Monitor - 01.12.2011, Side 17
17 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2011 Monitor
Tíminn fl ýgur hratt á gervihnattaöld og með hverri sekúndunni sem líður umbreytist heimurinn sem við byggjum. Árið styttist, fólk eldist, yfi rborð sjávar
hækkar og tækninni fl eygir fram eins og enginn sé morg-
undagurinn. Svo ört þróast tæknin á öllum mögulegum
sviðum að segja mætti að tækni dagsins í dag verði úrelt
ekki seinna en á morgun.
Ég hef oft látið hugann reika að því hvernig það var að upplifa tækniframfarir fortíðarinnar, til dæmis byltinguna sem átti sér stað þegar litasjónvarp leit
dagsins ljós. Eins hef ég hugsað um fyrstu kynni foreldra
minna af tölvum. Munurinn á fyrstu tölvunni sem þau
prófuðu og þeirri sem ég nota í dag er eins og munurinn
á hestvagni og sportbíl. Á meðan ég get lagst upp í rúm
með litla og fallega hannaða fartölvu sem vegur sama og
ekkert hlömmuðu þau sér við luralegan málmkassahlunk.
Tölvuna þeirra skorti tölvumús og litaskjá og það var ekki
einu sinni hægt að horfa á bíómynd í henni, hvað þá fara á
Internetið.
Í dag lítur maður til baka og nánast hlær yfi r tækni síðustu áratuga. Manni fi nnst súrrealískt að foreldrar manns hafi skipulagt bíóferð með vinunum án þess
að senda þeim SMS eða skilaboð á Facebook. Manni fi nnst
fyndið að tónlistarmenn hafi eitt sinn gefi ð út tónlist í
tonnavís á kasettum og það er varla að maður geti ímynd-
að sér líf þar sem ekki er hægt að skera úr um vafaatriði
með því að fl etta því upp á alnetinu.
Hvernig var þegar fólkið sem sat við „steinaldartölv-urnar“ horfði fram á veginn? Hefði það nokkurn tímann getað ímyndað sér að upp úr árinu 2000
yrði til hljómfl utningstæki sem er á stærð við frímerki og
getur spilað rífl ega þúsund lög? Hefði það einu sinni getað
ímyndað sér tilvist Veraldarvefsins og að það yrði órjúf-
anlegur þáttur í vestrænu samfélagi á 21. öldinni? Maður
leyfi r sér að efast um það.
Að sama skapi er gaman að reyna að segja til um hvað tæknifl óra komandi áratuga á eftir að bjóða upp á og velta fyrir sér hvað á eftir að þykja
sjálfsagður hlutur. Ég sé fyrir mér að kannski verði til augn-
linsa sem fólk smellir í augað á sér og notar sem myndavél,
sjónvarp og internetvafra, allt í senn. Ég sé fyrir að jafnvel
verði bylting í skilningi á draumunum sem okkur dreymir á
næturna, einn daginn verður kannski hægt að taka þá upp,
endurupplifa morguninn eftir og að sjálfsögðu deila þeim
á Facebook.
Þessar spár mínar set ég fram án þess að þora að leggja eitthvað undir. Líkt og ég segi voru efl aust fáir sem spáðu fyrir um tilvist iPod Nano fyrir þremur
áratugum og yfi rleitt reynist erfi tt að spá fyrir um tækni-
nýjungar. Í því samhengi er gaman að benda á kvikmynd
eins og Back to the Future II þar sem aðalpersónan ferðast
fram til ársins 2015 þar sem allir helstu töffararnir fl júga
um á svifbrettum. Sennilega verður að teljast ólíklegt að
sú verði raunin á því herrans. Þegar tæknin er annars
vegar skal þó aldrei segja aldrei, kannski verða svifbretti
aðalgjöfi n jólin 2015. Þangað til bíð ég spenntur og læt mig
dreyma um að geta fengið „like“ á Facebook fyrir fyndnu
draumana mína.
Einar Lövdahl Gunnlaugsson
einar@monitor.is
ORÐ Í BELG
Svifbretti aðaljólagjöfi n árið 2015?
Á SVONA BRETTI VÆRI BÓKSTAFLEGA HÆGT
AÐ FERÐAST Á FLJÚGANDI FERÐ