Monitor - 21.12.2011, Qupperneq 14
14 Monitor MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2011
| 21. desember 2011 |LOKAPRÓFIÐ skólinn
fílófaxið
miðviku21des
ORPHIC OXTRA
Faktorý
23:00 Orphic Oxtra gáfu í október út breiðskífuna Kebab Diskó
og ætla nú að fagna útgáfunni. Mun Orphic
Oxtra fl ytja sína óhreinræktuðu skringi-
balkan-tónlist í hliðarsal Faktorý á slaginu kl.
23:00. Sveitin lofar mjög náinni dansstund,
svita og jafnvel tárum. Mannmergð hljóm-
sveitarinnar verður meiri en nokkru sinni
fyrr og því má búast við hörku tónleikum
frá Orphic Oxtra. Aðgangur er
ókeypis.
ÁRSTÍÐIR OG LAY LOW
Fríkirkjan
21:00 Hljómsveitin Árstíðir og Lay Low hafa ákveðið að
sameina krafta sína þessi jólin og efna til
sannkallaðrar hátíðarveislu á Þorláksmessu
í Fríkirkjunni í Reykjavík. Þetta er fjórða árið
í röð sem Árstíðir spila í Fríkirkjunni í síðari
hluta desember og má því segja að komin sé
á hefð fyrir þessum hátíðartónleikum. Lay
Low tekur nú þátt í fyrsta skipti en hún er
ekki ókunn Fríkirkjunni og hélt meðal annars
útgáfutónleika sína þar fyrir stuttu við góðan
orðstír. Á tónleikunum munu listamennirnir
fl ytja eigið efni í bland við jólalög sem standa
þeim nærri. Tónleikarnir í Fríkirkjunni hefjast
klukkan 21:00 en húsið opnar kl. 20:30.
Miðasala hafi n á midi.is
föstudag23des
ÓTTALEGIR JÓLASVEINAR
Fimmtudaginn 22. desember kl. 20.00
Gamla bíó
Mundi vondi frumsýnir nýjustu stuttmynd sína, Óttalegir jólasveinar,
á fi mmtudag. Sérstakur veislustjóri þetta kvöldið verður Páll Óskar
og þá mun hópur tónlistarmanna spila tónlist yfi r myndina. „Þetta er
stuttmynd sem var tekin upp síðustu jól en það koma um 90 manns
að henni. Myndin er náttúrulega stranglega bönnuð börnum enda
fjallar hún um tvo jólasveina sem ganga berserksgang,“ segir Mundi
en myndin er sameiginleg hugarsmíð hans og Snorra Ásmundssonar
en Snorri fer með aðalhlutverk ásamt Atla Óskari Fjalarssyni sem gerði
garðinn frægan í Óróa. Mundi býst við góðri stemningu. „Barinn verður
opinn, þarna verður jóla-djass og piparkökur, gjörningar og lifandi tón-
list í húsinu.“ Miðasala fer fram á midi.is og kostar miðinn 1.000 krónur.
Jólasveinar ganga
berserksgang
* Gildir á meðan birgðir endast.
Þú kemst í samband við jólaandann
Þín ánægja er okkar markmið
vodafone.is
Frábær tilboð á snjöllum símum
Samsung Galaxy W
59.990 kr. staðgreitt
eða 4,999 kr. á mánuði í 12 mánuði
Fjölskyldu ALIAS fylgir *
Samsung Galaxy Y
24.990 kr. staðgreitt
eða 2.083 kr. á mánuði í 12 mánuði
Fjölskyldu ALIAS fylgir *
i i i i .
VALDIMAR, MOSES HIGH-
TOWER OG OJBA RASTA
Nasa
22:00 Hljómsveitirnar Valdimar, Moses Hightower og Ojba
Rasta eiga það sameiginlegt að ætla að spila
á Nasa á Þorláksmessu og hyggjast gefa út
nýjar plötur á næsta ári. Plata Valdimars,
Undraland, hefur notið mikilla vinsælda
á árinu og er hljómsveitin að vinna í nýju
efni þessa dagana. Moses Hightower hlaut
mikið lof fyrir plötu sína Búum til börn
en framboð á hljómleikum hefur verið af
skornum skammti sökum búseturöskunar
hljómsveitarmeðlima. Ojba Rasta er ellefu
manna reggí-hljómsveit sem meðal annars á
smellinn Jolly Good og hyggst sveitin senda
frá sér sína fyrstu breiðskífu snemma á
næsta ári. Miðaverð er 1.500 krónur í forsölu
á midi.is og 2.000 krónur við hurð.
SKRÍMSLAMESSA
Faktorý
23:00 Hljómsveitin Of Monsters and Men ætla að fagna jólun-
um með gestum og gangandi á Þorláksmessu
og ætla að rölta Laugaveginn á milli klukkan
19:00 og 22:00. Hljómsveitin staldrar við á
Nólu, Hemma og Valda, Skífunni, Prikinu og
Hressingarskálanum áður en hljóðfærun-
um er stungið í samband á Faktorý klukk-
an 23:00. Frítt er inn á alla tónleikana
enda OMAM í miklu jólastuði.