Morgunblaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 2011 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is SAMHERJI hf. á Akureyri veitti í gær 75 milljónir króna til ýmissa sam- félagsverkefna á Eyjafjarðarsvæð- inu. Þetta er fjórða árið í röð sem fyr- irtækið styrkir starfsemi við Eyja- fjörð með þessum hætti. „Samherji kappkostar að láta sam- félagið kringum sig njóta góðs af starfseminni með því að styrkja inn- viði þess með ýmsum hætti. Félagið hefur frá fyrsta ári styrkt mörg góð málefni allan ársins hring, ekki síst starfsemi íþróttafélaganna,“ sagði Helga Steinunn Guðmundsdóttir, einn eigenda félagsins og formaður Samherjasjóðsins, á fjölmennri sam- komu í KA-heimilinu á Akureyri. Árið 2008 afhenti Samherji ýmsa styrki af þessu tagi, í tilefni þess að það ár voru liðin 25 ár frá því Ak- ureyrin EA, fyrsta skip félagsins, fór í sína fyrstu veiðiför. Það var hugsað sem einstök afmælisgjöf en Helga Steinunn sagði að vegna þess hve vel styrkjunum hefði verið tekið og hversu þörfin hefði reynst mikil – og vegna þess að rekstur Samherja hefði gengið vel undanfarin ár – hefði verið ákveðið að endurtaka leikinn á hverju ári síðan. „Ég vil ítreka það sem margoft hef- ur verið sagt að þátttaka barna og unglinga í íþróttum er ómetanlegur þáttur í forvörnum og uppeldi. Sam- herji vill efla þetta starf enn frekar með því að veita nokkrum íþrótta- og æskulýðsfélögum styrki. Fjármunun- um skal varið á næstu mánuðum til að lækka æfingagjöld barna og unglinga og/eða til að lækka kostnað við keppn- isferðir þeirra veturinn 2011-2012 og styrkja starfið með öðrum hætti,“ sagði Helga Steinunn Guðmundsdótt- ir. Hún sagði styrkina ekki síður við- urkenningu til þess stóra hóps fólks, foreldra og forsvarsmanna íþrótta- félaga, sem ynni óeigingjarnt starf í ómældu magni í þágu félaganna, án þess að þiggja krónu fyrir í laun. Tilkynnt var á samkomunni í gær að Samherji hefði ákveðið að styrkja sérstakt rannsóknarverkefni sem tengist hverastrýtunum á botni Eyja- fjarðar, sem nýstofnað félag hefur ákveðið að ráðast í. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og verndari ÍSÍ, er verndari verkefnisins. Hann var viðstaddur samkomuna í gær ásamt eiginkonu sinni, Dorrit Mouss- aieff, og tók þátt í að afhenda styrkina frá Samherja. »14 Samherji veitir 75 millj. í styrki  Megnið rennur til barna- og ung- lingastarfs íþrótta- og æskulýðsfélaga Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Styrkur Hjónin Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja, og Kolbrún Ingólfsdóttir með forsetahjónunum, Ólafi Ragnari og Dorrit Moussaieff. Makrílveiðar Íslendinga á árinu 2011 skiluðu þjóðarbúinu meira en 25 milljörðum króna og sköpuðu yf- ir þúsund ársverk á sjó og landi, að afleiddum störfum meðtöldum. Ársafli Íslendinga á árinu sem er að líða var um 156 þúsund tonn. Makríl var landað í 28 höfnum en nærri 80% þess afla kom að landi í Reykjavík, á Vopnafirði, Neskaup- stað, Eskifirði og í Vestmanna- eyjum. Á Austfjörðum komu að landi 55% alls makrílafla, 23% í Vestmannaeyjum og um 8.400 tonn eða um 5% komu að landi á Vest- urlandi, Vestfjörðum og Norður- landi, að því er fram kemur í frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu. 25 milljarða verðmæti makrílsins jafngildir um 5% af öllum útflutn- ingstekjum Íslands og er jafngildi þess sem þjóðin ver árlega til inn- flutnings matvæla, svo dæmi sé tek- ið, segir í frétt ráðuneytisins. Á árinu 2011 er talið að yfir 90% af öllum afla fari til manneldis, 72% aflaheimilda fóru til hefðbundinna uppsjávarskipa og 22% til frysti- skipa en heimildum hefur einnig verið ráðstafað til ísfiskskipa og smábáta. Veiðiheimildir í makríl skiptust í ár milli 100 íslenskra fiskiskipa. Í heildina er reiknað með að makríl- veiðar hafi skapað 200 bein störf á sjó og jafnmörg í landi. Afleidd störf eru síðan talin vera um 600 þannig að ársverkin eru samtals talin vera um 1.000. aij@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Verðmæti Makríllinn er Íslend- ingum sannarlega dýrmætur. Makríll skilaði þjóð- arbúinu 25 milljörðum „Tvær vélar eru þarna og ég var að færa aðra þeirra yfir á austurhlið eyjarinnar vegna þess að sjórinn gengur svo mikið yfir hana á norðurhlið- inni,“ segir Sigurður Harðarson rafeindavirki sem fór með þyrlu Landhelgisgæslu Íslands, TF- LIF, út í Eldey í gærdag til að huga að vef- myndavélum sem notaðar eru til að fylgjast með daglegu lífi súlnanna, en í Eldey er ein stærsta súlubyggð heims. Auk þess að færa aðra skipti hann einnig um hina þar sem líming hafði gefið sig sökum mikils hita á eynni í sumar. Nánar er sagt frá ferðinni í mbl-sjónvarpi í dag. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gott sumarveður skemmdi vefmyndavél úti í Eldey Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Fjölskylduhjálp Íslands var með neyðarúthlutun í Reykjavík í gær og verður með slíka úthlutun í Keflavík í dag. Fjölmargir höfðu haft samband við samtökin og óskað eftir mataraðstoð, en til stóð að lokað yrði á milli jóla og nýárs. „Til okkar komu um 300 fjölskyldur, bæði eldri borgarar og einstæðingar, en einnig var nokkuð um stórar fjölskyldur,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálparinnar. Hún segir að margir hafi verið að koma til sam- takanna í fyrsta skipti. Nokkrir þeirra hafi brotn- að saman við komuna. „Fólk hefur verið að reyna að komast hjá því að leita til hjálparsamtaka. Það er áfall fyrir marga að vera komnir í þessi spor.“ Fjölskylduhjálp Íslands hefur ekki verið með úthlutun á milli jóla og nýárs áður, en Ásgerður segir að birgjarnir sem starfa með samtökunum hafi brugðist fljótt við. Að auki hafi fjölmargir lagt leið sína til samtakanna með matargjafir. „Þetta er auðvitað skelfilegt. En það kemur manni fátt á óvart lengur í þessum efnum eins og ástandið er. Því miður,“ segir Ásgerður. Meira af Íslendingum en áður Hjálparstarfi kirkjunnar hafa ekki borist fleiri beiðnir á milli jóla og nýárs en gerist og gengur á öðrum tímum ársins að sögn Atla Harðarsonar hjá hjálparstarfinu. „Það hafa nokkrir komið til okkar undanfarið, rétt eins og alla aðra daga. Við höfum hjálpað þeim sem hafa þurft á að halda,“ segir Atli. Hann segir að eitthvað hafi verið um að fólk hafi fengið úttektarkort til að taka út mat- vörur, en fyrst og fremst hafi verið beðið um aðstoð við að leysa út lyf. Að sögn Atla leitaði svipaður fjöldi aðstoðar hjálparstarfsins fyrir þessi jól og undanfarin ár. „Það var meira af Íslendingum í ár en áður, við sáum líka nokkuð af nýju fólki.“ Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, segir nefndina hafa aðstoð- að nokkra sem misstu af úthlutun fyrir jólin og tek- ið á móti símtölum frá fólki sem þarf á aðstoð að halda. „En ég myndi ekki kalla það neyðaraðstoð. Við veittum einnig mikla aðstoð fyrir jólin og það gekk mjög vel, þökk sé öllum þeim sem lögðu þar hönd á plóg.“ Þrjú hundruð fjölskyldur leit- uðu eftir neyðaraðstoð í gær  Mæðrastyrksnefnd og Hjálparstofnun kirkjunnar segja þörfina svipaða Forstjóri Samherja gagnrýndi í gær fyr- irhugaðar breytingar á stjórn fisk- veiða. „Við þurfum að standa sam- an sem einn maður gegn vanhugsuðum breytingum á núverandi fisk- veiðistjórnunarkerfi. Vissulega má sníða af því agnúa en að bylta því er óðs manns æði og ávísun á enn frekari niðurskurð starfa hér við Eyjafjörð,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson. Óðs manns æði að bylta FISKVEIÐIKERFIÐ Þorsteinn Már Baldvinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.