Monitor - 08.12.2011, Page 7
7 FIMMTUDAGUR 8. DESEMBER 2011 Monitor
Brúðkaupsdagurinn er oftast álitinn einstaklega mikil-
vægur dagur og ekki síst af okkur kvenfólkinu. Stjörn-
urnar eiga það til að fara yfir strikið þegar kemur að vali
á brúðarkjólnum og er reglan „minna er meira“ ágætis
þumalputtaregla sem gott er að hafa í huga. Þetta eru
fimm fallegustu brúðir allra tíma að mati Stílsins.
brúðirnar
Fallegustu
KATE MIDDLETON
Kate Englandsprinsessa ber af
hvað varðar fegurð og kjólaval.
Fallegri brúðarkjóll finnst ekki
þótt víða væri leitað, hann sæmir
sannri prinsessu. Látlaust en
einstaklega fallegt útlit hennar
landar henni fyrsta sætinu, hún á
það fyllilega skilið.
GRACE KELLY
Fegurðardísin er guðdómleg
í þessum fallega brúðarkjól
sem er einnig hannaður af
Helen Rose. Margir tala um
það að kjóll hinnar nýgiftu
Kate Middleton svipi mikið
til þessa kjóls og er margt
til í því. En fegurðardísin
er hér í þriðja sæti, bæði
fyrir ólýsanlega fegurð og
fallegan kjól.
DÍANA PRINSESSA
Díana prinsessa er gullfalleg í þessum umfangsmikla
kjól eftir Elizabeth Emanuel. En þó svo að kjóllinn
minni kannski einna helst á rjómatertu og er ágætt
dæmi um það sem var talað um áður, að fara yfir
strikið, þá lítur Díana alltaf glæsilega út og er hún ein
af fáum sem komast upp með það að vera í svona
kjól. Hún er í fjórða sæti.
SARAH JESSICA PARKER
Það muna eflaust allir eftir brúðarkjólnum
hennar
Carrie Bradshaw. Þessi dásamlegi kjóll sem
er
hannaður af Vivienne Westwood fór Sex a
nd the City-
stjörnunni einstaklega vel og bætti hún fjö
ður í hárið
sem setur punktinn yfir i-ið. Annað sætið
á hún skilið.
ELIZABETH TAYLOR
Hér er kvikmyndastjarnan m
eiriháttar falleg í kjól eftir
Helen Rose sem hún klæddi
st þegar hún lék eitt aðal-
hlutverkið í myndinni Father
Of The Bride. Blúndurnar
í hálsmálinu og rauði varalitu
rinn algjörlega fullkomna
lúkkið. Elizabeth hreppir fimm
ta sætið.
VILTU
VINNA
EINTAK?
VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM.
199 KR/SKEYTIÐ. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
Sendu SMSið
EST OPOLY
á númerið 1900
og þú gaetir
unnið eintak!.
Fullt af aukavinningum: DVD myndir, tölvuleikir og fleira!
BorÐspil um skemmtilegasta
land í heimi!