Morgunblaðið - 06.02.2012, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 37. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Fannst látinn í líkamsrækt
2. Of feit fyrir fyrirsætusamning
3. Kennara boðið starf sem strippari
4. Mögnuð endurkoma Man. Utd
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tríó saxófón-
leikarans Óskars
Guðjónssonar
kemur fram á
þriðju tónleikum
djasstónleikarað-
arinnar á Kex
hosteli við Skúla-
götu. Í tríóinu eru
einnig Valdimar K.
Sigurjónsson, sem leikur á kontra-
bassa, og trommarinn Scott Mc-
Lemore. Tónleikarnir verða annað
kvöld og hefjast klukkan 20:30.
Tríó Óskars Guðjóns-
sonar á Kex hosteli
Björn Ingvarsson hefur opnað sam-
sýningu á eigin ljósmyndum og mynd-
um eftir Björn Björnsson, löngu látinn
langafa sinn, í salnum í bókasafni Sel-
tjarnarness við Eiðistorg.
Alls eru sýndar um 100
fuglamyndir eftir
nafnana, annars vegar
myndir frá 1948-
1965 og hins
vegar myndir
frá því í
fyrrasumar.
Samsýning Björns
og Björns á Nesinu
Á þriðjudag Suðlæg átt, víða 10-15 m/s og rigning eða slydda,
einkum á S-verðu landinu. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast á NA- og A-landi.
Á miðvikudag Suðlæg átt og rigning eða slydda með köflum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, víða 13-20 m/s, hvassast
V-lands. Úrkomulítið á NA-verðu landinu, annars rigning eða súld.
Hiti 5 til 12 stig, hlýjast fyrir norðan. Lægir talsvert í kvöld.
VEÐUR
Tindastóll er í fyrsta skipti á
leið í Laugardalshöllina í
körfuknattleik karla eftir
sigur á KR í undanúrslitum
bikarkeppninnar á Sauð-
árkróki í gær. Úrslitin réðust
ekki fyrr en á dramatískum
lokasekúndum leiksins.
Tindastóll mætir þar
Keflavík sem vann KFÍ nokk-
uð örugglega á heimavelli.
Keflavík hefur unnið bik-
arinn fimm sinnum, síðast
2004. »8
Tindastóll í fyrsta
skipti í höllina
„Ég verð hjá Swansea fram til sumars
og einbeiti mér að því að spila vel hér.
Svo sjáum við til hvað ger-
ist. Þeir spila frábæran
bolta og ég finn mig
mjög vel í þessu liði,“
sagði Gylfi Þór
Sigurðsson
við Morg-
unblaðið en
hann fór á
kostum
með
Swansea
um
helgina.
»7
Gylfi finnur sig vel í
frábæru liði Swansea
Helga Margrét Þorsteinsdóttir bætti
Íslandsmetið í fimmtarþraut innan-
húss á alþjóðlegu móti í Tallinn í Eist-
landi um helgina. Helga safnaði sam-
an 4.298 stigum í þrautinni og bætti
eigið met sem hún setti árið 2010 um
93 stig. „Ég reiknaði ekki með neinu
sérstöku því ég vildi fyrst og fremst
komast í gegnum þrautina,“ sagði
Helga við Morgunblaðið. »1
Helga vildi fyrst og
fremst klára þrautina
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Guðrún Sóley Gestsdóttir
gudrunsoley@mbl.is
„Mikil gróska er í tví- og þríþraut
um þessar mundir,“ segir Trausti
Valdimarsson, félagi í þríþraut-
arfélaginu Ægi. Að hans sögn helst
þetta í hendur við aukna vakningu í
þjóðfélaginu um gagn og gaman
hreyfingar.
Trausti segir að fjölbreytnin í
þrautunum geri að verkum að ekki
þurfi að vera í framúrskarandi góðu
formi til að vera með. „Hvað álag
varðar hentar vel að gera sitt lítið af
hverju. Margir sem hafa glímt við
hlaupatengd meiðsli hafa leiðst út í
þríþrautina með góðum árangri.
Sundið viðheldur þolinu án alls álags
á liði og hjólreiðarnar reyna þar að
auki á aðra hluta líkamans.“ Trausti,
sem hefur stundað langhlaup til
margra ára, segist finna það á sjálf-
um sér hvernig hægt er að ná betri
árangri í hlaupum með því að dreifa
álaginu á líkamann. „Sundið eykur
styrk í miðju líkamans sem hjálpar
manni að endast lengur í hlaup-
unum. Bakverkir sem ég fann áður
fyrir hurfu eftir að ég fór að stunda
sundið.“
Ekki hugsa eða tala, bara gera
Gísli Ásgeirsson, formaður þrí-
þrautarnefndar ÍSÍ, segir átta þrí-
þrautarfélög starfrækt um land allt.
Að hans sögn ruddi Bryndís Bald-
ursdóttir brautina þegar hún tók
þátt í heilum járnkarli árið 2006. Í
kjölfarið bættust fleiri í hópinn
og síðan þá hefðu hópar farið
reglulega frá Íslandi til að
keppa í þríþraut á erlendri
grund. „Við erum nokkrir mið-
aldra jálkar sem tökum þátt í
þrautunum og það sýnir fólki
að þær eru á allra færi. Aðal-
málið er að hugsa ekki enda-
laust um hlutina eða tala um þá,
heldur gera þá bara.“ Gísli
heldur úti síðunni triat-
Bakverkir hurfu í sundinu
Mikil aukning í
tví- og þríþraut á
Íslandi
Fjölbreytni „Bakverkir sem ég fann áður fyrir hurfu eftir að ég fór að stunda sundið,“ segir Trausti Valdimarsson.
„Ég verð var við heilmikla aukningu í tví- og þrí-
þraut,“ segir Torfi Helgi Leifsson, umsjónarmaður
hlaup.is. „Þróunin er oft á þann veg að fólk byrj-
ar í skemmtiskokki, eykur svo smám saman
vegalengdirnar og er fyrr en varir komið upp í
10 km, hálft maraþon og jafnvel heilt, og er
þannig sífellt að leita að nýjum áskorunum og
fjölbreytni.“ Að sögn Torfa er algengt að fólk
sem á að baki hálf og heil maraþon og jafnvel
Laugavegshlaup leiti í þrautirnar. ,,Þær eru
nýr og spennandi möguleiki sem
freistar margra að spreyta sig
á.“ Að hans sögn tengist fjölgun í tví- og þríþraut lík-
lega auknum áhuga á hjólreiðum. „Fólk áttar sig í aukn-
um mæli á möguleikanum á hjólreiðaástundun hér á
landi. Aðstæður eru ágætar og búnaðurinn sífellt að
verða betri.“ Aðspurður segir Torfi stóran hluta þátt-
takenda í þrautunum koma úr hlaupum. „Hlauparar
átta sig á því að það er mögulegt að bæta árangurinn
með því að bæta hjóla- og sundæfingum í æfinga-
rútínuna. Með því móti minnkar álagið af hlaupunum,
líkur á meiðslum minnka og þeir ná betri alhliðaþjálf-
un.“ Á hlaup.is má sjá dagskrá ársins í tví- og þríþraut
auk allra götuhlaupa á landinu.
Leit að nýjum áskorunum
HLAUPADAGSKRÁ ÁRSINS EINKENNIST AF FJÖLGUN Í TVÍ- OG ÞRÍÞRAUT
Torfi H. Leifsson
Ákveðið hefur verið að hafa auka-
sýningu á Litlu flugunni vegna mik-
illar eftirspurnar. Stefán Hilmarsson,
Hera Björk, Egill Ólafsson og Björn
Thoroddsen flytja perlur Sigfúsar
Halldórssonar í Salnum í Kópavogi
föstudaginn 10. febrúar undir stjórn
Björns. Tónleikarnir hefjast kl. 20 en
nánari upplýsingar eru á vef Salarins
(www.salurinn.is).
Aukasýning á Litlu
flugunni í Salnum
Morgunblaðið/Golli