Monitor - 10.11.2011, Blaðsíða 14
14 Monitor FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2011
Mér skilst að þú eigir þér það sem áhugamál að keyra
um með fellihýsið þitt og spjalla við ókunnugt fólk á
tjaldstæðum. Um hvað tala fellihýsaeigendur saman?
Já, mér fi nnst gaman að keyra eitthvert út í buskann,
opna fellihýsið og skoða landið, krakkarnir hafa líka
gaman af því. Samræður fellihýsaeigenda eru nátt-
úrlega mismunandi eftir því hvar maður er staddur í
útilegunni. Í upphafi byrja menn að setja út á mann eða
hjálpa manni að tjalda og segja þá svona: „Mér þykir þú
nú brattur að tjalda hér.“ Og maður spyr hvers vegna og
þá er svarað: „Nú, spáin er auðvitað þannig að hann á
að blása beint í fangið á þér þarna í fyrramálið.“ Svo eru
menn bara að hjálpa manni, maður er ekkert endilega
að biðja um hjálp, en allt í einu eru komnir kannski þrír
í það að hjálpa manni að setja niður tjaldhæla. Þetta
er áhugaverður heimur.
Þú kynntist konunni þinni á MySpace.
Hvort er hún skemmtilegri á netspjall-
inu eða í persónu?
Nú þarf ég að passa hvað ég
segi (hugsar sig um), nei grín. Að
sjálfsögðu er hún skemmtilegri í
persónu, ég var nú alveg búinn að
sjá hana áður en ég kynntist henni
á netheimum, svo ég vissi alveg
að hún væri ekta, að hún væri ekki gaur
eða eitthvað svoleiðis. Hún var reyndar alveg
ótrúlega skemmtileg á netspjallinu. Við spjöll-
uðum á þessu í allnokkrar vikur áður en við
hittumst aftur.
Hvað ber framtíðin í skauti sér?
Framtíðin er óskrifað blað og ég tek henni
með opnum örmum. Ég veit aldrei hvað
ég geri næst, það er allavega óráðið sem
stendur, og markmiðið er bara að deyja
sáttur maður. Ég er að vinna í því hægt
og rólega.
Heldur þú að þú gætir sómað þér
vel sem eftirmaður vinar þíns,
Jóns Gnarr, sem borgarstjóri?
Nei, takk, ég er góður. Ég
væri hins vegar til í að verða
forsætisráðherra (hlær).
Nei, eða sendiherra, ég
held að það væri ekta ég.
Maður gæti kannski verið
sendiherrann í Svíþjóð,
boðið einhverju fl ottu
fólki og verið bara: „Yes,
you must visit Iceland, it‘s
very nice.“ Veistu hvernig
maður kemst í svoleiðis
starf?
ÞETTA EÐA HITT
Næturvaktin eða 70
mínútur? Annað er leikið
og hitt ekki, varla hægt
að bera það saman. Bæði
mjög skemmtilegt og bæði
börn síns tíma.
Uppistand eða sjónvarp?
Skemmtunin er jafnmikil
en ólík. Þú færð viðbrögð
beint í æð í uppistandi en
í sjónvarpinu færðu bara
viðbrögð svona út undan
þér.
Jón Ársæll eða
kötturinn? Kötturinn, ekki
spurning.
Hvort myndir þú frekar
vilja vinna sem starfs-
maður á plani á bensínstöð alla ævi eða
stofna Grínskóla Péturs Jóhanns þar sem
þú kenndir fólki að vera fyndið? Starfs-
maður á plani. Það væri vonlaust fyrir mig
að ætla að fara að miðla því í einhverjum
skóla hvernig ætti að vera fyndinn.