Morgunblaðið - 06.02.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2012
ljósmynd/norden.org
Náttúra Áburð þarf víða að nota á landi þar sem ræktun fer fram.
Matvælastofnun heldur fræðslufund
um eftirlit með áburði miðvikudaginn
8. febrúar 2012 kl. 15:00 - 16:30 í um-
dæmisskrifstofu stofnunarinnar í
Reykjavík að Stórhöfða 23.
Á fræðslufundinum verður fjallað
um áburðarnotkun og framkvæmd
áburðareftirlits hérlendis. Rætt verð-
ur um kadmíummálið svokallaða,
birtingu eftirlitsniðurstaðna og nýjar
reglur sem heimila birtingu nið-
urstaðna áburðareftirlits þegar þær
liggja fyrir. Fyrir þá sem ekki eiga
heimangengt verður hægt að fylgjast
með fundinum í beinni útsendingu á
vef Matvælastofnunar www.mast.is.
Endilega…
…sækið fræðslufund
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég ólst eiginlega upp í eld-húsi því bæði pabbi minnog afi eru kokkar. Pabbi,Karl Jónas Johansen, er
mikill reynslubolti í þessum bransa,
hann hefur verið veitingamaður
víða í gegnum tíðina, í Skíðaskál-
anum í Hveradölum, á Grand hóteli
og fleiri stöðum. Auk þess rekur
hann veisluþjónustu,“ segir Ámundi
Óskar Johansen en þeir feðgarnir
opnuðu veitingastað í Borgartúni 16
síðastliðinn föstudag og heitir hann
einfaldlega Borgartún. „Þetta er í
kálfinum svokallaða við Turninn, í
húsnæðinu þar sem Eldhrímnir var
áður. Við pabbi ákváðum að slá
saman og prófa þetta,“ segir
Ámundi sem sá um að hanna og inn-
rétta staðinn og leit þar til fortíð-
arinnar. „Við vildum skapa hlýlegt
og notalegt andrúmsloft og gengum
út frá því að reyna að blanda saman
hraða nútímans, sem tengist þessu
glerhýsi, við hið hæga gamla góða
sem hér var á þessu svæði árið 1920.
Heilu veggirnir eru svarthvítar ljós-
myndir frá lífinu í þessu hverfi á
þeim tíma, til dæmis er mynd frá
saltfiskverkun sem var við Kirkju-
sand.“
Allir réttirnir kosta það
sama
Við gerð matseðilsins tóku
feðgarnir saman reynslu þeirra
beggja í mat og settu saman rétti
sem þeir hugsuðu fyrir sem fjöl-
breyttastan hóp. „Allir réttirnir
munu kosta það sama, 1.750 krónur,
hvort sem það er humar, önd, salat,
kjúklingur eða eitthvað annað. Mat-
seðillinn samanstendur af tólf rétt-
um og við ætlum að breyta þeim
mánaðarlega, svo fólkið sem vinnur
hér í hverfinu fái ekki leið á matnum
okkar. Við stílum vissulega inn á allt
þetta fólk sem vinnur á þessum
stóru vinnustöðum hér í nágrenn-
inu. Við ætlum að vera með ým-
islegt fyrir starfsmannahópa,
Feðgar opna saman
veitingastað
Feðgarnir Ámundi og Karl ákváðu að hrista saman matarreynslu sína og opna
veitingastað í Borgartúni. Þar ætla þeir m.a. að búa til vísi að félagsmiðstöð fyrir
fólkið sem vinnur í öllum fyrirtækjunum í Borgartúninu og matseðlinum verður
breytt á mánaðarfresti.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kátir feðgar Karl Jónas Johansen og Ámundi Óskar Johansen.
Staðurinn Hlýlegt og notalegt andrúmsloft í bland við hraða nútímans.
Sálfræði er áhugavert svið og seint
er hægt að fræðast nógsamlega um
hið flókna fyrirbæri sem sál okkar
mannanna er. Á vefsíðunni psycho-
logytoday.com má lesa ótal greinar
eftir fræðinga, blogg frá leik-
mönnum sem og pistla um hvaðeina
sem viðkemur sálinni. Þar er heil-
mikið um hamingjuna, hvernig við
getum byggt okkur upp, eflt sjálfs-
traust og sjálfsaga, ótal greinar um
sambönd, kynlíf og annað sem veld-
ur sálarflækjum. Þar eru líka áhuga-
verðar greinar um bannaðar hugs-
anir og hvers vegna við skömmumst
okkar þegar þær koma upp í hug-
ann. Þarna er grein um hvernig við
getum aukið sköpunarkraft okkar
með því að heilsa upp á skuggahlið-
ina í okkur. Þarna er líka hægt að
taka ýmis próf til að komast að því
hvort við erum haldin kvíða, reiði,
einbeitingarskorti o.fl.
Vefsíðan www.psychologytoday.com
Uss Sumar hugsanir eru bannaðri0 en aðrar hjá mannfólkinu.
Bannaðar hugsanir og hamingja
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w. h e y r n a r t æ k n i . i s
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880
og fáðu Intiga til prufu í vikutíma
Intiga eru ofurnett heyrnartæki og hönnuð með það fyrir augum að gera aðlögun að notkun
heyrnartækja eins auðvelda og hægt er. Hljóðvinnslan er einstaklega mjúk og talmál verður
skýrara en þú hefur áður upplifað.
Með Intiga verður minna mál að heyra betur í öllum aðstæðum!
*Í flokki bak við eyra heyrnartækja
sem búa yfir þráðlausri tækni og hljóðstreymingu
Heyrnartækni kynnir ...
Minnstu heyrnartæki í heimi*