Boðberi K.Þ. - 01.12.1997, Blaðsíða 14

Boðberi K.Þ. - 01.12.1997, Blaðsíða 14
Stefnumótun hjá KÞ Aðalfiindur KÞ vorið 1997 samþykkti að í kjölfar vinnu “ffamtíðameíndaf” skyldi hafín ítarleg stefiiumótunarvinna innan félagsins. í samræmi við þá samþykkt ákvað stjóm KÞ að velja fimm vinnuhópa til verksins, en einnig að koma af stað almennri umræðu meðal starfsmanna. Hópamir fjalla um: afurðasvið, verslun, iðnað, stoðdeildir, samstarfs fyrirtæki, þátttöku KÞ í atvinnulífínu og fræðslu- og kynningarmál. Vegna verkefnisins var leitað ráðgjafar frá Háskólanum á Akureyri. Utanaðkomandi fyrirlesarar verða fengnir og haldinn verður kynningarfundur þegar niðurstöður liggja fyrir. Ljúka á þessu verkefni í febrúar 1998. Tækifæri verða því til almennrar kynningar og umfjöllunar á deildarfundum í vetur og niðurstöður koma fyrir aðalfund í vor. Lágt vöruverð í KÞ Þingey skilar sér í aukinni verslun Vemleg aukning hefur verið á verslun í KÞ Þingey á þessu ári. Greinilegt er að viðskiptavinir kunna vel að meta þá verðlækkun sem hefur orðið með þeim skipulagsbreytingum sem gerðar vom þegar KÞ tók yfir rekstur Þingeyjar. Eins og verðkönnun Neytendasamtakanna 30. september sl. ber með sér hefur verðlag á Húsavík lækkað, því þar var KÞ Þingey í fímmta sæti yfir landið í flokki stórmarkaða og keðjuverslana. Forsvarsmenn KÞ vilja þakka félagsmönnum og viðskiptavinum fyrir góðar viðtökur og vænta þess að geta gert enn betur á nýju ári. Opnunartími í desember Laugardagur. 20. des. kl. 10-22 Þorláksmessa kl. 10-22 Aðfangadagur kl. 10-12 Gamlársdagur kl. 10-12 Nýársdagur Lokað

x

Boðberi K.Þ.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Boðberi K.Þ.
https://timarit.is/publication/993

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.