Morgunblaðið - 01.02.2012, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 1. F E B R Ú A R 2 0 1 2
Stofnað 1913 26. tölublað 100. árgangur
SKÆRIR LITIR,
MYNSTUR OG
ULL ÁBERANDI
TRYGGIR
ÁTTHÖGUM
SÍNUM
GLÓANDI GULL Í
GAMLA SAM-
KOMUHÚSINU
LUNDARANNSÓKNIR 15 GULLEYJAN Á AKUREYRI 31FATNAÐUR FRÁ LÚKA 10
Ómar Friðriksson
Baldur Arnarson
„Eldsneytið er langstærsti
kostnaðarliðurinn ásamt launum.
Þessar hækkanir fara því beint út í
verðlag,“ segir Jörundur Jörunds-
son, framkvæmdastjóri hjá Sam-
skipum innanlands, um áhrifin af enn
einni hækkun eldsneytisverðs.
Að sögn Jörundar eyðir stór flutn-
ingabifreið um 50 til 70 lítrum af dís-
ilolíu á hverja ekna 100 km. Aka þarf
1.270 km báðar leiðir milli Reykja-
víkur og Egilsstaða. Miðað við 60
lítra eyðslu á hundraðið og að verðið
á dísilolíu sé 253,3 kr. á lítra kostar
eldsneytið því nú 193.000 krónur.
30.000 króna hækkun á ferð
Til samanburðar kostaði dísil-
olíulítrinn 213,4 kr. í sjálfsafgreiðslu
hjá Skeljungi 10. janúar í fyrra.
Hefði akstur sömu flutningabifreiðar
því kostað 162.600 kr. í eldsneytis-
kaup eða um 30.000 kr. minna en nú.
Kristinn Skúlason, framkvæmda-
stjóri Krónunnar, segir allt kapp
verða lagt á að halda sama vöruverði
í verslunum á landsbyggðinni og á
höfuðborgarsvæðinu. Hitt sé ljóst að
greitt sé orðið með vissum vörum
sem seldar séu úti á landi. Olíuverðið
ógni afkomu og þrýsti á hækkanir.
Þrýstir á verðhækkanir
Eldsneytiskostnaður flutningabíls frá Reykjavík til Egilsstaða kominn í 193 þús.
Tuga þúsunda hækkun á fáum árum Verðbólguhorfur framundan eru dökkar
MÞyngri þrýstingur á verðlag » 8
Gríðarlegar hækkanir
» Hinn 20. nóvember 2008 var
algengt verð á dísilolíulítra 175,9
til 176,9 kr. í sjálfsafgreiðslu.
» Hinn 11. janúar 2006 var al-
gengt verð á dísilolíu 108,3 kr.
lítrinn en um helmingur fer í
skatt.
Ómskoðun á vegum Leit-
arstöðvar Krabbameinsfélagsins
hefst á morgun hjá þeim konum
sem fengið hafa frönsku PIP-
brjóstapúðana ígrædda. Alls eru
þær um 440 talsins. Að sögn Ragn-
heiðar Haraldsdóttur, forstjóra
Krabbameinsfélagsins, hafa um 160
konur fengið tíma í ómskoðun og
fleiri hafa haft samband. Munu þær
fá tíma á næstu vikum en Ragnheið-
ur segir skoðunina fara fram á
næstu 3-4 mánuðum. Skoðað er tvo
daga í viku á leitarstöðvum félags-
ins í Reykjavík og á Akureyri.
Ómskoðunin kostar ríkið um 10
milljónir kr., þar af 6,8 milljónir
fyrir ómunina og 3 milljónir vegna
ráðgjafar sem konurnar fá líka. »2
160 konur fengið
tíma í ómskoðun
Seint í gærkvöldi vann lögreglan enn að rannsókn á sprengingu neðarlega á
Hverfisgötu, steinsnar frá stjórnarráðinu, og vildi ekki ræða hvernig henni
miðaði. Hafði enginn verið handtekinn vegna sprengjutilræðisins í gær-
morgun. Tugir manna komu að aðgerðinni, sérsveitarmenn, lögreglumenn
og sprengjusérfræðingar. Þá voru slökkvibifreið og sjúkrabifreið sendar á
vettvang um tíuleytið í gærmorgun og voru á vettvangi í einn og hálfan tíma.
Á myndinni má sjá hvernig sérfræðingur sprengjudeildar Landhelgis-
gæslunnar fór að öllu með gát þegar hann rannsakaði leifar sprengjunnar.
Áður hafði sérútbúið vélmenni sprengjudeildarinnar skotið á leifarnar þann-
ig að þær sprungu. Er vélmennið útbúið vatnsbyssu og er háþrýstibunu ætlað
að sundra sprengjum svo þær springi ekki af öllu afli. Með því er áhættan
lágmörkuð fyrir sprengjuleitarmanninn sem er íklæddur búningi úr kevlar-
efni. Lögreglan rannsakar hvers vegna tilkynning um sprenginguna til fjar-
skiptamiðstöðvar lögreglu leiddi ekki til tafarlausra viðbragða. »6
Sprengjutilræði við stjórnarráðið
Morgunblaðið/Júlíus
Nái frumvarp
innanrík-
isráðherra fram
að ganga á Al-
þingi mun gjald-
skrá fyrir upp-
lýsingar og
vottorð hjá Þjóð-
skrá Íslands
hækka um allt að
233%. Eiga þessar hækkanir að
skila stofnuninni um 53 milljónum
króna í tekjur aukalega á ári og eru
þeir fjármunir ætlaðir í endurnýjun
tölvubúnaðar. Hefur frumvarpið
verið gagnrýnt en það er nú til um-
sagnar allsherjarnefndar Alþingis.
»4
Þjóðskráin hækkar
gjöld um 233%
Hugmyndir sem settar voru fram
í aðalskipulagi Reykjavíkur árið
2001 um að flugvöllurinn fari að
hluta árið 2016 og alveg árið 2024
eru algjörlega óraunhæfar og úr-
eltar nú, að mati Júlíusar Vífils
Ingvarssonar, borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins. Hann bendir á að
enn séu óseldar margar íbúðir og
margar skipulagðar lóðir til. Lóð-
irnar geti
enst í 6 til
7 ár eftir að
bygginga-
fram-
kvæmdir hefj-
ast á ný.
Júlíus Vífill bendir á
hálfbyggð nýbyggingahverfi á
höfuðborgarsvæðinu. Verði farið í
það þegar árið 2016 að fjarlægja N/
S-flugbrautina og beina uppbygg-
ingu þangað sé verið að tryggja
óbreytt ástand á hálfbyggðu svæð-
unum. Slík ráðstöfun muni og hafa
áhrif á um 500 störf á flugvellinum.
Þá telur hann að flugvallarsvæðið
myndi standa óhreyft í mörg ár.
Júlíus Vífill segir hægt að byggja
húsnæði fyrir 4.000 til 4.500 manns
á jaðarsvæðum flugvallarins án
þess að raska aðal-
flugbrautum
Reykjavíkur-
flugvallar.
»4
Algerlega úrelt hugmynd að fjarlægja
Reykjavíkurflugvöll, að mati borgarfulltrúa
Í MIÐJU MORGUNBLAÐSINS Í DAG »
Afgerandi meirihluti opins fundar
sem stjórn foreldrafélags Hvassaleit-
isskóla boðaði til með foreldrum í
gærkvöldi samþykkti ályktun þar
sem þess er krafist að borgaryfirvöld
afturkalli ákvörðun sína um að hýsa
miðstig Breiðagerðisskóla í húsnæði
skólans næstkomandi vetur.
Þá segir í ályktuninni að ákvörðun
borgarinnar hafi verið tekin án lög-
bundins samráðs við skólaráð og
skólastjórnendur á sama tíma og
vinna við viðkvæmt og umdeilt sam-
einingarferli Hvassaleitisskóla og
Álftamýrarskóla er á byrjunarstigi.
Foreldrar í Hvassaleiti mótmæli því
að vera haldið utan við svo veigamikið
hagsmunamál barna sinna.
Mótmæla
ákvörðun
yfirvalda
Foreldrar álykta
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Hvassaleiti Foreldrar mótmæla.