Morgunblaðið - 07.02.2012, Blaðsíða 1
VEGGSPJÖLD OG
MYNDIR Í ÁRATUG
Í NÝRRI BÓK
NÖFNUR
SYNGJA SAMAN
Í FUGLABÚRINU
MEÐ NÝJAN
SAMNING VIÐ
EITT BESTA LIÐIÐ
VIÐSNÚIÐ SEGULSTÁL 30 ÞÓREY RÓSA Í DANMÖRKU ÍÞRÓTTIRKARL OG BREAKBEAT 32
Ljósmynd/Erlingur Thoroddssen
Önundur Kristjánsson í brúnni á Þorsteini.
Elsta fiskiskipið í flotanum er
eikarbáturinn Þorsteinn GK 15,
sem gerður er út frá Raufarhöfn.
Báturinn var smíðaður í Falken-
berg í Svíþjóð árið 1946. Útgerð-
armaður og skipstjóri er Önundur
Kristjánsson og er hann nokkru
eldri en báturinn, fæddur árið 1933
og því 78 ára gamall.
Næstir í aldursröðinni eru hval-
bátarnir Hvalur 8 og Hvalur 9. Þeir
voru smíðaðir 1948 og 1952. »14
Elsta skipið hátt
á sjötugsaldri
Karlmaður á þrítugsaldri er í
haldi lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu grunaður um mann-
dráp.
Maðurinn kom á lögreglustöð í
gærmorgun og var í annarlegu
ástandi. Þar greindi hann frá at-
viki sem orðið hefði á heimili hans
í Hafnarfirði. Framburður manns-
ins var um margt óljós en strax
var farið heim til hans. Þar fannst
kona á fertugsaldri og var hún lát-
in þegar að var komið. Sjáanlegir
áverkar voru á konunni, að því er
fram kom í tilkynningu lögregl-
unnar.
Konan mun hafa verið gestkom-
andi á heimili mannsins en þau
höfðu þekkst um hríð. Lögreglan
lagði hald á eggvopn í þágu rann-
sóknarinnar. Maðurinn sem er í
haldi hefur áður komið við sögu
lögreglunnar.
Lögreglan segir að rannsókn
málsins sé á frumstigi og ekki
hægt að veita nánari upplýsingar
um það að svo stöddu.
Grunaður um manndráp
Meintur banamaður konu gaf sig fram við lögregluna
Íslendingar hafa undanfarið notið góðs af suðlægum vindum sem beint
hafa mildu lofti yfir Atlantshaf og norður eftir. Á sama tíma hefur mis-
kunnarlaust frostið og fannfergi tekið sinn toll á meginlandi Evrópu en
skjótt skipast veður í lofti. Líkur eru á að kuldakastið í Evrópu taki brátt
enda, nema austast í álfunni, og á Íslandi mega landsmenn búa sig undir að
brátt fari að blása köldu lofti úr vestri. »4
Skjótt skipast veður í lofti
Morgunblaðið/RAX
„Þetta er mjög virkt skjálfta-
svæði og í raun eldvirkt svæði,“
segir Bjarni Bjarnason, forstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur (OR), um
svæðið við Hellisheiðarvirkjun.
Ráðgjafahópur OR er nú að skoða
jarðskjálftavirkni á svæðinu.
Sem kunnugt er urðu jarð-
skjálftahrinur í Hellisheiði á liðnu
hausti í kjölfar niðurdælingar vatns
frá Hellisheiðarvirkjun. Þá urðu
allt að fjögurra stiga jarðskjálftar
sem fundust í Hveragerði og á höf-
uðborgarsvæðinu. Á fjórða tug
smáskjálfta varð þar um síðustu
helgi.
Bjarni segir að ráðgjafahópurinn
hafi sagt að allar breytingar á nið-
urdælingu væru óæskilegar. Þyrfti
að breyta dælingunni ætti það að
gerast hægt. Hann sagði reynsluna
hafa kennt þeim að dæla hægt og í
þrepum. »6
Breytingar á dæl-
ingu óæskilegar
Morgunblaðið/RAX
Dæling Reynslan sýnir að breytingar á
niðurdælingu þurfa að gerast hægt.
Nefndin, sem rannsakaði fjárfest-
ingar og starfsemi lífeyrissjóða, tel-
ur að fjárfestingar í sérstökum teg-
undum skuldabréfa, m.a. víkjandi og
lánshæfistengdum bréfum, hafi ver-
ið hæpnar. Þær hafi jafnvel ekki ver-
ið í anda laga um lífeyrissjóði og ekki
samræmst hlutverki sjóðanna. Tek-
in eru dæmi af þátttöku í
skuldabréfaútboði Glitnis í mars
2008 og milligöngu Landsbankans í
útgáfu franska bankans Société
Generale á baktryggðum skulda-
bréfum árin 2004 og 2005. Telur
nefndin leika vafa á að lagaleg skil-
yrði hafi verið fyrir hendi hjá lífeyr-
issjóðunum til þátttöku í útgáfu á
bréfum franska bankans. »12
Vafi um lögmæti fjár-
festinga lífeyrissjóða
Þ R I Ð J U D A G U R 7. F E B R Ú A R 2 0 1 2
Stofnað 1913 31. tölublað 100. árgangur
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Norska fjölveiðiskipið Torbas er á leið til Íslands
en Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað er að kaupa
skipið. Torbas lagði af stað til Íslands í gær og er
von á því til nýrrar heimahafnar á morgun, mið-
vikudag. Skipið var smíðað í Noregi árið 2000. Það
ber um 1.850 tonn og er fjölveiðiskip. Verður það
með stærstu skipum fiskveiðiflotans og getur
bæði veitt í troll og nót. Í því er mjög öflugt kæli-
kerfi til að kæla aflann í lestunum.
„Þetta er endurnýjun á skipastól okkar,“ sagði
Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldar-
vinnslunnar. Hann sagði að skipið fengi nafnið
Börkur og skráningarstafina NK 122. Það leysir
því af hólmi eldra skip með því nafni sem smíðað
var 1968 og Síldarvinnslan keypti frá Noregi 1973.
Gamli Börkur NK verður gerður út áfram um sinn
undir nýju nafni og loðnuvertíðin kláruð á honum,
að sögn Gunnþórs. En hvers vegna kaupir Síld-
arvinnslan nýtt skip nú í ljósi þeirrar óvissu sem
ríkir um framtíð sjávarútvegsins?
„Ég held að við séum að kaupa gott skip sem er
góð söluvara á alþjóðlegum markaði,“ segir hann.
„Ef þessar hugmyndir stjórnvalda um skerðingu á
okkar starfsumhverfi ganga eftir þá tel ég að við
getum selt þetta skip aftur.“ Skipið fer til loðnu-
veiða fljótlega eftir að það kemur til landsins.
Nýtt skip bætist í flotann
Síldarvinnslan er að kaupa fjölveiðiskipið Torbas frá Noregi Skipið var smíð-
að í Noregi árið 2000 og ber 1.850 tonn Nýja skipið heldur strax til loðnuveiða
Skipið Torbas var fyrir skömmu á Eskifirði.