Boðberi K.Þ. - 01.12.1997, Side 6

Boðberi K.Þ. - 01.12.1997, Side 6
því að fjölbreytt starfsemi félags eins og Kaupfélags Þingeyinga verði mikilvægur hlekkur í þeirri byggðaþróun sem við munum vilja hafa í héraðinu. Hins vegar þarf kaupfélagið að vera meðvitað um mikilvægi sittogábyrgðþessverðuralltafmikil. Félagið þarf að taka þátt í að rækta trú á byggðimar og jákvæð þróun þarf að vaxa og dafna innra með því fólki sem býr í héraðinu.” í þessu samhengi er því mjög mikilvægt að umræða sé virk um hlutverk Kaupfélags Þingeyinga og hvert skuli stefnt í rekstri félagsins, og móta þarf markvissa stefnu til næstu ára. Stefnumótun Kaupfélag Þingeyinga. Á aðalíundi félagsins síðastliðinn vor, var í framhaldi af vinnu framtíðarnefndar, samþykkt að hefja gagngera stefnumótunarvinnu innan félagsins. í samræmi við samþykkt aðalfundar og sanþykkta stjómar félagsins hófst sú vinna á haustmánuðum. Nú í desember hefúr verið gert nokkur hlé, en hafist verður handa aftur af krafti í janúar. Stjórn ákvað að leita til Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri um að leiða þessa vinnu með stjómendum félagsins og hefur Valtýr Þór Hreiðarsson sinnt því hlutverki, en einnig höfúrn við notið aðstoðar fleiri starfsmanna Háskólans. Skipulag vinnunnar hefúr verið hópvinna stjórnenda og almennra starfsmanna félagsins. Ætlunin er einnig þegar lengra er komið að efna til almennari umræðu og virkja þannig og fá ffam viðhorf sem flestra. Þessi vinna sem kölluð er stelhumótun er í raun verkfæri eða stjómtæki sem innleiða þarf til reglulegrar notkunar í starfsemi félagsins. Stefnumótun er í raun það að spyija skipulega réttu spuminganna og lýsa má eðli ferilsins á einfaldan hátt með þremur spumingum: 1. Hver er staða félagsins ídag? 2. Hvert vill félagið komast og hvenær? 3. Hvemig kemst félagið þangað ? Stefnumótunarvinna í forgangi - deildarfundum frestað. Ákveðið var að stefnumótunarvinnan hefði forgang umffam annað undanfamar vikur og því var ákveðið að efna ekki til deildarfúnda félagsdeilda nú á haustmánuðum, eins og gert hefur verið síðustu ár. Þess í stað er ætlunin að byija deildarfúndi þegar náðst hefúr áfangi í stefhumótunarvinnunni, þannig að hægt sé að kynna og fjalla um helstu niðurstöður í öllum félgasdeildum á svipuðum tíma. Líður aðjólum. Það líður óðum að jólum og undirbúningur jólanna er kominn í fullan gang. Svo er einnig í rekstri félagsins, bæði í verslun og ffamleiðslu. í ljósi meginefhis þessa pistils, skal það annarsvegar dregið fram að það er byggðamál hvemig félagið stendur sig í að bjóða samkeppnisfært verð í verslunum félagsins nú fyrir jól sem aðra tíma ársins og hinsvegar er það ekki síður mikilvægt mál hvemig fójk hagar sinni verlun. Hvort fólk verslar í heimabyggð eða ekki. Líkur þar umræðu um byggðamál að sinni. Með jóla- og nýárskveðjum ! Þorgeir B. Hlöðversson, Björgum

x

Boðberi K.Þ.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Boðberi K.Þ.
https://timarit.is/publication/993

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.