Boðberi K.Þ. - 01.12.1997, Page 4

Boðberi K.Þ. - 01.12.1997, Page 4
Til félagsmanna ! Þorgeir B. Hlööversson, kaupfélagsstjóri Byggðamál Byggðamál hafa verið þó nokkuð til umræðu á opinberum vettvangi undanfarið ogerþaðvel. Ráðamennþjóðarinnarhafaí auknum mæli lagt áherslu á að það þurfi að bregðast við þeirri alvarlegu þróun í búferlaflutningum sem við horfúm upp á og hafa kynnt það sem eitt mikilvægasta mál núverandi ríkisstjómar. Taka ber undir þessa umræðu. Orð eru til alls fyrst, en nægja ekki. Virkra aðgerða er þörf. Á vettvangi ríkisstjómarinnar þyrfti að leggja meiri áherslu á þjóðhagslega óhagkvæmni þessara miklu tilflutninga. Óhagkvæmnin felst í fráhvarfi frá fjárfestingu vítt um landið, sem kallar í staðinn á mjög mikla uppbyggingu á Reykjavíkursvæðinu, mun hraðar en vel er viðráðanlegt. Nefna má mikla þörf á uppbyggingu umferðarmannvirkja í borginni. Spuming er hvort það em nokkuð síður hagsmunir Reykjavíkursvæðisins en dreifbýlis, að hægja verulega á þessari þróun. Nýlega vom kynntar niðurstöður af ítarlegri viðhorfskönnun til búsetu í dreifbýli og ástæðum búferlaílutninga. Ástæða er til að lýsa ánægju með það ffamtak að láta vinna svo umfangsmikila könnun, hún hefði þurfl að fara fram mun fyrr. Undirritaður hefur ekki séð niðurstöðuskýrslu þessarar könnunar, en af umræðu er ljóst að hún staðfestir að rætur vandans eru mun fjölþættari en menn áður töldu, ömgg atvinna og góðar tekjur tryggja ekki lengur búsetu á tilteknum stöðum. Það er ekki síður uppbygging samfélagsins, hversu góð þjónusta er i boði, ljölbreytt mannlíf og menning, sem em lykilatriði. í umræðu um byggðamál er það nokkuð áhyggjuefni að hún er yfirleitt mjög á neikvæðu nótunum. Það má segja að það leiði af eðli máls þegar horft er til þióunarinnar undanfarin ár og að umræðan er fyrst og fremst söguskoðun og spár á grundvelli hennar. í þessa söguskoðun blandast síðan upptalning á dæmum þar sem byggðastuðningur, oft í formi ijárframlaga af opinberri hálfu, hefur mistekist. Þetta er eðli umræðunnar í þjóðfélaginu í dag, bæði meðal einstaklinga og í fjölmiðlum, að velta sér upp úr neikvæðum málum, en minna ber á því jákvæða. Hættuleg afleiðing af þessari umræðu erþað að hún sem slík fari að vera orsakavaldur, þ.e. hvetji til búferlaflutninga. Aðgerðir í byggðamálum og árangur - samanburður við nágrannalönd. Ekki er óeðlilegt að menn velti fyrir sér hvort einhver árangur hafi orðið af aðgerðum í byggðamálum, m.t.t. til þróunar síðustu ára. Það er erfítt að meta nákvæmlega en

x

Boðberi K.Þ.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Boðberi K.Þ.
https://timarit.is/publication/993

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.