Morgunblaðið - 06.02.2012, Blaðsíða 12
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Íslensku lífeyrissjóðirnir töpuðu 380-
390 milljörðum eftir að efnahags-
hrunið brast á í október 2008 og til
2010. Það er um 22% af heildareign
sjóðanna fyrir hrun. Innlend hluta-
bréfaeign lífeyrissjóðanna rýrnaði
um 95 milljarða fyrstu níu mánuði
ársins 2008. Arnar Sigurmundsson,
formaður Landssamtaka lífeyris-
sjóða, segir að eignarýrnun margra
evrópskra lífeyrissjóða af völdum
hrunsins 2007-2009 hafi verið rúm
20%. Munurinn hjá þeim og íslensku
sjóðunum sé að innlend mynt þeirra
hafi ekki hrunið.
Arnar hrósaði óháðu úttektar-
nefndinni fyrir skýrsluna sem kynnt
var á föstudag og sagði skýrsluna
mun ítarlegri en hann bjóst við. Hann
sagði að lífeyrissjóðirnir hefðu oft
verið inntir eftir umfangi taps þeirra
af völdum hrunsins.
„Við höfðum áætlað að tapið myndi
losa um 20% af heildareignunum,“
sagði Arnar. Það er nálægt 360-370
milljörðum. Þess ber að geta að líf-
eyrissjóðirnir miðuðu við 30. septem-
ber 2008, síðustu mánaðamót fyrir
hrunið. Í skýrslunni er hins vegar
miðað við 1. janúar 2008. Sé eignar-
ýrnun lífeyrissjóðanna í innlendum
hlutabréfum upp á 95 milljarða fyrstu
níu mánuði ársins 2008 bætt við sé
niðurstaðan sé því áþekk.
Erlend hlutabréf í eigu lífeyris-
sjóðanna féllu einnig í verði í aðdrag-
anda hrunsins. Það mildaði áhrifin á
eignasöfnin að krónan veiktist á sama
tíma svo virði erlendu hlutabréfanna í
krónum talið hélst nær óbreytt.
Skipan stjórna ólík
Úttektarnefndin kemur með
ýmsar ábendingar, m.a. um
stjórnarsetu í lífeyrissjóðunum.
Arnar benti á að lífeyrissjóðirnir
væru með ólíkan bakgrunn. Af
32 lífeyrissjóðum væru
átta til níu vinnumark-
aðssjóðir og megin-
reglan í þeim að
stéttarfélögin til-
nefndu helming stjórnarmanna og
Samtök atvinnulífsins helming. Svo
eru aðrir lífeyrissjóðir þar sem sjóð-
félagar kjósa alla stjórnarmenn. Í
þriðja lagi eru sjóðir með ábyrgð
launagreiðanda, það er ríkis og sveit-
arfélaga, og eiga þeir sem bera
ábyrgðina fulltrúa í stjórnum sjóð-
anna.
Oft hefur verið rætt um að sjóð-
félagar í vinnumarkaðssjóðum geti
kosið stjórnarmenn og er tekið undir
það í skýrslunni. Arnar kvaðst ganga
út frá því að sjóðsstjórnirnar myndu
hver um sig skoða þessar ábending-
ar. Á sama hátt myndu bakhjarlar
sem hlut ættu að máli, SA og laun-
þegahreyfingin, einnig skoða ábend-
ingarnar og taka til umræðu. Arnar
sagði þetta samt ekki eins einfalt og
það liti út fyrir að vera. Kveðið væri á
um lífeyrisgreiðslur og lífeyrissjóðina
í kjarasamningum. Oftast væri samið
um þessi mál á almennum vinnu-
markaði. „Engu að síður tel ég skyn-
samlegt að menn fari í gegnum þetta
atriði og önnur sem vitnað er til í
skýrslunni,“ sagði Arnar.
Fram kemur í skýrslunni að kostn-
aður við rekstur íslensku lífeyrissjóð-
anna sé sá lægsti í öllum samanburð-
arlöndunum (OECD-ríkin) og hafi
verið til margra ára.
„Hér á landi eru starfsmenn í öllu
lífeyrissjóðakerfinu um 210 talsins og
inni í þeirri tölu eru starfsmenn sér-
eignarsjóða og við lífeyrissparnað,“
sagði Arnar.
Tap lífeyrissjóðanna svip-
að og hjá þeim evrópsku
Rekstrarkostnaður lífeyrissjóðanna hér er í lágmarki miðað við OECD-ríkin
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
sagði í samtali við mbl.is að
bankahrunið væri meginástæða
taps lífeyrissjóðanna. Þó hefði
t.d. verið hægt að viðurkenna
fyrr að íslenskur hlutabréfa-
markaður hefði verið of grunnur
og áhættusamur og sjóðirnir
hefðu hugsanlega átt að fjár-
festa meira í útlöndum. Þrátt
fyrir mikið tap hefðu erlendar
eignir sjóðanna virkað sem mót-
vægi gegn tapinu.
Arnar Sigurmundsson, for-
maður Landssamtaka lífeyr-
issjóða, sagði að vegna gjaldeyr-
ishafta væri ekki hægt að stofna
til nýrra viðskipta erlendis. Eina
undantekningin væri endur-
greiðslur úr erlendum fram-
takssjóðum sem lífeyr-
issjóðirnir keyptu í fyrir
hrun. Endurgreiðslur úr
þeim mætti nota til að
standa við gerða
samninga um
greiðslur í erlenda
framtakssjóði.
Of grunnur
markaður
MÓTVÆGI Í ERLENDUM
EIGNUM LÍFEYRISSJÓÐA
Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 2012
KORTIÐ GILDIR TIL
31. maí 2012
MOGGAKLÚBBURINN
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
2 FYRIR 1
Á TAPAS BARNUM
AF FRÁBÆRU TAPAS
AÐ HÆTTI HÚSSINS
MOGGAKLÚBBUR
Framvísið Moggaklúbbs-
kortinu áður en pantað er.
Tilboðið er í boði frá sunnudegi
til miðvikudags og gildir frá
8. janúar til 28. mars 2012.
ATH! Gildir ekki 14. febrúar 2012
eða með öðrum tilboðum.
RESTAURANT- BAR
Vesturgötu 3B | 101 Reykjavík | Sími 551 2344 | www.tapas.is
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1122
Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn.
Glatist kortið sendu þá póst á askrift@mbl.is.
INNKÖLLUN Á VÖRU
Okkur hefur verið tilkynnt að barnabílstóll
með vörunúmerinu 28831 uppfylli því miður
ekki þær öryggiskröfur sem gerðar eru til
barnabílstóla. Stóllinn hefur því verið tekinn
úr sölu í Rúmfatalagernum. Þessi stóll var
fáanlegur frá septemberlokum 2011 og eru
þeir viðskiptavinir sem hafa keypt þennan stól
eru vinsamlegast beðnir um að hætta notkun
á þessum stól og hafa samband við næstu
Rúmfatalagersverslun og skila honum gegn
fullri endurgreiðslu.
Við biðjumst velvirðingar á þessu.
Með fyrirfram þökk fyrir sýndan skilning.
Dæmi eru um að
þeir sem sáu um
eignastýringu
fyrir lífeyrissjóði
hafi brugðist
trausti og sjóð-
irnir ekki viðhaft
nægilegt eftirlit,
samkvæmt því
sem fram kemur
í skýrslu eftirlits-
nefndarinnar.
Arnar Sigurmundsson, formaður
Landssamtaka lífeyrissjóða, sagði
að sumir lífeyrissjóðir hefðu farið í
mál eða væru að undirbúa mál
gagnvart þrotabúum gömlu bank-
anna, einkum vegna afleiðu-
viðskipta og víkjandi skuldabréfa.
Þegar náin tengsl banka og til-
tekinna fyrirtækja komu í ljós voru
lögmenn fengnir til að skoða hvort
um væri að ræða markaðs-
misnotkun og einhver á hinum end-
anum hagnaðist óeðlilega vegna
þessara viðskipta.
„Við höfum lengi verið með lög-
menn á okkar snærum að skoða
þessi mál,“ sagði Arnar. Hann sagði
að sátt hefði náðst við þrotabú
Landsbankans í júlí í fyrra. Við-
ræður stæðu enn við slitastjórnir
Glitnis og Kaupþings banka.
Ef þrotabú bankanna væru með
kröfur á lífeyrissjóðina vegna þess
að gjaldmiðlavarnasamningar
væru með neikvæða stöðu nýttust
skuldabréf lífeyrissjóðanna á bank-
ana til skuldajöfnunar, en annars
væru þau lítils virði. Það myndi
mýkja höggið sem lífeyrissjóðirnir
yrðu ella fyrir ef slík skuldajöfnun
gengi eftir. Arnar sagði þessar við-
ræður og uppgjör mjög flókin og
ekki séð fyrir endann á þeim.
Lífeyrissjóðir í mála-
ferlum við þrotabú
föllnu bankanna
Arnar
Sigurmundsson
Viðræður lífeyrissjóðanna við full-
trúa fjármálaráðuneytisins um að-
komu að vaxtaniðurgreiðslu vegna
skulda- og greiðsluvanda heimilanna
halda áfram í dag. Þær byggjast á
viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar,
fjármálastofnana, lífeyrissjóðanna
og Íbúðalánasjóðs 3. desember 2010.
Arnar Sigurmundsson, formaður
Landssamtaka lífeyrissjóða, sagði
að viðræðurnar hefðu ekki borið
árangur í fyrra. Rætt var um að
sjóðirnir kæmu að þessu í gegnum
gjaldeyrisútboð Seðlabankans. Svo
var rætt um að þeir keyptu eignir af
ríkinu en það gekk ekki upp.
Þráðurinn var aftur tekinn upp
fyrir áramót og rætt um virka þátt-
töku lífeyrissjóðanna í gjaldeyr-
isútboðum á þessu ári.
„Við höfum lýst vilja til þess og
höfum fundað með fjármálaráðu-
neytinu og kynnt okkur skilmála
Seðlabankans,“ sagði Arnar. „Ég
vona að á allra næstu dögum sjáum
við hvort þessi leið er fær.“
Hann sagði að stjórn hvers lífeyr-
issjóðs þyrfti að taka afstöðu til þess
hvort hún vildi koma að gjaldeyr-
isútboðunum. Yrðu allir sjóðirnir
með tækist að koma í veg fyrir boð-
aðan eignaskatt upp á 2,8 milljarða
króna á lífeyrissjóðina. Stjórnir
sumra sjóðanna hefðu þegar tekið
afstöðu en hinar myndu gera það í
þessari viku. gudni@mbl.is
Viðræður um gjaldeyr-
isútboð halda áfram
Niðurstöðu vænst á næstu dögum
Morgunblaðið/Kristinn
Úttekt á lífeyrissjóðunum Arnar
Sigurmundsson með skýrsluna.