Monitor - 01.12.2011, Síða 14
14 Monitor FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2011
heim. Ég lenti í alls konar stríðum við félagið mitt og svo
var ég með lögfræðinga í fasteignaveseni. Það eru gildrur
úti um allt í þessu, þegar þú átt mikinn pening þá koma
margir til þín og reyna að hafa af þér pening og selja þér
hugmyndir.
Hvernig komst þú frá þessum gildrum?
Ekkert rosalega vel en ég lenti heldur ekkert í neinu
til að væla yfi r. Ég kom heim með allar medalíurnar og
nokkrar krónur í töskunni en ekkert mikið meira en það.
Kannski það sem mér er dýrmætast er unnusta mín sem
ég kynntist á þessum tíma.
Eins og þú segir ert þú mikið í því að halda fyrirlestra.
Er það þér hjartans mál að fræða aðra og vera fyrir-
mynd?
Fyrirlesturinn var saminn upp á móti bókinni, hann
er um hvað maður þarf að gera til að komast langt í leik
og starfi . Ég vil ekkert vera að monta mig neitt en þetta
er klárlega vinsælasti fyrirlestur á Íslandi í dag. Ég hef
fl utt hann í háskólum, framhaldsskólum, grunnskólum,
fyrirtækjum, íþróttafélögum og félagsmiðstöðvum, ég hef
farið út um allt land með hann. Þetta er mikill leiðarvísir,
hvetjandi og veitir mikinn innblástur. Hann heitir „Það
fæðist enginn atvinnumaður“ en fjallar í raun bara um
leiðina að árangri. Ég er að kenna ákveðna formúlu sem
þarf að vera í lagi til að ná árangri, og það er ekki bara
tengt íþróttum heldur bara í lífi nu almennt. Maður er
búinn að vera fyrirmynd í mörg ár, hef lent í mörgu og
hef ástríðu fyrir að kenna fólki, ekki síður fullorðnum.
Þegar manni líður sjálfum vel þá er um að gera að hjálpa
öðrum, það er lógískt.
Nú ert þú á góðri leið með að geta farið að kalla þig
poppstjörnu. Hefur poppstjörnudraumurinn blundað
lengi í þér?
Ég hef alltaf haft gaman af tónlist og er algjör dellukarl.
Til dæmis keypti ég mér einu sinni hátt í tíu gítara án
þess að kunna stakt grip. Svo er ég úrasafnari og á orðið
svakalegt safn og get ekki hætt. Ég fer alltaf „all-in“ í
allt, þetta heitir að vera extrímisti. Allt sem ég geri
og ætla mér að gera vel geri ég af heilum hug. Ég
ætla ekkert að fara að sigra heiminn með þessu
poppi en það sem mig langaði mest að gera var
að skoða, eins og ég er að kenna krökkunum
að gera. Mig langar bara að sjá hvar mitt svið
liggur og spyrja sjálfan mig, hvað get ég? Ég
er ekki alveg farinn í hausnum varðandi það
að halda að ég sé góður tónlistarmaður eða
einhver „poppstjarna“ en þökk sé Stop Wait
Go og „auto-tune“, þá þarf maður ekki að
vera Celine Dion til að búa til gott lag.
Þetta snýst um að hafa gaman af því sem
maður gerir.
Er þetta tónlistarverkefni komið til að
vera?
Já, ég held það. Þessi hugmynd að
netsjónvarpsþættinum Karlaklefi nn:
Round 2 kom í raun bara upp úr því að
mig langaði að fá greiðann til baka
frá Einari Bárðar, eftir að ég hafði
hjálpað honum að byrja að hreyfa
sig af krafti. Hann er rosalega vel
tengdur inn í tónlistarheiminn,
hann er náttúrlega umboðsmaður
Íslands, svo hann hlaut að geta
hjálpað karlinum í að búa til einn
góðan slagara, sem hann gerði því
þetta er geggjað lag.
Hvert stefnir þú með þetta lag,
Komdu með?
Ég er ekki alveg klár á því hvert þetta
stefnir en ég held að þetta verði algjör
partíslagari, að öllu gríni slepptu. Annars
hef ég ekki sett mér nein markmið hvað
tónlistina varðar annað en að hafa gaman
af þessu. Ég var bara með eitt markmið, að
fá hjálp við að gefa út eitt gott lag og svo ætla
ég bara að sjá hvernig það endar og hvert það
leiðir mig. Ég er allavega búinn að opna þessar
dyr.
ÞETTA EÐA HITT
FH eða Lemgo? FH.
Lyftingasalurinn eða handboltavöllurinn?
Bæði, ég hef mikla ástríðu fyrir báðum
hlutunum.
Hárgreiðslan eða fötin? Hárgreiðslan, ég
þarf engin föt til að vera fl ottur.
Hvort myndir þú frekar vilja komast til
Barcelona og verða Evrópumeistari eða
halda tónleika fyrir framan troðfullan
Wembley? Halda tónleika á Wembley,
klárlega. Ég er eiginlega búinn með hitt.
Til dæmis keypti ég
mér einu sinni hátt í
tíu gítara án þess að kunna
stakt grip. Svo er ég úra-
safnari og á orðið svakalegt
safn og get ekki hætt. Ég
fer alltaf „all-in“ í allt.