Boðberi K.Þ. - 01.12.1997, Page 14
Stefnumótun hjá KÞ
Aðalfiindur KÞ vorið 1997 samþykkti að
í kjölfar vinnu “ffamtíðameíndaf” skyldi hafín
ítarleg stefiiumótunarvinna innan félagsins.
í samræmi við þá samþykkt ákvað stjóm
KÞ að velja fimm vinnuhópa til verksins, en
einnig að koma af stað almennri umræðu
meðal starfsmanna. Hópamir fjalla um:
afurðasvið, verslun, iðnað, stoðdeildir,
samstarfs fyrirtæki, þátttöku KÞ í atvinnulífínu
og fræðslu- og kynningarmál.
Vegna verkefnisins var leitað ráðgjafar frá
Háskólanum á Akureyri. Utanaðkomandi
fyrirlesarar verða fengnir og haldinn verður
kynningarfundur þegar niðurstöður liggja
fyrir. Ljúka á þessu verkefni í febrúar 1998.
Tækifæri verða því til almennrar kynningar
og umfjöllunar á deildarfundum í vetur og
niðurstöður koma fyrir aðalfund í vor.
Lágt vöruverð í
KÞ Þingey skilar sér
í aukinni verslun
Vemleg aukning hefur verið á verslun í
KÞ Þingey á þessu ári. Greinilegt er að
viðskiptavinir kunna vel að meta þá
verðlækkun sem hefur orðið með þeim
skipulagsbreytingum sem gerðar vom þegar
KÞ tók yfir rekstur Þingeyjar. Eins og
verðkönnun Neytendasamtakanna 30.
september sl. ber með sér hefur verðlag á
Húsavík lækkað, því þar var KÞ Þingey í
fímmta sæti yfir landið í flokki stórmarkaða
og keðjuverslana. Forsvarsmenn KÞ vilja
þakka félagsmönnum og viðskiptavinum fyrir
góðar viðtökur og vænta þess að geta gert
enn betur á nýju ári.
Opnunartími í desember
Laugardagur. 20. des. kl. 10-22
Þorláksmessa kl. 10-22
Aðfangadagur kl. 10-12
Gamlársdagur kl. 10-12
Nýársdagur Lokað