Monitor - 01.12.2011, Side 18
18 Monitor FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2011
Hvað á
barnið
að heita?
Stórstjörnur Hollywood taka oft upp á því
að nefna börnin sín algjörlega einstökum
nöfnum. Monitor gekk í hlutverk manna-
nafnanefndar Hollywood og tók út nokkur
af undarlegustu barnanöfnunum þar á bæ.
Skírður eftir
Superman
Kal-el Cage
Leikarinn Nicolas Cage er afar
ástríðufullur þegar kemur að
áhugamálum sínum. Hann er
gríðarlegur Elvis-aðdáandi og
gekk alla leið með þann áhuga
þegar hann gekk að eiga dóttur
Elvis, Lisu Marie Presley. Hann er
einnig mikill myndasöguáhuga-
maður og kom því til skila með
því að skíra son sinn Kal-el sem
er einmitt fæðingarnafn sjálfs
Superman.
NICOLAS BÚR
Furðunafnaþema
í U2?
Blue Angel Evans (The Edge)
Memphis Eve Hewson (Bono)
Dætur þeirra Bono og The Edge, sem hafa
gert garðinn frægan með U2, fengu sérstök
nöfn þegar þær komu í heiminn. Dóttir
Edge var nefnd Blár Engill á meðan nafnið
Memphis Kvöld minnir um margt á nafn
dóttur Bubba sem heitir Dögun París. NÖFN ÞEIRRA U2 MANNA
ERU ALVEG Á BRÚNINNI
Nefnd eftir
tölvufyrirtækinu?
Apple Martin
Það væri forvitnilegt að vita hvort Steve Jobs og
félagar hjá Apple-fyrirtækinu hafi ekki fagnað
því árið 2004 þegar stjörnuparið Chris Martin og
Gwyneth Paltrow tóku upp á því að nefna dóttur
sína Apple enda ágætisauglýsing fyrir fyrirtæk-
ið. Þess má til gamans geta að sonur parsins
heitir Moses Martin.
PALTROW OG MARTIN SJÁST NÁNAST
ALDREI SAMAN OPINBERLEGA
Flugmaður
Eftirlitsmaður
Jónsson
Pilot Inspektor Lee
Leikarinn Jason Lee úr My Name Is Earl gerðist
aldeilis flippaður þegar hann ákvað að nefna son
sinn hinu athyglisverða nafni Pilot Inspektor. Hann
segist hafa sótt nafnið úr lagatexta eftir hljómsveit-
ina Granddaddy en ef nafnið yrði íslenskað gæti
það útlagst sem Flugmaður Eftirlitsmaður.
ÆTLI JASON LEE SÉ SVONA
HRIFINN AF PILOT-PENNUM?
Hljóðið í
örbylgjuofninum
Bingham Hawn Bellamy
Síðastliðið sumar eignuðust leikkonan Kate
Hudson og rokkarinn Matthew Bellamy
soninn Bingham Hawn sem þau hyggjast
kalla „Bing“. Þótt Bingham ku vera milli-
nafn móður Bellamy þá hafa ýmsir grínast
með að hugmynd nafnsins sé komin frá
hljóðinu sem örbylgjuofn gefur frá sér þegar
poppkornið er tilbúið.
VEÐBANKAR SPÁ ÞVÍ AÐ NÆSTA
BARN ÞEIRRA MUNI HEITA DING-DONG
Blóðugt nafn
Sage Moonblood Stallone
Það þarf kannski ekki að koma mörgum á óvart
að leikari sem hefur leikið jafneitilharða persónu
og Rambo er, og það í heilum fjórum myndum,
skuli skíra son sinn einhverju hörðu nafni.
Í beinþýðingu mætti segja að sonurinn heiti
Vitringur Mánablóð.
SYLVESTER
STÁLLÓN
Krakki sem
heitir Krakki
Kyd Duchovny
Eflaust er X-Files- og California-
cation-stjarnan David Duchovny
hrifinn af aulabröndurum og
orðagríni því hann tók upp á því
snjallræði að skíra son sinn Kyd
sem hljómar auðvitað eins og hið
enska orð „kid“ sem þýðir einmitt
„krakki“ á hinu ástkæra, ylhýra. ER ÞETTA KANNSKI BARA EINS
OG ÞEGAR MENN HEITA SVEINN?