Monitor - 21.12.2011, Qupperneq 7
7 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2011 Monitor
Stíllinn fékk tónlistarkonuna, þáttastjórnandann og tísku-
skvísuna hana Þórunni Antoníu til að sýna okkur hvernig við
stelpurnar eigum að klæða okkur um hátíðirnar. Rauður vara-
litur, stórt skart og litríkir kjólar eru algjörlega málið þessi jól.
fataskápurinn
Hlýr pels ómissandi
JÓLABOÐIÐ
Þá valdi ég þennan
skemmtilega kjól úr
Dúkkuhúsinu. Hann er
í smá 60´s stíl sem
ég elska, minnir mig
smá á Mia Farrow eða
Twiggy vegna hvíta
kragans. Skórnir eru
úr Maníu.
GAMLÁRS-
KVÖLD
Það er óskrifuð regla
að vera í pallíettum
á gamlárskvöld,
þennan fékk ég í
Dúkkuhúsinu og
hann er nútíma-
legasti kjóllinn af
þessum dressum,
þröngur „bodycon”
kjóll sem
klikkar
ekki.
Hvað verslar þú helst fötin þín?
Ég finn alltaf eitthvað fallegt í Rokki og Rósum og
Dúkkuhúsinu, einnig fer ég reglulega í Spútnik og
Rauðakrossbúðina, maður veit aldrei hvaða gersemar
leynast þar.
Hver er uppáhaldsbúðin þín hérna heima?
Rokk og Rósir, Dúkkuhúsið og Manía og síðan Mac fyrir
snyrtivörur.
Hvað kemur þér í jólaskap?
Mandarínur, gamla Coca Cola-auglýsingin og góður
jólabjór.
Hvert er hið fullkomna jóladress?
Einhver fallegur litríkur kjóll sem er kannski
ekki of þröngur í mittið svo að það sé pláss
fyrir allan jólamatinn og hlýr pels er algjört
„must“ á þessum árstíma.
Hver er uppáhaldsjólasveinninn þinn?
Stúfur, því að við erum
ábyggilega svipuð á
hæð.
Hvar eyðir þú
jólunum í ár?
Vonandi sem mest heima
hjá mér í kúri en svo fer ég til
mömmu á aðfangadagskvöld
og til Hveragerðis til pabba á
annan í jólum.
Áttu þér fyrirmynd í tískuheimin-
um?
Nei, ekki neina sérstaka heldur lað-
ast ég að sterkum litríkum persónu-
leikum og sæki mikinn innblástur í
50´s, 60´s og 70´s gyðjur eins og t.d.
Brigitte Bardot, Marilyn Monroe og
Stevie Nicks.
Ef þú mættir velja hvaða hönnuð
sem er til að dressa þig upp fyrir
mikilvægan atburð, hvaða hönnuð
myndur þú velja?
Ég myndi frekar vilja einhvern súper-
stílista eins og Rachel Zoe til að fá
lánaða kjóla frá öllum stærstu hönnuð-
unum svo ég gæti valið sjálf.
Er eitthvað sem er ómissandi fyrir
áramótadressið í ár?
Fallegt stórt skart og dimmrauður varalitur
úr Mac.
Hvað er næst á döfinni hjá þér?
Það er poppplata í smíðum með Berndsen.
Svo var ég að syngja á nýju plötu Thenewno2
ásamt RZA, Regina Spector og Ben Harper
sem kemur út á nýja árinu og það er alltaf
ANNAR Í JÓLUM
Ég veit ekki hversu mikið notagildi
er í þessari flík en ég verð að segja
að það er ekkert jólalegra en þessi
70´s silkisamfestingur sem ég fann í
Englandi á engan pening. Hann minnti
mig á Boogie Nights eða Michelle
Pfeiffer í Scarface, svo eru
samfestingar að mínu mati
skuggalega vanmetnir, ég á
heilt safn!
Myndir/Sigurgeir S.
KJÓLL: DÚKKUHÚSIÐ
SKÓR: MANÍA KJÓLL: DÚKKUHÚSIÐ
SKÓR: MANÍA
KJÓLL: ROKK OG RÓSIR
SKÓR: DÚKKUHÚSIÐ
KJÓLL: KEYPTUR Í ENGLANDI
SKÓR: MANÍA
AÐFANGA-
DAGSKVÖLD
Þá er alveg málið að vera í
rómantískum kjól frá 1950.
Þennan fann ég í Rokk og
Rósum sem er gullnáma
fyrir fallega einstaka
kjóla. Gylltu skórnir eru
úr Dúkkuhúsinu, ég hef
notað þá mjög mikið.
VIÐ
H
JÁ
M
O
N
IT
OR
ÓS
KUM YKKUR GLEÐILEG
RA JÓLA