Monitor - 15.12.2011, Qupperneq 22
LOKAPRÓFIÐ skólinn
Kvikmynd: Ég er mikið fyrir þess-
ar léttu og rómantísku, sem ég
get horft á aftur og aftur, eins og
Love Actually. Síðan sá ég Forrest
Gump í fyrsta skipti um jólin 2008
og hún fer núna alltaf reglulega í
tækið, frasarnir klikka aldrei.
Þáttur: Ég fylgist með ótrúlega
mörgum þáttum, vandræða-
lega mörgum eiginlega,
þættir sem heita Revenge
hafa komið mjög sterkir inn
í vetur en annars elska ég
alltaf gömlu góðu Friends.
Bók: Uppá-
haldsbókin
mín er Flug-
drekahlaup-
arinn, frábær
saga og bókin
er miklu betri en
bíómyndin að mínu
mati. Síðan hlakka
ég til að hella mér
yfi r nýjasta Arnald
um jólin.
Plata: Ég hlusta nú meira
á lög heldur en ákveðnar
plötur og tónlistarmenn.
Annars kemur nýja platan
með Coldplay sterk inn og Of
Monsters and Men er frábær.
Jólalögin eiga hins vegar hug minn allan
þessa stundina enda algjört jólabarn.
Vefur: Það fylgir starfi nu
að lesa fréttamiðlana vel
og vandlega en þess á milli
er Facebook staðurinn
þar sem ég byrja og enda
hvern dag. Ég er að læra á
Twitter en er farin að halda að
það sé meiri útrás fyrir reiða
fótboltaaðdáendur.
Staður: Ég fer
til London að
minnsta kosti
einu sinni á
ári og held að
það sé minn
uppáhaldsstaður til að
versla, fara gott út að borða
og kannski kíkja í leikhús.
Síðast en ekki síst
» Jóhanna Margrét Gísladóttir, fréttakona, fílar:
| 15. desember 2011 |
22 Monitor FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2011
Sendu SMS-ið ESL JOL
á númerið 1900, svaraðu einni
spurningu og þú ert kominn
í pottinn.
Aðalvinningur:
40" LCD Samsung TV
Aukavinningar eru:
Bíómiðar – Tölvuleikir – DVD myndir ofl.
*Aðalvinningar dregnir úr öllum innsendum
skeytum 23. desember. Vinningar verða afhentir í
ELKO Lindum, Kópavogi. Með því að taka þátt
ertu kominn í SMS klúbb. 149 kr./SMS-ið.
Þú færð 5 mínútur til að svara spurningu.
Leik lýkur 22. desember 2011
40” LCD SAMSUNG
hd tv