nóvember í fyrra. Sala hangikjöts jókst mjög
verulega á síðasta ári.
Frá Kjötiðju KÞ á Húsavík
3