Monitor - 01.12.2011, Side 22
22 Monitor FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2011
LOKAPRÓFIÐ skólinn
| 1. desember 2011 |
fílófaxið
fi mmtud1des
IMMO - PETER PAN FRUM-
SÝNING Á MYNDBANDI
Noland, Kringlunni
18:00 Ívar Schram eða IMMO hefur verið að gera það gott að
undanförnu með lagi sínu Barcelona. Nýja
lagið hans, Peter Pan, gerði hann í samvinnu
við Opee, Unnstein Manuel og Fonetik Simbol
en í myndbandinu fá þeir félagar unga stráka
til að leika listamennina á þeirra yngri árum.
Lagið verður fáanlegt á gogoyoko.com.
GRAFÍK - ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
Austurbær
20:00 30 ár eru liðin frá því að hljómsveitin var stofnuð
og af því tilefni senda Grafíkliðar nú frá sér
heimildarmynd og tvær geislaplötur með
bestu lögum sveitarinnar. Í Austurbæ munu
því lög eins og Mér fi nnst rigningin góð,
Þúsund sinnum segðu já og Presley efl aust fá
að óma. Miðaverð er 4.900 krónur.
FÍASKÓ - PARTÍSPILAKVÖLD
Úrilla Górillan
21:00 Kópavogsdrengirnir sem sendu nýverið frá sér
partíspilið Fíaskó ætla að halda alvöru
spilakvöld á Úrillu Górillunni. Munu þeir
bjóða upp á veigar og óvænt skemmtiatriði.
Aldurstakmark er 18 ára.
ÚTGÁFUTEITI FLICKMY-
LIFE-BÓKARINNAR
Faktorý
21:00 Ókeibæ(!)kur og Forlagið bjóða til teitis á Faktorý
í tilefni af útgáfu Flickmylife-bókarinnar.
Kynnir kvöldsins er Hugleikur Dagsson og þá
mun Dóri DNA einnig fara með gamanmál.
Þá munu fl eiri grínistar spjalla um sínar
uppáhaldsmyndir úr bókinni.
Kvikmynd: Þær eru nú alveg þó
nokkrar en það sem kemur helst
upp er „The Usual suspect“, ein göm-
ul og góð. Forrest Gump get ég horft
á aftur og aftur, æðisleg mynd. Það
nýjasta er Black Swan sem er alveg
mögnuð mynd og Natalie Portman er
framúrskarandi.
Þáttur: House eru alveg
frábærir þættir. Þegar
ég byrjaði var ég alveg
„hooked“ og hætti ekki fyrr
en ég var búin með alla
þættina sem voru komnir út.
Svo get ég alltaf horft á Friends
og Two and a Half Men.
Bók: Undanfarið hefur lítið
komist að nema námsbækur en
á árum áður hélt ég mikið upp á
bækur eftir Arnald Indriðason.
Ég elska einnig Hringa-
dróttinssögu, ég fer þá
inn í þennan ævintýra-
heim og á alltaf í erfi ð-
leikum með að koma mér
aftur í raunveruleikann.
Plata: Mér fi nnst allar plöturnar
með Itshak Perlmann fi ðluleik-
ara vera geðveikar og ég held ég
eigi fl estar með honum. Hann
er besti fi ðluleikari allra tíma að
mínu mati!
Vefsíða: Ég er nýbúin að
uppgötva www.khana-
cademy.org sem er algjör
snilld! Þessi síða er búin
að hjálpa mér svo mikið
en inni á henni er fullt af
fyrirlestrum í hinum og
þessum námsgreinum.
Staður: Á Íslandi fi nnst
mér Landmannalaugar
ótrúlega fallegur staður.
Svo elska ég litla ítalska
bæinn Cervo en þangað
fór ég fyrir nokkrum
árum í fi ðlukeppni.
Ég gleymi aldrei
hvað það var
fallegt þarna og
maturinn var
alveg geggjaður.
Síðast en ekki síst
» Magdalena Dubik, tónlistarkona, fílar:
FLASS FAGNAR 6 ÁRA AFMÆLI
Föstudagurinn 2. desember
Club Flass í Austurstræti kl. 22:00
Á föstudag eru 6 ár liðin síðan að útvarpsstöðin Flass 104,5 fór í
loftið í fyrsta skipti. Af því tilefni ætlar stöðin að blása til veislu á
föstudagskvöldið. „Við ætlum að halda upp á 6 ára afmælið með
pompi og prakt á Club Flass í Austurstrætinu,” segir Yngvi Eysteins
sem hefur verið við hljóðnemann á stöðinni frá því í mars á þessu
ári. Yngvi hóf reyndar störf á Flass fyrir 6 árum síðan en staldraði
við á FM957 í þrjú ár í millitíðinni. „Það hefur gríðarlega mikið
breyst síðan stöðin fór af stað á sínum tíma. Í dag er meðbyrinn
gríðarlegur og við fáum nýja hlustendur á hverjum degi. Við
gerðum vissar breytingar á þessu ári þegar við hættum að vera
eingöngu dúndrandi teknóstöð og urðum meira „mainstream”
og það virðist vera að virka.” Í afmælisveislunni munu Flass-liðar
opna nýja heimasíðu og eins netsjónvarpsstöðina FlassTV. „Það
má búast við dúndrandi veislu fyrir augu og eyru. Sykur mun
spila nokkra vel valda tóna og er ekki klassískt að einn óvæntur
leynigestur stígi á stokk? Svo ætlum við að sýna kynningar-
myndbönd af öllum starfsmönnunum og eins skýra frá því sem
framundan er. Ætlunin er að verða enn sterkari miðill hjá unga
fólkinu því við teljum vera nægt rými fyrir tvær útvarpsstöðvar
sem miða á yngri kynslóðina.” Húsið opnar klukkan 22:00 og
partíið byrjar svo 22:45
Dúndrandi veisla
fyrir augu og eyru
JÓLAFLÓAMARKAÐUR
Kjallari Hins Hússins
13:00 Stafsfólk Hins Hússins er í miklu jólaskapi og hefur í
tilefni þess látið ungum krökkum fría bása í
té svo þau geti selt föt, fylgihluti og allskyns
dót á vægu verði. Gestir geta því átt von á því
að gera góð kaup af góðu fólki í góðu skapi.
LAY LOW
Mælifell, Sauðárkróki
21:00 Lay Low er þessa dagana á ferð um landið ásamt
hljómsveit sinni. Nýja platan hennar,
Brostinn strengur, hefur heldur betur fengið
góðar viðtökur að undanförnu og því ætti að
vera tilvalið að skella sér á tónleika með Lay
Low. Miðaverð er 2.500 krónur.
laugardag3des
JARÐSKJÁLFTAR Í LONDON
Smiðjan
20:00 Nemendaleikhús Listahá-skóla Íslands frumsýnir á
föstudag verkið Jarðskjálftar í London eftir
Mike Bartlett. Verkið er sannkölluð rússíbana-
ferð þar sem þeyst er um í tíma og rúmi frá
1968 til ársins 2025 og aftur til baka. Miðaverð
er 1.500 krónur.
DIKTA
Bar 11
21:00 Vetrartónleikaröðin á Bar 11 heldur áfram og nú munu
strákarnir í Dikta stíga á stokk. Dikta þarf
vart að kynna enda sveitin búin að koma
sér vel fyrir í vitund landans. Að tónleikum
loknum mun Ómar af X-inu þeyta skífum en
aðgangur er ókeypis.
SVÍNARÍ
Faktorý
23:00 Á þessu áttunda Svín-aríi Monitor munu hinir
ljóðrænu Emmsjé Gauti, IMMO og OPEE sjá
um að trylla lýðinn. Sem fyrr er frítt inn og
því ættu allir að geta látið sjá sig og hreyft sig
í takt við grípandi laglínur og
unaðslegar rímur.
föstudagu2des
Allt að gerast - alla fi mmtudaga!
ERT ÞÚ AÐ GERA
EITTHVAÐ SKEMMTILEGT?
monitor@monitor.is