Boðberi K.Þ. - 01.12.1997, Síða 7
Húsavíkurhangikjöt
Gæðaframleiðsla í 60 ár
_______________I__________________J
Sigmundur Hreiðarson og Kristján
Arnarson skrifa
í tilefhi þess að nú eru 60 ár liðin frá því að
Kjötiðja KÞ hóf reykingar á kjöti í einhverju
magni, langar okkur til að velta upp nokkrum
athyglisverðum staðreyndum.
KÞ hóf reykingar á kjöti að einhverju
marki árið 1937 í aðstöðu sem byggð var
suður á bakkanum við
beinamjölsverksmiðjuhús sem Björn
Jósefsson átti. í þessu húsi var reykt til ársins
1978 og á fyrsta starfsári voru reykt 3 tonn
afkjöti.
Nýtt reykhús var reist á lóð gamla
sláturhússins árið 1978 og var það notað í
nokkur ár eða þar til að reykhús var reist í
núverandi sláturhúsi KÞ.
í reykaðstöðu í gamla sláturhúsi var hægt
að reykja sem svarar 500 kg. í hverri
reykingu. Eftir að aðstaðan færðist suður í
nýja sláturhús jókst framleiðslugetan fyrst í
1000 kg, en síðan var byggður einn nýr ofn
og þá var afkastagetan orðin 1500 kg. i
hverri reykingu.
Vinsældir Húsavíkurhangikjöts hafa aukist
jafnt og þétt og að því kom að
reykhúsaðstaðan afkastaði engan veginn því
magni sem markaðurinn kallaði á.
Árið 1996 var þvi reist enn stærra og
fullkomnara reykhús á lóð sláturhússins sem
í daglegu máli er kölluð ”Reykhöllin”, enda
öll aðstaða þar til fyrirmyndar. Þetta er
sennilega stærsta kaldreykingahús landsins
og við þessa byggingu margfaldaðist
framleiðslugetan áári, geriaðrirbetur.
í framhaldi af þessari aukningu allri er
fyrirsjánlegt að öflun taðs verður erfiðari
með hverju ári og viljum við því benda
bændum á, sem vilja og geta verkað tað að
hafa samband.
kveðja
Simmi og Stjáni
Frá Kornvörudeild:
Lokað 31. desember
gamlársdag
vegna vörutalningar.