Morgunblaðið - 06.02.2012, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2012
Meirapróf
Næsta námskeið byrjar 8. febrúar 2012
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300, 894 2737
Björn Valur Gíslason er formað-ur þingflokks Vinstri grænna.
Hann nýtur trausts Steingríms J.
Sigfússonar.
Þetta skrifarhann síðast:
„Fáir stjórn-
málamenn hafa unn-
ið þjóð sinni jafn
mikið tjón og Davíð
Oddsson hefur gert.
Hann er því rétt-
nefndur pólitískur
hryðjuverkamaður. Enginn stjórn-
málamaður á því jafn mikið undir
því og Davíð Oddsson að komast
undan vitnaleiðslum fyrir lands-
dómi. Það er ótrúlegt hvað margir
eru viljugir að aðstoða hann við
það. Hversvegna ætli það sé?“
Er þetta hálmstráið eftir að Sig-ríður J. Friðjónsdóttir sak-
sóknari sópaði út af borðinu einu
röksemd Björns Vals og Jóhönnu
gegn því að falla frá ákæru á hend-
ur Geir H. Haarde? Að vitni séu svo
logandi hrædd við að verða spurð
eiðsvarin um sínar skoðanir, orð og
gerðir. Að minnsta kosti eitt vitnið.
Nú er ekki vitað hvort „hryðju-verkamenn“ leynast í hópi
annarra vitna og séu skjálfandi af
ótta líka.
En hafa þau ekki mörg þegarborið vitni eiðsvarin í marga
klukkutíma fyrir Rannsóknarnefnd
Alþingis? Hefur það ekki verið allt
birt opinberlega?
Látum svívirðingarnar vera,þetta er jú Björn Valur Gísla-
son.
En hvaða endileysa er þetta? Erverið að ákæra Geir til að fá
að heyra í vitnum?
Björn Valur
Gíslason
Snýst þetta um
vitni?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 5.2., kl. 18.00
Reykjavík 1 skýjað
Bolungarvík -2 skýjað
Akureyri -3 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 0 skýjað
Vestmannaeyjar 4 alskýjað
Nuuk -7 skýjað
Þórshöfn 5 léttskýjað
Ósló -6 snjókoma
Kaupmannahöfn -6 skýjað
Stokkhólmur -7 heiðskírt
Helsinki -12 snjóél
Lúxemborg -6 heiðskírt
Brussel -6 heiðskírt
Dublin 7 skýjað
Glasgow 6 skýjað
London 2 alskýjað
París -2 heiðskírt
Amsterdam -6 heiðskírt
Hamborg -7 heiðskírt
Berlín -8 snjókoma
Vín -7 léttskýjað
Moskva -11 heiðskírt
Algarve 15 heiðskírt
Madríd 8 léttskýjað
Barcelona 5 skýjað
Mallorca 6 súld
Róm 2 skýjað
Aþena 13 skýjað
Winnipeg -6 heiðskírt
Montreal -10 alskýjað
New York 1 heiðskírt
Chicago 3 skýjað
Orlando 20 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:54 17:30
ÍSAFJÖRÐUR 10:13 17:21
SIGLUFJÖRÐUR 9:57 17:03
DJÚPIVOGUR 9:27 16:56
Margrét Sighvats-
dóttir, söngkona og
húsmóðir í Grindavík,
lést á hjúkrunarheim-
ilinu Víðihlíð í Grinda-
vík föstudaginn 3. febr-
úar sl., áttatíu og eins
árs að aldri.
Margrét fæddist í
Ártúnum á Rangár-
völlum 23. maí 1930.
Hún var dóttir
hjónanna Kristínar
Árnadóttur og Sig-
hvatar Andréssonar
bónda á Ragnheið-
arstöðum í Flóa.
Margrét var stofnfélagi í Slysa-
varnafélaginu Þórkötlu, sat í fyrstu
stjórn þess og var heiðursfélagi.
Hún var jafnframt í Kvenfélagi
Grindavíkur, sóknarnefnd Grinda-
víkurkirkju og í kirkjukórnum. Hún
æfði ýmsa barnakóra í Grindavík og
sá um tónlistarkennslu í grunnskól-
anum þar til tónlistarskólinn var
stofnaður. Margrét var einnig heið-
ursfélagi í Ungmenna-
félaginu Samhygð í
Gaulverjabæjarhreppi.
Hún var einnig um-
boðsmaður Morgun-
blaðsins í Grindavík
um nokkurra ára
skeið.
Margrét hafði alla
tíð unun af tónlist og
söng og lærði m.a. hjá
Maríu Markan, Sigurði
Demetz Franzsyni,
Guðrúnu Á. Símonar-
dóttur og John
Speight. Vorið 2010
kom út hljómdiskurinn
„Lögin hennar mömmu“, með lögum
og textum sem Margrét hafði samið
í Keflavík og Grindavík.
Margrét lætur eftir sig eigin-
mann, Pál H. Pálsson útgerðar-
mann, frá Þingeyri við Dýrafjörð, og
sex börn, Margréti, Pál Jóhann, Pét-
ur Hafstein, Kristínu Elísabetu,
Svanhvíti Daðeyju og Sólnýju Ingi-
björgu.
Andlát
Margrét Sighvatsdóttir
Torben Friðriksson,
fyrrverandi ríkisbókari,
lést á Landspítalanum
við Hringbraut laug-
ardaginn 4. febrúar sl.
Torben fæddist í
Danmörku 21. apríl
1934. Hann lauk stúd-
entsprófi í Svendborg
1952 og verslunar-
skólaprófi og prófi í
sjórétti frá Köbmands-
skolen í Kaupmanna-
höfn 1955.
Í Kaupmannahöfn
kynntist Torben eft-
irlifandi eiginkonu
sinni, Margréti B. Þorsteinsdóttur,
og flutti með henni til Íslands.
Hann lauk viðskiptafræðiprófi frá
Háskóla Íslands árið 1960.
Meðfram námi starfaði Torben
hjá hagdeild SÍS og síðar í tvö ár á
vegum OECD í París. Hann var
forstjóri Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar 1966 til 1982, þá
framkvæmdastjóri Félags íslenskra
stórkaupmanna um
tveggja ára skeið, en
var skipaður ríkisbók-
ari 1984 og gegndi því
embætti fram til 1.
ágúst 1994, að hann
tók við stöðu sérfræð-
ings og ráðgjafa í
fjármálaráðuneytinu.
Torben vann að
ýmsum félagsmálum,
sat m.a. í stjórn
Dansk-íslenska félags-
ins í Reykjavík í átta
ár, þar af sem for-
maður í fjögur. Þá sat
hann í stjórn Félags
forstöðumanna ríkisstofnana og í
stjórn Stjórnsýslusambands Íslands
og var þar formaður um tíma.
Hann vann í þágu Rauða krossins
um áratuga skeið og átti m.a. lengi
sæti í stjórn Reykjavíkurdeildar
RKÍ.
Þrjú uppkomin börn Torbens og
Margrétar eru Steen Magnús,
Hanna Katrín og Knútur Þór.
Andlát
Torben Friðriksson
Sr. Gunnar Sig-
urjónsson, prest-
ur í Digra-
neskirkju í
Kópavogi, lýsti í
gær yfir fram-
boði sínu til emb-
ættis biskups.
„Þjóðkirkja
sem hagar störf-
um sínum með
það að marki að
gera veg Krists sem mestan á með-
al fólks er kirkja á réttri leið. Sú
kirkja er virðingarverð og eftir-
sóknarverð. Þeirri kirkju vil ég
vinna það gagn sem mest ég má.
Ég býð mig ekki fram til emb-
ættis biskups Íslands vegna þess að
ég telji mig vera betur til þess fall-
inn en aðra, heldur vegna þess að
ég ber traust til alls þess góða
fólks sem hefur hvatt mig áfram í
starfi mínu,“ segir m.a. í yfirlýs-
ingu hans.
Sr. Gunnar
í biskupskjör
Gunnar
Sigurjónsson